Ferill 444. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 804  —  444. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Sigurði Inga Jóhannssyni um húsnæðisvanda Kaffistofu Samhjálpar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hyggst ráðherra beita sér fyrir lausn á húsnæðisvanda Kaffistofu Samhjálpar? Ef svo er, með hvaða hætti?

    Ráðherra er vel kunnugt um þá stöðu sem blasir við Kaffistofu Samhjálpar í haust og tekur heils hugar undir að finna þurfi lausn á húsnæðisvanda kaffistofunnar sem fyrst svo tryggja megi áfram þá mikilvægu þjónustu sem þar er veitt.
    Ráðherra heimsótti kaffistofuna í maí síðastliðnum og átti þar gott samtal við framkvæmdastjóra Samhjálpar og upplýsti að hún myndi skoða hvort stjórnvöld gætu með einhverjum hætti komið kaffistofunni til aðstoðar. Með hvaða hætti slík aðstoð gæti litið út liggur ekki fyrir að svo stöddu.