Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 807  —  393. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini B Sæmundssyni um fullnustueignir Íbúðalánasjóðs.


     1.      Hversu margar fullnustueignir eignaðist Íbúðalánasjóður árlega 2008–2019, hvar voru þessar eignir og hvert var söluverð þeirra?
    Í eftirgreindri töflu má sjá yfirlit yfir fullnustueignir Íbúðalánasjóðs eftir söluári, brotið niður á landshluta. Taflan sýnir fjölda eigna og heildarfjárhæð söluandvirðis þeirra á því ári sem þær voru seldar. Í lok árs 2019 voru 18 fullnustueignir á bókum Íbúðalánasjóðs og í lok árs 2020, eða við uppskiptingu og niðurlagningu Íbúðalánasjóðs, voru fjórar fullnustueignir eftir sem fluttust á efnahag ÍL-sjóðs.
    Það myndi kalla á mjög umfangsmikla úrvinnslu gagna að setja upplýsingarnar fram eftir kaupári, samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, en ráðuneytið væntir þess að framsetningin í töflunni varpi nægilega skýru ljósi á málið.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Hverjir voru fyrri eigendur eignanna? Óskað er eftir upplýsingum um annars vegar einstaklinga og hins vegar fyrirtæki og eignarhald þeirra.
    Í þessum lið fyrirspurnarinnar er óskað eftir upplýsingum sem varða viðskipta- eða einkamálefni lántakenda. Þessar upplýsingar eru háðar sérstakri þagnarskyldu og því er ekki unnt að svara þessum lið fyrirspurnarinnar í skriflegu svari sem birt er opinberlega.
    Auk þess myndi það kalla á talsverða úrvinnslu gagna að taka saman ópersónugreinanlegar upplýsingar um fyrri eigendur, samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Vinna við að taka slíkar upplýsingarnar saman myndi útheimta meiri fyrirhöfn og taka lengri tíma en lög um þingsköp Alþingis gera ráð fyrir að sé varið í svör við skriflegum fyrirspurnum.
    Unnt er að benda á fyrri svör við fyrirspurnum um fullnustueignir Íbúðalánasjóðs (nú ÍL-sjóðs) sem varpa ljósi á umfang og þróun sölu fullnustueigna, staðsetningu eignanna sem og hverjir keyptu eignirnar:
     a.      Svar á 148. löggjafarþingi, þskj. 985, 218. mál, við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um sölu fullnustueigna Íbúðalánasjóðs:
                  1.      Hversu margar fullnustueignir seldi Íbúðalánasjóður árlega 2008–2017, hvar voru þessar eignir og hvert var heildarsöluverð á hverju ári?
                  2.      Hverjir voru kaupendur? Upplýsingar óskast um annars vegar einstaklinga og hins vegar fyrirtæki og eignarhald þeirra.

     b.      Svar á 150. löggjafarþingi, þskj. 1421, 577. mál, við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um kaupendur fullnustueigna Íbúðalánasjóðs:
                  1.      Hversu margar fullnustueignir seldi Íbúðalánasjóður árlega 2008–2019, hvar voru þessar eignir og hvert var heildarsöluverð á hverju ári?
                  2.      Hverjir voru kaupendur eignanna? Óskað er eftir upplýsingum um annars vegar einstaklinga og hins vegar fyrirtæki og eignarhald þeirra, einnig er óskað eftir afriti þinglýstra kaupsamninga þar sem Íbúðalánasjóður er afsalsgjafi og/eða lista yfir fasteignanúmer og söluverð hverrar fasteignar.