Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 825 — 441. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um virðisaukaskattsskylda veltu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hjá hversu mörgum aðilum hefur virðisaukaskattsskyld velta verið undir 20.000.000 kr. árlega á árunum 2015–2024, skipt í eftirfarandi flokka:
a. 0–4.999.999 kr.,
b. 5.000.000–7.499.999 kr.,
c. 7.500.000–9.999.999 kr.,
d. 10.000.000–14.999.999 kr.,
e. 15.000.000–19.999.999 kr.?
2. Hversu hár var útskattur þessara aðila á sama tímabili, skipt í sömu flokka?
3. Hversu hár var innskattur þessara aðila á sama tímabili, skipt í sömu flokka?
4. Hver var kostnaður ríkisins við umsýslu vegna virðisaukaskattsskila þessara aðila á sama tímabili, skipt í sömu flokka?
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitaði til Skattsins eftir umbeðnum upplýsingum þar sem ráðuneytið hefur ekki aðgang að gögnum um virðisaukaskattsskylda veltu eftir aðilum.
Svar við 1.–3. tölul. má sjá í meðfylgjandi töflu.
Ekki er unnt að svara 4. tölul. fyrirspurnarinnar þar sem kostnaður við rekstur VSK-kerfisins er ekki sundurliðaður með þeim hætti í reikningshaldi ríkisins að unnt sé að draga fram þær upplýsingar sem um ræðir.
Taflan sem inniheldur svar við 1.–3. tölul. sýnir fjölda aðila, útskatt og innskatt og auk þess veltu, skipt í VSK-skylda veltu og undanþegna veltu, og álagningu. Aðilar eru flokkaðir eftir umfangi veltu í þá fimm flokka (veltubil) sem spurt er um. VSK-skyld velta er vegna innlendra viðskipta í almennu og neðra skattþrepi VSK. Undanþegin velta aðila er ekki talin með við flokkun í veltubil. Aðilar sem fá álagðan VSK á grundvelli áætlunar Skattsins á einu eða fleiri uppgjörstímabilum viðkomandi árs eru ekki taldir með.
Upplýsingarnar byggjast á VSK-skýrslum sem hefur verið skilað vegna skattskila áranna 2015 til 2024 og miðast við stöðu gagna 5. júní 2025.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.