Ferill 185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 826  —  185. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um málefni Grindavíkur.


     1.      Stendur til að Fasteignafélagið Þórkatla greiði fasteignagjöld til Grindavíkurbæjar eða að ríkissjóður komi á annan hátt að rekstri grunninnviða Grindavíkur?
    Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga nr. 16/2024, um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, er Fasteignafélagið Þórkatla ehf. undanþegið fasteignagjöldum vegna fasteigna sem keyptar eru á grundvelli laganna þar til þeim hefur verið komið í almenna nýtingu á ný. Ekki er unnið að tillögum að breytingum á því ákvæði í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þess má geta að framkvæmd kaupa á íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur kallað á meiri útgjöld úr ríkissjóði en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Munar þar mest um hækkun brunabótamats eignanna á árinu 2024. Í heildina er gert ráð fyrir að umfang kaupanna geti orðið ríflega 74 ma.kr.

     2.      Verður umönnunarsamningum Fasteignafélagsins Þórkötlu breytt svo að fólk megi gista í Grindavík og geti þannig búið sig undir að flytja heim? Eru fleiri hugmyndir eða úrræði til að stuðla að hraðari endurkaupum fyrri eigenda eða leigu á húsnæði Fasteignafélagsins Þórkötlu?
    Frá rýmingu Grindavíkurbæjar í nóvember 2023 hefur ríkissjóður tekið þátt í ýmsum kostnaði vegna reksturs grunninnviða í Grindavík auk annarra stuðningsaðgerða. Um er að ræða sértæk framlög sem tekin er ákvörðun um hverju sinni. Fyrri eigendum íbúðarhúsnæðis í Grindavík, sem hafa selt eignir sínar til Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf., stendur nú til boða að gera tímabundna afnotasamninga við félagið þar sem dvöl yfir nótt er heimil. Um er að ræða aðgerð til reynslu sem stendur út september á þessu ári.

     3.      Eru uppi áform um að styðja uppbyggingu atvinnulífs í Grindavík?
    Upplýsingar um ákvörðun ríkisstjórnar varðandi framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum eru á vef Stjórnarráðsins. Þar kemur m.a. fram að úrræði sem felst í stuðningslánum til fyrirtækja með ríkisábyrgð verður framlengt um 1 ár en rekstrarstuðningur í formi beinna fjárframlaga til rekstraraðila var ekki framlengdur umfram 31. mars. Í staðinn verður horft til þess að nýta almennari úrræði um opinberan stuðning við atvinnulíf gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja o.fl.