Ferill 466. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 806 — 466. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um áminningar og tilsjónarmenn.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar áminningar voru veittar embættismönnum, forstöðumönnum ríkisstofnana og öðrum starfsmönnum ríkisins árin 2015–2024, skipt eftir ráðuneytum og undirstofnunum?
2. Hversu margar stofnanir ríkisins fengu skipaða tilsjónarmenn með rekstri eða annarri starfsemi árin 2015–2024, skipt eftir ráðuneytum og undirstofnunum?
Ekki er haldið miðlægt utan um upplýsingar af því tagi sem fyrirspurnin lýtur að. Þótt fjármála- og efnahagsráðuneytið fari almennt með starfsmannamál ríkisins felst ekki í því ábyrgð á áminningum til starfsmanna stofnana í öðrum ráðuneytum. Þetta svar við fyrirspurninni er því einskorðað við ráðuneytið sjálft og undirstofnanir þess.
Í þessu sambandi er ástæða til að benda á að engin sérstök ákvæði eru fyrir hendi í lögum um skipun tilsjónarmanna með rekstri ríkisstofnana á ábyrgð forstöðumanna. Hins vegar er í 35. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, kveðið á um að ef rekstur ríkisaðila er ekki í viðunandi horfi og upplýsingar um það eru ófullnægjandi að mati hlutaðeigandi ráðherra þá getur hann falið óháðum aðila að gera úttekt á starfseminni. Ráðherra ber þá að leggja mat á úttektina og tryggja að gripið verði til viðeigandi úrræða í rekstrinum. Úttekt slíks greiningaraðila hefur þó ekki áhrif á stjórnunarlegar skyldur viðkomandi forstöðumanns eða ábyrgð hans á fjármálum stofnunarinnar.
Fjármálaráðuneytið:
1. Engar áminningar hafa verið veittar forstöðumönnum né starfsmönnum á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.
Ríkisskattstjóri:
1. Ein áminning var veitt starfsmanni tollstjóra árið 2016. Ein áminning var veitt starfsmanni Ríkisskattstjóra árið 2018.
2. Ekki hefur verið skipaður tilsjónarmaður hjá ríkisskattstjóra á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE):
1. Tvær áminningar hafa verið veittar starfsmönnum frá sameiningu stofnananna í FSRE frá árinu 2021.
2. Ekki hefur verið skipaður tilsjónarmaður hjá Framkvæmdasýslunni á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins:
1. Engar áminningar hafa verið veittar starfsmönnum Umbru á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.
2. Ekki hefur verið skipaður tilsjónarmaður hjá Umbru á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.
Yfirskattanefnd:
1. Engin áminning hefur verið veitt hjá yfirskattanefnd á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.
2. Enginn tilsjónarmaður hefur verið skipaður hjá yfirskattanefnd á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.
Fjársýsla ríkisins:
1. Engar áminningar hafa verið veittar forstöðumönnum eða starfsfólki Fjársýslunnar á tímabilinu sem fyrirspurnin nær til.
2. Ekki hefur verið skipaður tilsjónarmaður hjá Fjársýslunni á því tímabili sem fyrirspurnin nær til.