Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 801  —  413. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um Evróputilskipun um fráveitumál.


     1.      Hver er staða innleiðingar tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/3019 um hreinsun skólps frá þéttbýli á Íslandi og hvaða vinnu hefur ráðuneytið hafið í tengslum við undirbúning hennar?
    Ný tilskipun (ESB) 2024/3019 um hreinsun skólps frá þéttbýli var birt 12. desember sl. og tók hún gildi í ESB 1. janúar 2025.
    Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar 91/271/EBE um hreinsun skólps frá þéttbýli, sem þegar er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og var innleidd hér á landi árið 1994 með reglugerð nr. 48/1994, nú reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp.
    Markmið nýrrar tilskipunar er áfram að vernda umhverfið gegn mengun skólps til viðbótar við að innleiða strangari reglur um hreinsun og víkka gildissviðið þannig að það nái til minni þéttbýlisstaða og fleiri mengunarefna, þar á meðal örmengunarefna og örplasts. Gerðin tók breytingum frá því hún var kynnt sem tillaga og þar til hún tók gildi, m.a. voru þar breytingar sem líklega eru jákvæðar fyrir Ísland.
    Umrædd gerð er nú til skoðunar á vettvangi EFTA-ríkjanna og er mikilvægt að gæta vel að hagsmunum Íslands við upptöku hennar í EES-samninginn. Undirbúningur innleiðingar er á frumstigi og mun eiga sér stað samhliða undirbúningi upptöku gerðarinnar, en gerðin verður ekki innleidd fyrr en ásættanleg niðurstaða liggur fyrir um upptöku hennar í EES-samninginn.
    Framkvæmdastjórn ESB lagði þann 26. október 2022 fram tillögur um ítarlegri og víðtækari reglur um fráveitur sem hluta af vinnu að nýrri tilskipun um hreinsun skólps frá þéttbýli. Gerðin var kynnt af hálfu framkvæmdastjórnarinnar í opnu samráðsferli frá 27. október 2022 til 14. mars 2023.
    Ísland hefur unnið að þessu máli síðan tillagan kom fram og komið áherslum sínum á framfæri í löggjafarferlinu, með athugasemdum og ábendingum frá ráðuneytinu, frá Samorku og Sambandi íslenskra sveitarfélaga sameiginlega og frá sveitarstjórnarvettvangi EFTA. Unnið var með haghöfum, m.a. Samorku og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sem og innviðaráðuneytinu og Umhverfis- og orkustofnun (þáverandi Umhverfisstofnun). Í athugasemdum Íslands var bent á sérstöðu Íslands hvað varðar viðtaka og strjálbýli og að kröfur um hreinsun ættu frekar að miða við ástand umhverfisins í stað þess að gerðar séu sömu tæknilegu kröfur óháð aðstæðum og að ráðast ætti í aðgerðir til að draga úr mengun við uppruna. Í minnisblaði 17. mars 2023 frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu til utanríkismálanefndar Alþingis var kynning á tillögu framkvæmdastjórnar ESB að endurskoðaðri fráveitutilskipun, afstöðu Íslands og stöðu mála.
    Í kjölfar þess að ný gerð öðlaðist gildi í ESB hafa EFTA-ríkin innan EES unnið að greiningu gerðarinnar og mati á áhrifum. Í því felst að greina efnisþætti gerðarinnar út frá hagsmunum ríkjanna og meta þörf fyrir aðlaganir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.
    Gera má ráð fyrir að aukinn þungi færist í vinnuna við upptöku gerðarinnar á vettvangi EFTA-ríkjanna innan EES á haustmánuðum, þ.m.t. viðræður við framkvæmdastjórn ESB um aðlaganir.
    Komið verður inn á nokkra þætti í undirbúningsvinnu stjórnvalda í svari undir 2. og 3. tölul. þessarar fyrirspurnar. Þá liggur fyrir að átt verður samráð við Alþingi um upptökuna gerðarinnar skv. 5. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála á haustmánuðum.

     2.      Hefur verið lagt mat á hvaða breytingar verði nauðsynlegt að gera á íslenskri löggjöf og framkvæmd fráveitumála til að uppfylla skilyrði nýju tilskipunarinnar?
    Íslensk stjórnvöld hafa unnið að slíku mati síðan tillagan kom fyrst fram og komið áherslum sínum á framfæri í löggjafarferli ESB, eins og fram kemur hér að framan.
    Innleiðing nýju tilskipunarinnar kallar á nýja reglugerð um hreinsun skólps í stað gildandi reglugerðar. Þar er að finna víðtæk ákvæði og nýja nálgun um framlengda framleiðendaábyrgð og landsbundna framkvæmdaáætlun sem er stefnumörkun um fráveitumál og á að uppfæra á sex ára fresti. Tilskipunin miðar að því að vernda heilsu og efla umhverfisvernd með því að innleiða strangari reglur um hreinsun og víkka gildissviðið þannig að það nái til minni þéttbýlisstaða og fleiri mengunarefna, þar á meðal örmengunarefna og örplasts. Þannig er grunnur tilskipunarinnar í grundvallaratriðum sá sami og þeirrar fyrri en verið er að bregðast við ýmsum nýjum áskorunum, svo sem losun á öðrum mengunarvöldum, svo sem örplasti, fosfór, köfnunarefni, öðrum forgangsefnum og lyfjaleifum, hreinsun á ofanvatni og hreinsun frá þéttbýli sem losar yfir 1.000 persónueiningar (var 2.000 persónueiningar), auk þess sem tekið er mið af mengunarbótareglunni og stefnt að orkuhlutleysi fráveitumannvirkja.
    Víðtækar reglugerðarheimildir eru til staðar, m.a. í lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og í lögum nr. 9/2009, um uppbyggingu og rekstur fráveitna, og mörg ákvæði nýju tilskipunarinnar rúmast þar innan. Þó eru líkur á því að innleiðing tilskipunarinnar kalli á einhverjar lagabreytingar til að tryggja styrka lagastoð. Þá er talin þörf á að skoða tengsl tilskipunarinnar við lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna, sem m.a. fjalla um hlutverk sveitarfélaga þegar kemur að fráveitu. Skoða þarf hvort samræma þurfi ákvæði þessara tveggja laga og tengja á milli þeirra. Innleiðing tilskipunarinnar kallar auk þess á efnislegar breytingar á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna. Auk framangreinds er ljóst að setja þarf ákvæði um framlengda framleiðendaábyrgð, í samræmi við tilskipunina, í löggjöf og taka þarf ákvörðun með hvaða hætti slíkt kerfi yrði hér á landi.
    Mikilvægt er að vinna náið með samstarfsaðilum og haghöfum vegna þessa undirbúnings. Ráðuneytið hefur unnið með innviðaráðuneytinu og Umhverfis- og orkustofnun sem og Samorku og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Halda þarf þessari samvinnu markvisst áfram. Til er samráðshópur um fráveitur sem framangreindir eiga aðild að og vilji ráðuneytisins stendur til að virkja þann vettvang betur. Þegar gerðin var í samráðsferli innan ESB var einnig haldinn fundur með atvinnulífinu og ljóst er að æskilegt er að atvinnulífið komi að þeirri vinnu sem er framundan í sambandi við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.

     3.      Hvaða áhrif er búist við að tilskipunin hafi á sveitarfélög með tilliti til fjárfestinga, rekstrar og framkvæmda?
    Reglur á sviði fráveitna hafa mikil áhrif á sveitarfélögin sem bera ábyrgð á uppbyggingu og rekstri þeirra. Á Íslandi mun innleiðing tilskipunarinnar að óbreyttu hafa áhrif á fjölda sveitarfélaga sem ábyrgðaraðila fráveitna í þéttbýli. Áhrifin snúa fyrst og fremst að nauðsynlegum breytingum á fráveitukerfum vegna aukinna krafna til hreinsunar, aðgengis almennings að hreinlætisaðstöðu, eftirlits, upplýsingagjafar og stafrænnar þróunar. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur látið meta viðbótarkostnað vegna aukinna krafna sem ný tilskipun felur í sér og er kostnaðurinn áætlaður á bilinu 49 til 81 milljarður kr. á næstu tveimur áratugum á verðlagi í mars 2025. Ljóst er að þar sem gerðar eru kröfur um framlengda framleiðendaábyrgð verður kostnaður við uppbyggingu og rekstur í einhverjum tilfellum lægri fyrir sveitarfélög þar sem t.d. kostnaður vegna aukinna krafna um svokallaða fjögurra þrepa hreinsun ætti að mestu leyti að falla á mengunarvald.
    Ráðuneytið mun einnig láta gera ábatagreiningu og m.a. vera í samtali við Noreg í því sambandi og gerir ráð fyrir að fá aðstoð frá rannsóknarmiðstöð ESB (e. Joint Research Center) til að tryggja að greiningin sé sambærileg þeirri sem gerð var fyrir Evrópusambandsríkin. Þetta er lykilþáttur í hagsmunagæslu, þ.e. að hægt verði að sýna fram á ábata og kostnað Íslands á samanburðarhæfan hátt við ESB-ríkin, og fyrir komandi viðræður við framkvæmdastjórn ESB um aðlaganir og útfærslu upptöku á tilskipuninni.

     4.      Hvenær má vænta þess að tilskipunin verði innleidd í íslensk lög á Alþingi?
    Miðað við núverandi stöðu má ætla að komið verði að upptöku gerðarinnar í EES-samninginn fyrri hluta árs 2027. Í kjölfarið verða lögð fram frumvörp til innleiðingar. Þar sem upptaka gerðarinnar krefst lagabreytinga mun ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku hennar í EES-samninginn alltaf verða tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Það þýðir að gerðin tekur ekki gildi gagnvart Íslandi fyrr en þeim fyrirvara er aflétt að fengnu samþykki Alþingis.
    Gera má ráð fyrir því að staða mála varðandi gerðina verði aftur kynnt utanríkismálanefnd Alþingis með minnisblaði í haust.