Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 796  —  215. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).

Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.


    Við 1. umræðu málsins var lögð fram tillaga til breytingar á frumvarpi þessu af hálfu þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Í kjölfar framlagningar tillögunnar kom í ljós formgalli á henni og því telur 1. minni hluti nefndarinnar mikilvægt að leggja hana fram aftur með breytingum. Tillagan miðar að því að hækkanir hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði taki til þeirra sem eiga rétt til greiðslna en miðist ekki við fæðingardag barns eins og verið hefur.
    Í stefnuræðu forsætisráðherra kom fram að meðal fyrstu breytinga nýrrar ríkisstjórnar á fæðingarorlofskerfinu yrðu að tryggja ætti að hærri greiðslur gangi til allra foreldra sem eru í orlofi, óháð fæðingardegi barns. Í ljósi þess að engin frumvörp hafa verið lögð fram af ríkisstjórninni sem tekur á þessu réttlætismáli telur 1. minni hlut mikilvægt að leggja fram tillöguna og grípa þannig þá foreldra sem eftir sitja með lægri greiðslur einungis vegna þess að börn þeirra voru fædd fyrir 1. janúar sl. Markmið breytingarinnar er að bæta hag foreldra og þar með barna þeirra og mun hún því fela í sér jákvæðar breytingar fyrir fjölburaforeldra, þeirra sem veikjast á meðgöngu en einnig allra annarra foreldra sem rétt eiga til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Er það því ljóst að breytingarnar munu hafa bein áhrif á þá hagsmuni sem frumvarpinu er ætlað að verja.
    Í kjölfar þess að fyrri ríkisstjórn og Samband íslenskra sveitarfélaga boðuðu sameiginlegar aðgerðir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði var lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof vorið 2024. Meðal þeirra breytinga sem þá lagðar voru fram var hækkun á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði úr 600.000 kr. á mánuði í 900.000 kr. í þremur áföngum. Við meðferð málsins á Alþingi var samþykkt breyting á fyrstu hækkun hámarksgreiðslna upp í 700.000 kr. og tók hún til allra foreldra í fæðingarorlofi hinn 1. apríl 2024. Að mati 1. minni hluta er mikilvægt að í framtíðinni muni allar hækkanir á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði taka til þeirra sem eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði en ekki sé miðað við fæðingardag barns, það tryggi jafnræði milli foreldra en ekki síður barna til að eiga í samvistum við báða foreldra á mikilvægum tíma í lífi hverrar fjölskyldu.
    Að öðru leyti telur 1. minni hluti að með frumvarpinu séu lagðar til jákvæðar og mikilvægar breytingar fyrir fjölburaforeldra og foreldra sem veikjast á meðgöngu. Mikilvægt er að þau kerfi sem eru til staðar grípi þá sem þurfi á þeim að halda og ljóst er að frumvarpið er lagt til með það að leiðarljósi.

    Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Á eftir 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
    Við 1. mgr. 24. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Hækkanir á mánaðarlegum greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði taka til allra foreldra sem rétt eiga til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði þegar hækkanir taka gildi. Ekki skal miða hækkanir við fæðingardag barns.

Alþingi, 28. júní 2025.

Rósa Guðbjartsdóttir,
frsm.
Njáll Trausti Friðbertsson.