Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 802 — 246. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um umfang upplýsingatækni hjá ríkinu.
1. Hversu margir aðilar kaupa inn hvers kyns vörur eða þjónustu á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana?
Tafla 1. Fjöldi einstaklinga sem kaupa inn vörur og/eða þjónustu.
| Stofnun | Fjöldi |
| Mennta- og barnamálaráðuneyti, aðalskrifstofa | Einn |
| Barna- og fjölskyldustofa | Þrír |
| Borgarholtsskóli | Einn |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | Einn |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Einn |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Einn |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Einn |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Tveir |
| Fjölbrautaskólinn Ármúla | Þrír |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Tveir |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Einn |
| Flensborgarskóli | Tveir |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Einn |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Einn |
| Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | Einn |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Einn |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Tveir |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Einn |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Tveir |
| Menntaskólinn á Akureyri | Tveir |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Tveir |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Tveir |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Tveir |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Einn |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Einn |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Fjórir |
| Menntaskólinn við Sund | Tveir |
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | Sjö |
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | Einn |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Einn |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Tveir |
2. Hefur ráðuneytið og undirstofnanir þess á að skipa sérhæfðu starfsfólki vegna innkaupa á upplýsingatækni eða stafrænna mála?
Tafla 2. Sérhæft starfsfólk vegna innkaupa á upplýsingatækni og stafrænna mála.
| Stofnun | Fjöldi |
| Mennta- og barnamálaráðuneyti, aðalskrifstofa | Nei |
| Barna- og fjölskyldustofa | Já |
| Borgarholtsskóli | Nei |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | Já |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Já |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Nei |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Já |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Já |
| Fjölbrautaskólinn Ármúla | Já |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Já |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Já |
| Flensborgarskóli | Nei |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Já |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Já |
| Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | Já |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Já |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Já |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Já |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Já |
| Menntaskólinn á Akureyri | Já |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Já |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Já |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Já |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Já |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Nei |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Já |
| Menntaskólinn við Sund | Nei |
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | Já |
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | Já |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Já |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Já |
3. Hver var heildarrekstrarkostnaður og fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess árin 2021, 2022, 2023 og 2024 vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaðarstöð og því hvort um er að ræða fjárfestingu eða rekstur. Einnig er óskað eftir að sá hluti rekstrar- og fjárfestingarkostnaðar sem telst vöru- eða þjónustukaup verði flokkaður eftir tegund innkaupa (lausafjárkaup, útboð, rammasamningar o.s.frv.) og hvort þau kaup voru með aðstoð Ríkiskaupa (Fjársýslunnar) eða annarra og þá hverra.
Hér á eftir fara upplýsingar um heildarrekstrarkostnað og fjárfestingarkostnað mennta- og barnamálaráðuneytis og undirstofnana þess fyrir árin 2021–2024 vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála. Rétt er að vekja athygli á eftirfarandi atriðum:
* Við breytingar á ráðuneytinu árið 2022 urðu breytingar á fjölda undirstofnana í samræmi við flutning málefna. Fyrir breytingar voru undirstofnanir 51 talsins en þær eru 30 í dag. Í ljósi þess eru upplýsingar takmarkaðar við þær stofnanir sem heyra í dag undir málefnasvið ráðuneytisins.
* Frá árinu 2022 teljast Barna- og fjölskyldustofa og Ráðgjafar- og greiningarstöð til undirstofnana mennta- og barnamálaráðuneytis, en áður voru þær undirstofnanir félagsmálaráðuneytis.
* Menntamálastofnun var lögð niður 30. mars 2024 og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tók til starfa 1. apríl sama ár.
Tafla 3.1. Rekstrar- og fjárfestingarkostnaður.
| Stofnun | Tegund | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| Mennta- og barnamálarn., aðalskrifstofa | Rekstur | 47,9 | 40,7 | 51,1 | 62,1 |
| Mennta- og barnamálarn., aðalskrifstofa | Fjárf. | 2,0 | 3,4 | 0,7 | 26,0 |
| Samtals: | 49,9 | 44,2 | 51,8 | 88,0 | |
| Barna- og fjölskyldustofa | Rekstur | - | 41,4 | 51,8 | 44,6 |
| Barna- og fjölskyldustofa | Fjárf. | - | 9,6 | 3,5 | 6,1 |
| Samtals: | - | 51,0 | 55,3 | 50,6 | |
| Barnamál, ýmis verkefni* | Rekstur | - | 41,4 | 38,0 | 76,0 |
| Samtals: | - | 41,4 | 38,0 | 76,0 | |
| Borgarholtsskóli | Rekstur | 33,0 | 35,6 | 34,7 | 37,3 |
| Borgarholtsskóli | Fjárf. | 3,0 | 7,3 | 10,7 | 13,4 |
| Samtals: | 36,0 | 42,9 | 45,4 | 50,6 | |
| Fjölbrautaskóli Norðurl. vestra | Rekstur | 7,2 | 8,2 | 12,8 | 11,2 |
| Fjölbrautaskóli Norðurl. vestra | Fjárf. | 5,2 | 3,2 | 11,2 | 1,5 |
| Samtals: | 12,4 | 11,4 | 24,0 | 12,7 | |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Rekstur | 3,7 | 4,1 | 5,9 | 5,6 |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Fjárf. | 0,3 | 2,5 | -0,2 | 1,0 |
| Samtals: | 4,0 | 6,6 | 5,7 | 6,6 | |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Rekstur | 9,9 | 9,7 | 14,9 | 16,7 |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Fjárf. | 3,7 | 3,8 | 3,6 | 4,4 |
| Samtals: | 13,6 | 13,5 | 18,5 | 21,1 | |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Rekstur | 11,3 | 11,3 | 16,4 | 16,3 |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Fjárf. | 8,2 | 9,5 | 6,2 | 19,6 |
| Samtals: | 19,6 | 20,8 | 22,5 | 36,0 | |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Rekstur | 15,0 | 16,2 | 19,4 | 22,4 |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Fjárf. | 4,3 | 6,3 | 4,9 | 6,1 |
| Samtals: | 19,3 | 22,5 | 24,3 | 28,4 | |
| Fjölbrautaskólinn Ármúla | Rekstur | 16,3 | 21,1 | 25,9 | 24,4 |
| Fjölbrautaskólinn Ármúla | Fjárf. | 8,6 | 21,4 | 18,9 | 18,3 |
| Samtals: | 24,9 | 42,4 | 44,8 | 42,8 | |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Rekstur | 25,7 | 31,0 | 37,4 | 42,6 |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Fjárf. | 14,1 | 13,8 | 9,9 | 10,4 |
| Samtals: | 39,8 | 44,8 | 47,3 | 53,0 | |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Rekstur | 14,5 | 12,7 | 15,8 | 16,7 |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Fjárf. | 3,0 | 1,1 | 5,9 | 9,7 |
| Samtals: | 17,4 | 13,8 | 21,6 | 26,4 | |
| Flensborgarskóli | Rekstur | 7,4 | 8,5 | 14,6 | 24,1 |
| Flensborgarskóli | Fjárf. | 1,9 | 8,1 | 0,5 | 2,3 |
| Samtals: | 9,2 | 16,5 | 15,1 | 26,4 | |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Rekstur | 6,3 | 7,3 | 8,0 | 9,4 |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Fjárf. | 1,0 | 2,2 | 2,1 | 2,2 |
| Samtals: | 7,4 | 9,5 | 10,1 | 11,5 | |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Rekstur | 3,3 | 3,6 | 4,6 | 4,8 |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Fjárf. | 3,2 | 1,6 | 4,3 | 2,9 |
| Samtals: | 6,4 | 5,2 | 8,9 | 7,7 | |
| Framhaldssk. í A-Skaftafellssýslu | Rekstur | 7,2 | 6,3 | 10,0 | 9,4 |
| Framhaldssk. í A-Skaftafellssýslu | Fjárf. | 1,5 | 2,2 | 1,5 | 3,6 |
| Samtals: | 8,7 | 8,5 | 11,6 | 13,0 | |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Rekstur | 3,7 | 4,2 | 5,4 | 7,4 |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Fjárf. | 4,2 | 1,4 | -0,4 | 7,3 |
| Samtals: | 7,9 | 5,6 | 5,0 | 14,6 | |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Rekstur | 9,6 | 9,2 | 11,5 | 13,6 |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Fjárf. | 0,6 | 6,0 | -0,1 | 0,1 |
| Samtals: | 10,2 | 15,2 | 11,4 | 13,6 | |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Rekstur | 16,2 | 22,6 | 23,1 | 26,2 |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Fjárf. | 1,9 | 8,9 | 6,4 | 3,0 |
| Samtals: | 18,0 | 31,5 | 29,5 | 29,2 | |
| Menntamálastofnun | Rekstur | 105,1 | 112,6 | 85,8 | 17,2 |
| Menntamálastofnun** | Fjárf. | 36,5 | 1,6 | 1,6 | -31,9 |
| Samtals: | 141,5 | 114,3 | 87,4 | -14,7 | |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Rekstur | 7,9 | 6,0 | 7,0 | 9,3 |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Fjárf. | 0,1 | 0,3 | -0,3 | 1,3 |
| Samtals: | 7,9 | 6,3 | 6,7 | 10,6 | |
| Menntaskólinn á Akureyri | Rekstur | 9,4 | 9,6 | 12,1 | 13,5 |
| Menntaskólinn á Akureyri | Fjárf. | 4,7 | 3,4 | 6,2 | 5,2 |
| Samtals: | 14,2 | 12,9 | 18,3 | 18,7 | |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Rekstur | 4,1 | 7,8 | 7,0 | 10,7 |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Fjárf. | 5,1 | 1,7 | 1,9 | 3,3 |
| Samtals: | 9,1 | 9,5 | 8,9 | 14,0 | |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Rekstur | 10,9 | 16,1 | 14,8 | 19,7 |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Fjárf. | 6,7 | 4,2 | 0,2 | 3,7 |
| Samtals: | 17,6 | 20,3 | 14,9 | 23,4 | |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Rekstur | 7,1 | 7,5 | 6,9 | 8,2 |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Fjárf. | 2,8 | 3,6 | 4,4 | 3,9 |
| Samtals: | 9,8 | 11,0 | 11,3 | 12,1 | |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Rekstur | 12,9 | 14,8 | 18,2 | 16,3 |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Fjárf. | 1,3 | 5,0 | 3,3 | 2,4 |
| Samtals: | 14,2 | 19,8 | 21,5 | 18,7 | |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Rekstur | 22,0 | 26,1 | 28,1 | 23,2 |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Fjárf. | 2,1 | 3,6 | -0,4 | -0,5 |
| Samtals: | 24,1 | 29,8 | 27,7 | 22,7 | |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Rekstur | 15,0 | 12,6 | 16,5 | 20,2 |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Fjárf. | 0,1 | 8,2 | 6,9 | 8,9 |
| Samtals: | 15,0 | 20,8 | 23,4 | 29,1 | |
| Menntaskólinn við Sund | Rekstur | 7,4 | 11,0 | 13,3 | 15,1 |
| Menntaskólinn við Sund | Fjárf. | 3,6 | 5,0 | 1,4 | 2,6 |
| Samtals: | 11,0 | 16,0 | 14,6 | 17,7 | |
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | Rekstur | - | - | - | 131,9 |
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | Fjárf. | - | - | - | 12,1 |
| Samtals: | - | - | - | 144,1 | |
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | Rekstur | - | 27,2 | 28,8 | 33,0 |
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | Fjárf. | - | 10,4 | 0,5 | 3,1 |
| Samtals: | - | 37,6 | 29,3 | 36,1 | |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Rekstur | 5,9 | 5,5 | 6,7 | 9,2 |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Fjárf. | 3,3 | 5,0 | 0,8 | 2,4 |
| Samtals: | 9,1 | 10,5 | 7,5 | 11,6 | |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Rekstur | 12,1 | 31,3 | 28,0 | 27,2 |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Fjárf. | 22,6 | 5,5 | 2,9 | -8,8 |
| Samtals: | 34,8 | 36,8 | 30,9 | 18,5 | |
| Allar stofnanir og verkefnaliður í umsjón ráðuneytisins | Tegund | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| Allar stofnanir | Rekstur | 457,7 | 623,4 | 674,5 | 825,4 |
| Allar stofnanir | Fjárf. | 155,4 | 169,7 | 118,9 | 145,5 |
| Samtals: | 613,1 | 793,0 | 793,4 | 970,9 |
** Menntamálastofnun var lögð niður 30. mars 2024 og fjárfesting í gagnagrunni var færð undir umsjón mennta- og barnamálaráðuneytis, aðalskrifstofu.
Tafla 3.2. Flokkun kaupa á vörum og þjónustu vegna upplýsingatækni og stafrænna mála.
| Stofnun | Svar |
| Mennta- og barnamálaráðuneyti, aðalskrifstofa | Ávallt er leitast við að nýta rammasamninga sé þess nokkur kostur. Tölvubúnaður er leigður af Umbru, rekstrarfélagi Stjórnarráðsins. |
| Barna- og fjölskyldustofa | Öll innkaup á þessum tegundum eru innan rammasamninga en hafa ekki farið í gegnum útboð. Innkaupin hafa ekki farið fram með aðstoð Ríkiskaupa (Fjársýslunnar). |
| Borgarholtsskóli | Öll vörukaup eru í gegnum rammasamninga ríkisins. Ef um stærri útboð er að ræða hefur verið leitað til Ríkiskaupa. Þó hefur það ekki verið á þessu tímabili. |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | Skólinn hefur notað blöndu af rammasamningum, útboðum og lausafjárkaupum. Skólinn hefur ekki þurft aðstoð Ríkiskaupa. |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Allt keypt innan rammasamninga nema það sem Háskóli Íslands selur skólanum (rekstur Pólstjörnunnar). |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Stærstur hluti útgjalda vegna innkaupa á tölvubúnaði er í gegnum örútboð í samvinnu við Fjársýsluna eða í gegnum rammasamninga, líklega milli 90–95%. Stærstur hluti innkaupa á hugbúnaði eru fastar áskriftir með sameiginlegum innkaupum sem og notkun á hugbúnaðarlausnum. |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Vörukaup fara fram í gegnum rammasamninga. Keypt þjónusta tengist yfirleitt ekki samningum né útboðum. Engin aðkoma Ríkiskaupa. |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Vörukaup eru almennt lausafjárkaup. Aðkeypt þjónusta, utan rekstrarsamninga, er alfarið á grundvelli útboða. Stærstur hluti framangreindra liða eru á grundvelli miðlægra samninga sem Ríkiskaup höfðu aðkomu að fyrir hönd framhaldsskóla. |
| Fjölbrautaskólinn Ármúla | Alltaf er leitast við að skipta við birgja sem eru aðilar að rammasamningum. Undantekningar ef varan er mjög sértæk og rammasamningsfyrirtæki eiga ekki slíka vöru. |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Rammasamingar 1%, samningar ríkis Inna, Orri, Landskerfi bókasafna, Microsoft og menntaský 34%, gamlir samningar vegna prentaraleigu 23% og lausafjárkaup 42%. |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Lausafjárkaup: 24,5%. Rammasamningar: 26,8%. Útboð: 9,4%. Ríkissamningur: 39,3%. |
| Flensborgarskóli | Rammasamningar: 38%. Þjónustusamningar: 58%. Lausafjárkaup: 4%. Engin aðkoma Ríkiskaupa. |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Allar tölvu- og tæknivörur keyptar í gegnum tilboð. Ekki hefur verið leitað til Ríkiskaupa. |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Alla jafna er leitað til aðila í rammasamningi þegar keypt er inn. Ríkiskaup hefur ekki aðstoðað við innkaup. |
| Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | Kaup fara nánast að öllu leyti í gegnum rammasamninga eða með aðstoð Ríkiskaupa. |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Tölvur og tölvubúnaður er allur keyptur í gegnum rammasamning. Kostnaður vegna aðkeyptrar þjónustu er á grundvelli miðlægra samninga sem Ríkiskaup höfðu aðkomu að fyrir hönd framhaldsskóla. |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Skólinn notar rammasamninga í öllum tilvikum ef þeir eru fyrir hendi. |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Stærsti hluti þjónustukaupa boðin út af skóla árið 2024. Eignakaup eru á grundvelli rammasamnings. Engin aðkoma Ríkiskaupa. |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Kaup fara nánast að öllu leyti í gegnum rammasamninga eða með aðstoð Ríkiskaupa. |
| Menntaskólinn á Akureyri | Kaup fara nánast að öllu leyti í gegnum rammasamninga. Hluti af fartölvum er endurnýjaður árlega á grundvelli útboðs. |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Eingöngu í gegnum útboð eða rammasamninga. Engin aðkoma Ríkiskaupa. |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Vörukaup: lausafjárkaup. Þjónusta: rammasamningar/ útboð. Tölvukaup: með aðstoð Ríkiskaupa. |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Að mestu leyti keypt í gegnum rammasamninga. Lítið hefur verið leitað til Ríkiskaupa. |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Vörukaup eru almennt lausafjárkaup. Aðkeypt þjónusta er almennt á grundvelli rekstrar- og leyfissamninga. Tölvukaup eru gerð innan rammasamninga, en ekki með aðstoð Ríkiskaupa. |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Kaup á vörum eru öll innan rammasamnings. |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Kaup á vörum eru um 46% í gegnum rammasamninga. Kaup á þjónustu eru um 61% í gegnum rammasamninga eða útboð. Fjárfestingar í tölvum og skjám er í 100% tilvika í gegnum rammasamninga eða örútboð. |
| Menntaskólinn við Sund | Vörukaup: rammasamningar 24% og lausafjárkaup 76%. Þjónusta: rammasamningar 62% og lausafjárkaup 38%. Fjárfestingar: rammasamningar 77% og lausafjárkaup 23%. Engin bein aðstoð frá Ríkiskaupum. |
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 74% af kostnaði þessara tegunda árið 2024 var gerður við fyrirtæki sem eru aðilar að rammasamningum og/eða í gegnum útboð. Innkaupaþjónusta Fjársýslunnar var lítið sem ekkert nýtt í innkaupum á upplýsingatækni og stafrænni þróun á árinu 2024. |
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | Öll innkaup sem eru möguleg í rammasamningi fara þar í gegnum þau fyrirtæki að langmestu leyti. Einstaka hlutir fara í gegnum aðra aðila, að hámarki 5%. Engin útboð hafa verið hjá í þessum hluta og því ekki fengin aðstoð frá Ríkiskaupum. Tölvuþjónusta er ekki í rammasamningum og því eru þeir aðilar valdir sérstaklega. |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Fjárfestingar eru í gegnum rammasamning. Annað eru lausafjárkaup. |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Næstum öll innkaup fara í gegnum rammasamninga. Stærri innkaup á þjónustu eru í gegnum útboð/verðkannanir og leitað til þeirra sem eru í rammasamningi. Einstaka kaup utan rammasamnings eru vegna þess að of mikið hefur munað á verði fyrirtækis utan rammasamnings miðað við fyrirtæki í rammasamningi. Önnur aðstoð frá Ríkiskaupum er lítil. |
4. Hvað starfar margt starfsfólk annars vegar og verktakar hins vegar á sviði upplýsingatækni eða stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
Tafla 4. Fjöldi starfsmanna á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála.
| Stofnun | Svar |
| Mennta- og barnamálaráðuneyti, aðalskrifstofa | Upplýsingatæknimál eru í umsjón Umbru, rekstrarfélags stjórnarráðsins. |
| Barna- og fjölskyldustofa | Einn starfsmaður vinnur á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála og leitað er eftir þörfum til eins verktaka að auki. |
| Borgarholtsskóli | Þrír verktakar. |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | Tveir starfsmenn. |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Einn starfsmaður í 25% stöðugildi. |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Einn starfsmaður í 50% stöðugildi. |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Einn starfsmaður/kerfisstjóri í 100% stöðugildi. |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Verktaki í 22% stöðugildi. |
| Fjölbrautaskólinn Ármúla | Þrír starfsmenn í samtals 265% stöðugildum. |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Einn starfsmaður í 100% stöðugildi. |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Enginn starfsmaður. |
| Flensborgarskóli | Stutt viðvera verktaka tvisvar í viku á grundvelli þjónustusamnings. |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Verktaki sinnir tilfallandi verkefnum á grundvelli þjónustusamnings. |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Einn starfsmaður í 55% stöðugildi. |
| Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | Einn starfsmaður og einn verktaki sem sinnir tilfallandi verkefnum. |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Einn starfsmaður í 20% stöðugildi. |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Þrír starfsmenn, samhliða öðrum verkefnum í skólanum. |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Einn verktaki starfar á sviði upplýsingatækni- og stafrænna mála. |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Einn starfsmaður í 50% stöðugildi. |
| Menntaskólinn á Akureyri | Þrír starfsmenn, auk verktaka í samtals 75% stöðugildi. |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Einn starfsmaður í 100% stöðugildi. |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Einn starfsmaður í 20% stöðugildi, auk tilfallandi ráðgjafar verktaka. |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Verktakar sinna tilfallandi verkefnum á grundvelli þjónustusamnings. |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Tveir starfsmenn í samtals 130% stöðugildi, auk tilfallandi ráðgjafar verktaka. |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Einn starfsmaður í 50% stöðugildi. |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Einn starfsmaður í 100% stöðugildi. |
| Menntaskólinn við Sund | Einn starfsmaður í 100% stöðugildi, auk tilfallandi ráðgjafar verktaka. |
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | Alls sinna þessum verkefnum 11 starfsmenn í samtals átta stöðugildum, auk verktaka í samtals tveimur stöðugildum. |
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | Einn starfsmaður sem sinnir þessu innan stofnunar í um 20% starfi en svo eru tveir verktakar sem eru með u.þ.b. 20–30 tíma á mánuði. |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Einn starfsmaður í 50% stöðugildi. |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Upplýsingatæknifulltrúi í 50% starfi, en starfsmenn sinna tilfallandi verkefnum samhliða öðrum störfum. Verktakar sjá um kerfisstjórn og Menntaský/HÍ sér um Office-hugbúnaðinn. Þjónustuaðili sinnir Moodle-þjónustu. |
5. Hversu margt fólk starfar við hugbúnaðargerð eða þróun, svo sem fram- eða bakendaforritun, á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
Tafla 5. Fjöldi starfsmanna á sviði hugbúnaðargerðar og -þróunar.
| Stofnun | Svar |
| Mennta- og barnamálaráðuneyti, aðalskrifstofa | Enginn |
| Barna- og fjölskyldustofa | Enginn |
| Borgarholtsskóli | Enginn |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | Enginn |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Einn í hlutastarfi |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Enginn |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Enginn |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Enginn |
| Fjölbrautaskólinn Ármúla | Enginn |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Enginn |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Enginn |
| Flensborgarskóli | Enginn |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Enginn |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Enginn |
| Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | Einn |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Enginn |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Enginn |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Enginn |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Enginn |
| Menntaskólinn á Akureyri | Enginn |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Enginn |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Tveir verktakar |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Enginn |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Enginn |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Enginn |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Enginn |
| Menntaskólinn við Sund | Verktaki |
| Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | Verktaki |
| Ráðgjafar- og greiningarstöð | Verktaki |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Enginn |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Enginn |