Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 815 — 490. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um kennslu í grunnskólum.
Frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
1. Hvernig hefur framkvæmd lögbundins ytra mats á gæðum grunnskólastarfs, sbr. 38. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, verið háttað undanfarin fimm ár og hvernig er hún fjármögnuð næstu fimm ár? Hversu stórt hlutfall grunnskóla hefur hlotið ytra mat undanfarin fimm ár og hversu stórt hlutfall skóla hyggst ráðuneytið meta á þessu kjörtímabili?
2. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við ábendingum í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland um að gæði kennslu í íslenskum skólum sé ábótavant og að grunnfærni nemenda hraki hratt, en það ógnar hagvexti og velferð þjóðarinnar til lengri tíma?
3. Hvernig hyggst ráðherra efla kennara í umbótum á eigin starfi og bæta starfshætti með áherslu á bætta grunnfærni nemenda?
Skriflegt svar óskast.