Ferill 458. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 822  —  458. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og búsetuúrræði.


     1.      Hvaða sveitarfélög hafa sinnt þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd á sl. fimm árum? Hvernig skiptist fjöldi umsækjenda á milli sveitarfélaga?
    Frá árinu 2022 hefur Vinnumálastofnun gert þjónustusamninga við Borgarbyggð, Hafnarfjarðarkaupstað, Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ og Vestmannaeyjabæ þess efnis að sveitarfélögin veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu. Í fyrrnefndum samningum var gert ráð fyrir að Borgarbyggð veitti allt að 40 umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu og Vestmannaeyjabær allt að 30 umsækjendum en gildistími þessara tveggja samninga er liðinn. Gildistími samninga við Hafnarfjarðarkaupstað, Reykjavíkurborg og Reykjanesbæ rennur út 31. júlí nk. en í þeim samningum er gert ráð fyrir að Hafnarfjarðarkaupstaður veiti allt að 100 umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu, Reykjavíkurborg allt að 300 umsækjendum og Reykjanesbær allt að 70 umsækjendum. Hvorki ráðuneytið né Vinnumálastofnun búa yfir upplýsingum um það sem spurt er um fyrir árið 2022.

     2.      Hvernig verður þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd háttað eftir að samningum við sveitarfélög sem áður sinntu þjónustunni hefur verið sagt upp?
    Vinnumálastofnun hefur frá árinu 2022 veitt umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu og þeir umsækjendur sem fengið hafa þjónustu hjá sveitarfélögum á grundvelli þjónustusamninga, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar, fá lögbundna þjónustu hjá Vinnumálastofnun líkt og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

     3.      Hver eru áhrifin af uppsögn samninganna á skólagöngu, frístundir og tómstundir barna og á þjónustu við fatlaða úr hópi umsækjenda um alþjóðlega vernd?
    Líkt og fram kemur í svari við 2. tölul. munu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafa þjónustu hjá sveitarfélögum á grundvelli þjónustusamninga, sbr. svar við 1. tölul., fá lögbundna þjónustu hjá Vinnumálastofnun og er því ekki gert ráð fyrir að uppsagnir samninga við sveitarfélög hafi áhrif á þá þjónustu. Hugsanleg áhrif á aðra þjónustu hafa enn ekki komið fram.

     4.      Stendur til að byggja upp búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru stærri og geta hýst fleiri en verið hefur? Hvar eru slík búsetuúrræði fyrirhuguð og hvað er áætlað að margir geti dvalið þar?
    Sem stendur eru ekki uppi áform um að byggja upp ný búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.