Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 794  —  278. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).

Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og tekið til skoðunar þær umsagnir og sjónarmið sem fram hafa komið. Fyrsti minni hluti styður þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um og telur mikilvægt að þær verði að lögum sem fyrst. Fyrsti minni hluti telur þó nauðsynlegt að gera breytingu á frumvarpinu til þess að tryggja stjórnvöldum enn frekari heimildir til að afturkalla alþjóðlega vernd þegar tilefni er til.
    Fyrsti minni hluti tekur heils hugar undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dags. 20. maí 2025, um að lágmarksskilyrði sé að þeir einstaklingar sem leita skjóls hér á landi viðhafi ekki háttsemi sem fer í bága við grundvallarhagsmuni samfélagsins. Fyrsti minni hluti telur að stjórnvöldum séu ekki veittar nægilega rúmar heimildir með þessu frumvarpi til þess að afturkalla vernd þeirra sem viðhafa slíka háttsemi, þegar heimildin er einskorðuð við að gildar ástæður séu til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins eða að viðkomandi hafi hlotið endanlegan dóm fyrir sérstaklega alvarlegt afbrot og sé af þeim sökum hættulegur samfélaginu.
    Með vísan til 2. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 um að flóttamaður hafi skyldum að gegna gagnvart dvalarlandi, sem felst í að hann hagi sér samkvæmt lögum þess og reglum, telur 1. minni hluti vel fært að útvíkka umræddar heimildir stjórnvalda til þess að fella úr gildi alþjóðlega vernd einstaklinga. Eðlilegra er að þessi heimild sé veitt stjórnvöldum við hvers konar ítrekuð afbrot einstaklingsins, jafnvel þegar dómar eru skilorðsbundnir. Í dæmaskyni mætti nefna þjófnað, skemmdarverk og önnur sams konar brot. Í vissum skilningi stafar samfélaginu enda ávallt viss hætta af slíkum brotum. Hafi einstaklingur sem hefur hlotið hér alþjóðlega vernd gerst sekur um brot við landslög með ítrekuðum hætti telur 1. minni hluti ljóst að hann hafi rofið það samkomulag sem gert er við hann með veitingu alþjóðlegrar verndar. Um leið telur 1. minni hluti að alþjóðlegar skuldbindingar geti ekki takmarkað sjálfsagðan rétt íslenskra stjórnvalda til að bregðast við vegna ítrekaðra brota.
    Fyrsti minni hluti leggur einnig til að breytingartillögur sem lagðar eru til í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar á þskj. 769 verði felldar. Í áliti meiri hlutans er lagt til að stjórnvöldum verði áfram skylt að taka afstöðu til þess hvort veita eigi dvalarleyfi vegna mannúðarsjónarmiða þegar alþjóðleg vernd er afturkölluð á grundvelli e- eða f-liðar 1. mgr. 48. gr. laganna sem varða breytt mat á aðstæðum í heimaríki. Samkvæmt 2. málsl. 4. mgr. 48. gr. gildandi laga um útlendinga ber stjórnvöldum við afturköllun alþjóðlegrar verndar að taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. og leggur 1. minni hluti til að þessi skylda verði felld brott líkt og lagt er til að verði gert með upphaflegu frumvarpi.
    Fyrsti minni hluti sér einnig ástæðu til þess að hvetja til þess að fylgst verði náið með þróun hinnar nýju tegundar af dvalarleyfi sem kveður á um umborna dvöl. Ástæða kann að vera til að hafa áhyggjur af því að dvalarleyfið bindi í raun hendur íslenskra stjórnvalda þegar kemur að því að flytja einstaklinga úr landi sem eiga að vera farnir. Þegar það gerist ítrekað að aðstæður í heimaríki koma í veg fyrir brottvísun einstaklinga, sem þó á að brottvísa samkvæmt lögum, er mikilvægt að íslensk stjórnvöld gefist ekki upp á að gæta réttar síns gagnvart slíku þrátefli. Með útgáfu sérstaks dvalarleyfis fyrir þessar aðstæður kann að vera dregið úr hvata fyrir stjórnvöld til að tryggja lögmæta brottvísun einstaklinga.

Breytingartillaga.
Heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur hefur sætt nálgunarbanni eða framið ítrekuð afbrot (a-liður 3. gr.).
    Í a-lið 3. gr. frumvarpsins er kveðið á um heimild til að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir sérstaklega alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu.
    Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að einnig sé unnt að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar í öðrum tilvikum þegar útlendingur getur verið hættulegur samfélaginu. Á það í fyrsta lagi við ef hann hefur sætt nálgunarbanni enda líklegt að hætta stafi af einstaklingi í þeirri stöðu. Í öðru lagi ef útlendingur hefur ítrekað framið afbrot þótt hvert og eitt þeirra teljist ekki sérstaklega alvarlegt eins og mælt er fyrir um í ákvæði upphaflegs frumvarps. Fyrsti minni hluti telur þannig að útlendingur geti einnig talist hættulegur samfélaginu ef hann fremur t.d. ítrekað þjófnað, eignarspjöll, ofbeldisverk, húsbrot eða ávana- og fíkniefnalagabrot. Í þeim tilvikum væri ekki um sérstaklega alvarlegt afbrot að ræða í skilningi frumvarpsins en 1. minni hluti telur þó slíkan einstakling geta verið hættulegan samfélaginu. Um leið leggur 1. minni hluti til að fellt verði brott orðið „gildar“ (ástæður) enda sé mikilvægt fyrir stjórnvöld að lögin veiti þeim rúma heimild til að leggja mat á ástæður aðgerða af þessum toga.
    Fyrsti minni hluti áréttar í þessu samhengi að hafi útlendingur ítrekað brotið gegn landslögum hefur hann rofið það traust sem íslenskt samfélag sýnir honum með veitingu alþjóðlegrar verndar.
    Með vísan til þessa leggur 1. minni hluti til breytingu á a-lið 3. gr. frumvarpsins þess efnis að afturköllun veitingar alþjóðlegrar verndar geti einnig átt sér stað í tilvikum þegar útlendingur hefur sætt nálgunarbanni eða brotið ítrekað gegn íslenskum hegningarlögum eða lögum um ávana- og fíkniefni.
    Með vísan til alls framangreinds leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Efnismálsgrein a-liðar 3. gr. orðist svo:
    Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot eða hann hefur sætt nálgunarbanni og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Einnig er unnt að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef útlendingur hefur framið ítrekuð afbrot gegn almennum hegningarlögum eða lögum um ávana- og fíkniefni og verður af þeim sökum talinn hættulegur samfélaginu.

Alþingi, 27. júní 2025.

Snorri Másson,
frsm.
Guðrún Hafsteinsdóttir. Jón Pétur Zimsen.