Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 823  —  495. mál.
Málsnúmer.




Beiðni um skýrslu


frá dómsmálaráðherra um þróun íbúasamsetningar á Íslandi.


Frá Snorra Mássyni, Bergþóri Ólasyni, Ingibjörgu Davíðsdóttur, Karli Gauta Hjaltasyni, Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, Sigríði Á. Andersen, Þorgrími Sigmundssyni, Diljá Mist Einarsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni og Vilhjálmi Árnasyni.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að dómsmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um þróun íbúasamsetningar á Íslandi.
    Í skýrslunni skal eftirfarandi koma fram:
     a.      Hvernig þróun íbúasamsetningar á landinu hafi verið síðastliðin tuttugu ár með tilliti til þess hverrar þjóðar íbúar eru og fjölda þeirra.
     b.      Hvaðan innflytjendur hafi komið sem hingað hafa flutt.
     c.      Á hvaða kerfislega grunni innflytjendur hafi fengið dvalarleyfi, sundurgreint eftir ólíkum gerðum dvalarleyfa, hvort sem það er á grundvelli EES-samstarfsins, alþjóðlegrar verndar eða annarra atvinnuleyfa, svo að dæmi séu nefnd.
     d.      Spá um íbúaþróun næstu 100 árin samkvæmt eftirfarandi sviðsmyndum: Innflytjendum og afkomendum innflytjenda fjölgi eða fækki og fæðingum Íslendinga fækki, fjölgi eða þær haldist óbreytt.
     e.      Aflað verði nauðsynlegra upplýsinga til að framkvæma sviðsmyndagreiningu um breytingar á samsetningu íbúa landsins og jafnframt gerð slík greiningu þegar gögn liggja fyrir.

Greinargerð.

    Markmið skýrslubeiðninnar er að átta sig á þeirri íbúaþróun sem hefur orðið á Íslandi á undanförnum árum og hvernig íbúaþróun verður næstu ár hér á landi. Mikilvægt er að átta sig á því hver íbúasamsetning er hér á landi og áhrifum innflytjenda á þróun hennar.
    Flutningsmenn vonast til þess að með skýrslunni verði hægt að gera sér grein fyrir hvert umfang fólksflutninga hefur verið hingað til lands. Auk þess hefur fæðingartíðni hér á landi aldrei verið lægri og óvíst hverjar langtímaafleiðingar lægri fæðingartíðni verða.
    Íbúasamsetning á Íslandi hefur á síðustu árum og áratugum tekið miklum og skjótum breytingum. Í nýlegri grein sem Timothy Heleniak skrifar og birt er á vef Cambridge University Press í janúar 2025 og kallast Iceland's demographic transition: from turf houses to too many tourists er m.a. fjallað um þróun íbúasamsetningar á Íslandi. Í niðurstöðum greinar Heleniak segir m.a.: „Frjósemi á Íslandi og í öðrum Norðurlöndum er vel undir eðlilegri endurnýjun íbúa, fyrst og fremst vegna fækkunar fyrstu fæðinga. Þetta gæti bent til aukins barnleysis og lækkandi fæðingartíðni. Þótt íbúum fjölgi enn má rekja tvo þriðju hluta fjölgunarinnar á síðasta áratug til innflytjenda og aðeins þriðjung til þess að fleiri fæðast en deyja. Þjóðin verður æ fjölbreyttari eftir því sem hlutfall erlendra íbúa eykst, sem hefur fjölmargar afleiðingar fyrir þetta áður einsleita samfélag.“
    D-liður skýrslubeiðninnar er í anda nýlegrar danskrar rannsóknar eftir Rune Lindahl-Jacobsen hjá Syddansk Universitet sem blaðið Politiken fjallar um (Den store befolkningsforandring: I 2096 kan flertallet i Danmark være indvandrere eller efterkommere). Þar er niðurstaðan sú að ef fæðingartíðni og fjölgun innflytjenda helst óbreytt verður meiri hluti íbúa Danmerkur innflytjendur eða afkomendur þeirra fyrir næstu aldamót.
    Þróun íbúafjölda og hvernig samsetning landsmanna verður, t.d. út frá aldri, hefur víðtæk áhrif á allt samfélagið til lengri og skemmri tíma. Landsmenn eldast um leið og aðfluttum fjölgar og afkomendum þeirra. Þetta hefur áhrif á efnahagsmál, innviði, heilbrigðismál o.s.frv. og því mikilvægt að gera eins góðar spár um þessa þróun og mögulegt er. Samanburður er nauðsynlegur og hann er t.d. hægt að fá með því að framkvæma sams konar rannsókn og gerð var í Danmörku og vísað er til hér að framan.