Ferill 494. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 819  —  494. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um húsnæðismál endurhæfingarstofnana.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hver er staða vinnu starfshóps stjórnvalda um húsnæðismál endurhæfingarstofnana, sem var settur á fót á síðasta ári, í ljósi þess að ástand húsnæðismála þeirra hefur lengi verið alvarlegt og stór hluti húsnæðis Reykjalundar ónothæfur vegna myglu?
     2.      Hvað ætla stjórnvöld að gera til að leysa úr fyrrgreindu ástandi og tryggja að endurhæfingarstofnanir viðhaldi og byggi upp húsnæði á eðlilegan hátt þar sem ríkið hefur lengi reitt sig á að félagasamtök útvegi húsnæði fyrir þær?


Skriflegt svar óskast.