Ferill 424. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 840 — 424. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og mannfjölda.
1. Hvernig hefur mannfjöldi á höfuðborgarsvæðinu þróast miðað við þær forsendur sem lágu til grundvallar svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015–2040 sem var afgreitt af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu árið 2015?
Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins eru skilgreind bindandi vaxtarmörk og forsendur svæðisskipulags miða við að innan vaxtarmarka verði fjölgun íbúa um 70 þúsund manns á skipulagstímabilinu, þ.e. til ársins 2040.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar höfuðborgarsvæðis 249.560 í upphafi árs 2025 en voru 206.483 á sama tíma árið 2015 þegar svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins tók gildi. 1 Fjölgunin hefur því verið rúmlega 40 þúsund manns á þessu tímabili og samkvæmt yfirfærðri mannfjöldaspá Hagstofunnar fyrir höfuðborgarsvæðið er viðbúið að fjöldi íbúa á höfuðborgarsvæðinu verði á bilinu 260–275 þúsund manns árið 2030. 2
2. Telur ráðherra tilefni til þess að endurskoða vaxtarmörk svæðisskipulagsins í ljósi mannfjöldaþróunar?
Yfirfærð spá Hagstofunnar um íbúaþróun á höfuðborgarsvæðinu bendir til þess að aukning um 70 þúsund íbúa muni koma fyrr fram en forsendur svæðisskipulagsins byggðust á, jafnvel á árunum 2030–2035.
Að svo komnu máli er mikilvægt að vinna skilvirkt að uppbyggingu húsnæðis innan vaxtarmarka en að sama skapi er tilefni til þess, byggt á fyrrgreindum upplýsingum um mannfjöldaþróun, að yfirfara forsendur svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins um mannfjölda árið 2040 og svæði til uppbyggingar til framtíðar litið. Ef niðurstaða þeirrar yfirferðar sýnir að knýjandi þörf sé á að yfirfara vaxtarmörk þá verður það gert með heildstæðum hætti fyrir höfuðborgarsvæðið. Við þá yfirferð þarf að huga að hagsmunum vatnsverndar, náttúruvá og öðrum takmarkandi þáttum í upplandi höfuðborgarsvæðisins, auk samhengis við samgöngur, innviði og þjónustu.
3. Er einhver vinna í gangi í ráðuneytinu sem miðar að því að einfalda breytingar á vaxtarmörkum svæðisskipulagsins og afnema neitunarvald einstakra sveitarfélaga?
VI. kafli skipulagslaga, nr. 123/2010, fjallar um svæðisskipulagsáætlanir og málsmeðferð þeirra, þar á meðal hvernig fara á með breytingar á gildandi svæðisskipulagi. Endurskoðun á þeim kafla og hvernig málsmeðferð og aðkomu einstakra sveitarfélaga skuli háttað er ekki til skoðunar hjá ráðuneytinu að svo stöddu. Ráðherra hefur aftur á móti í hyggju að ráðast í slíka endurskoðun með það fyrir augum að liðka fyrir breytingum á vaxtarmörkum þegar sveitarfélög komast ekki að sameiginlegri niðurstöðu.
1 hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/mannfjoldinn-1-januar-2025/
2 www.ssh.is/static/files/Skyrslur/Throunaraaetlun2024/2024_throunaraaetlun-lokautgafa.pdf