Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 821 — 448. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Pétri Zimsen um samninga við félagasamtök.
1. Hvaða félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamning við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár og hver var fjárhæð greiðslna úr ríkissjóði til þessara félaga á grundvelli slíkra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi, eðli samnings og ári.
Ráðherra gerir styrksamninga við félagasamtök skv. 42. gr laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og geta þeir falið í sér styrki til reksturs verkefna eða þjónustu sem talin er samfélagslega brýn. Fyrir frekari upplýsingar um styrkhafa og upphæðir styrkja áranna 2017– 2024 er vísað í svar ráðherra við fyrirspurn Þorsteins B Sæmundssonar um greiðslur til frjálsra félagasamtaka (þskj. 602, 362. mál) sem aðgengilegt er á vef Alþingis. 1 Upplýsingar um styrki til frjálsra félagasamtaka má einnig nálgast í ársskýrslum ráðherra á vef Stjórnarráðsins.
2. Hverjar voru heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölul. á sama tímabili og hvert var hlutfall samningsbundinna framlaga úr ríkissjóði af tekjum hvers þeirra á grundvelli umræddra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
3. Í hvaða erlenda styrktarsjóði, sem félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr, á málefnasviði ráðherra greiðir íslenska ríkið og hver var fjárhæð framlags Íslands í hvern þessara sjóða sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
4. Hversu háar fjárhæðir hafa íslensk félagasamtök á málefnasviði ráðherra samtals fengið úthlutað úr sjóðum sem íslenska ríkið greiddi í fyrrgreint tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
5. Hvert var hlutfall framlaga úr slíkum erlendum sjóðum af heildartekjum félagasamtaka sem hafa haft þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
Ráðuneytið tekur ekki saman upplýsingar um heildartekjur eða aðrar utanaðkomandi styrkveitingar til félagasamtaka sem fá styrk frá ráðuneytinu og þar af leiðandi getur ráðherra ekki svarað 2.–5. tölul. þessarar fyrirspurnar.
6. Ef upplýsingar um heildartekjur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, hefur verið óskað eftir slíkum upplýsingum við gerð samninganna?
Ráðuneytið hefur í þeim tilfellum sem það þykir nauðsynlegt óskað eftir frekari upplýsingum frá félagasamtökum í samhengi við styrkveitingar.
1 www.althingi.is/altext/156/s/0602.html