Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 813  —  488. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um yfirlýsingu um norræna málstefnu og skandinavísk tungumál.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hefur ráðherra eða ráðuneytið tekið afstöðu til yfirlýsingar um norræna málstefnu sem Norræna ráðherranefndin samþykkti í Stokkhólmi 2. maí 2024? Ef svo er, hver er sú afstaða? Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar eða hafa verið framkvæmdar til að fylgja yfirlýsingunni eftir?
     2.      Telur ráðherra að fyrirkomulag og vægi kennslu í skandinavískum tungumálum, þ.e. í dönsku, norsku og sænsku, í íslenskum grunn- og framhaldsskólum uppfylli þær skyldur sem Ísland hefur skv. 8. gr. Helsingforssamningsins og samkvæmt öðrum samþykktum, yfirlýsingum og ályktunum norrænna stofnana og stuðli með fullnægjandi hætti að því að íslenskir nemendur öðlist skilning á þessum tungumálum?
     3.      Hversu vel hafa íslenskir nemendur uppfyllt almenn hæfniviðmið í skandinavískum tungumálum sem kveðið er á um í aðalnámskrám grunnskóla og framhaldsskóla? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá 2015 til 2024.
     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir gagngerri endurskoðun á kennslu í skandinavískum tungumálum í íslenskum skólum með það að markmiði að styrkja færni nemenda til að skilja og nota þessi tungumál og efla menningartengsl í anda norræns samstarfs?


Skriflegt svar óskast.