Ferill 447. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 827 — 447. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Jóni Pétri Zimsen um samninga við félagasamtök.
1. Hvaða félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamning við ráðuneytið sl. 10 ár og hver var fjárhæð greiðslna úr ríkissjóði til þessara félaga á grundvelli slíkra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi, eðli samnings og ári.
Eftirfarandi félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við utanríkisráðuneyti á árunum 2015–2024:
| Samtök | Tegund samnings | Gildistími | Greiðslur | Athugasemd |
| Rauði krossinn á Íslandi | Rammasamningur | 2022–2024 | Heild: 406 millj. kr. 2022: 120 millj. kr. 2023: 156 millj. kr. 2024: 130 millj. kr. |
Þróunarsamvinna |
| Rauði krossinn á Íslandi | Rammasamningur | 2022–2024 | Heild: 543 millj. kr. 2022: 210 millj. kr. 2023: 193 millj. kr. 2024: 140 millj. kr. |
Mannúðaraðstoð |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Rammasamningur | 2022–2024 | Heild: 257,2 millj. kr. 2022: 70 millj. kr. 2023: 97,2 millj. kr. 2024: 90 millj. kr. |
Þróunarsamvinna |
| Hjálparstarf kirkjunnar | Rammasamningur | 2022–2024 | Heild: 160 millj. kr. 2022: 60 millj. kr. 2023: 50 millj. kr. 2024: 50 millj. kr. |
Mannúðaraðstoð |
| Barnaheill | Rammasamningur | 2022–2024 | Heild: 170,4 millj. kr. 2022: 40 millj. kr. 2023: 70,4 millj. kr. 2024: 60 millj. kr. |
Þróunarsamvinna |
| Barnaheill | Rammasamningur | 2022–2024 | Heild: 180 millj. kr. 2022: 50 millj. kr. 2023: 60 millj. kr. 2024: 70 millj. kr. |
Mannúðaraðstoð |
| SOS-barnaþorpin | Rammasamningur | 2022–2024 | Heild: 267,4 millj. kr. 2022: 80 millj. kr. 2023: 97,4 millj. kr. 2024: 90 millj. kr. |
Þróunarsamvinna |
| Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | Rammasamningur | 2023–2025 | Heild: 24 millj. kr. 2023: 12 millj. kr. 2024: 12 millj. kr. |
Kynningar- og fræðslumál á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála |
| Landsnefnd UN Women á Íslandi | Rammasamningur | 2022–2025 | Heild: 30 millj. kr. 2023: 15 millj. kr. 2024: 15 millj. kr. |
Kynningar- og fræðslumál á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu |
| Landsnefnd UNICEF á Íslandi | Rammasamningur | 2022–2025 | Heild: 24 millj. kr. 2023: 12 millj. kr. 2024: 12 millj. kr. |
Kynningar- og fræðslumál á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu |
| Rauði krossinn á Íslandi | Rammasamningur | 2018–2021 | Heild: 459,5 millj. kr. 2018: 149,2 millj. kr. 2019: 95,7 millj. kr. 2020: 67,1 millj. kr. 2021: 147,6 millj. kr. |
Alþjóðleg mannúðaraðstoð |
Rekstrarsamningar.
Engir rekstrarsamningar voru gerðir við félagasamtök á árabilinu 2015–2024.
Þjónustusamningar.
Engir þjónustusamningar voru gerðir við félagasamtök á árabilinu 2015–2024.
2. Hverjar voru heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölul. á sama tímabili og hvert var hlutfall samningsbundinna framlaga úr ríkissjóði af tekjum hvers þeirra á grundvelli umræddra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
Upplýsingar um heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölulið eru aðgengilegar í ársreikningum félaganna sem liggja fyrir hjá þeim. Félagasamtök sem sækja um styrki til þróunarsamvinnu- og/eða mannúðarverkefna skila staðfestum ársreikningi síðasta árs með umsókn ásamt öðrum gögnum í samræmi við verklagsreglur um samstarf við félagasamtök, sem síðan liggja til grundvallar ákvörðun um styrkveitingu. Gerð er krafa um samfellt samstarf við einstök félagasamtök á grundvelli styrkja í að minnsta kosti fimm ár áður en samtök eiga kost á að sækja um rammasamning. Gerð er krafa um að samtökin skili ársreikningi árlega. Vísað er til upplýsinga um framlög til einstakra félagasamtaka í svari við 1. tölul.
3. Í hvaða erlenda styrktarsjóði, sem félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr, á málefnasviði ráðherra greiðir íslenska ríkið og hver var fjárhæð framlags Íslands í hvern þessara sjóða sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
Félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr erlendum styrktarsjóðum á vettvangi þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar svo framarlega sem þau uppfylla formskilyrði viðkomandi sjóðs um umsóknir og úthlutanir sem yfirleitt felst í því að þau þurfi að vinna með félagasamtökum eða stofnunum á vettvangi. Upplýsingar um hvort félagasamtök á Íslandi uppfylla formskilyrði þessara sjóða liggja fyrir hjá samtökunum sjálfum. Þá kunna félagasamtök á Íslandi að geta sótt um styrki úr öðrum erlendum styrktarsjóðum eftir atvikum og liggja upplýsingar um þá möguleika fyrir hjá samtökunum sjálfum.
4. Hversu háar fjárhæðir hafa íslensk félagasamtök á málefnasviði ráðherra samtals fengið úthlutað úr sjóðum sem íslenska ríkið greiddi í fyrrgreint tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu.
5. Hvert var hlutfall framlaga úr slíkum erlendum sjóðum af heildartekjum félagasamtaka sem hafa haft þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við ráðuneytið sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu.
6. Ef upplýsingar um heildartekjur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, hefur verið óskað eftir slíkum upplýsingum við gerð samninganna?
Upplýsingar um tekjur félagasamtaka koma fram í ársreikningum sem liggja fyrir þegar rammasamningar eru gerðir.