Ferill 395. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 842  —  395. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Gísla Stefánssyni um útboð á rekstri innanlandsflugs.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hyggst ráðherra bjóða út rekstur innanlandsflugs til Vestmannaeyja, Hafnar í Hornafirði, Ísafjarðar eða annarra svæða á landsbyggðinni sem reiða sig á flugsamgöngur? Hver eru áform ráðherra í þessum efnum?

    Undanfarin ár hefur ríkið styrkt flugleiðir til átta áfangastaða yfir lengri eða skemmri tíma. Vegagerðinni hefur verið falið það verkefni að bjóða út flugsamgöngur í samræmi við stefnu stjórnvalda í almenningssamgöngum. Eftirfarandi eru þeir samningar sem í gildi eru og byggðir eru á útboðum:
     Hornafjörður – Reykjavík. Nýtt útboð var auglýst um flugið til Hornafjarðar í mars 2025 og var tilboði Icelandair hf. tekið í verkið. Icelandair mun hefja flug frá og með 1. september 2025 og er samningurinn til þriggja ára með möguleika á tveggja ára framlengingu. Núverandi flugrekstraraðili er Norlandair ehf.
     Bíldudalur – Reykjavík. Nýtt útboð var auglýst um flugið á Bíldudal í febrúar 2025 og var tilboði Norlandair ehf. tekið í verkið. Samningstíminn er þrjú ár frá og með 16. nóvember 2025 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Núverandi flugrekstraraðili er Norlandair ehf.
     Gjögur – Reykjavík. Nýtt útboð var auglýst um flugið á Gjögur í febrúar 2025 og var tilboði Norlandair ehf. tekið í verkið. Samningstíminn er þrjú ár frá og með 16. nóvember 2025 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Núverandi flugrekstraraðili er Norlandair ehf.
     Grímsey – Akureyri. Útboð var auglýst um flugið til Grímseyjar árið 2022 og var tilboði Norlandair ehf. tekið í verkið. Samningstíminn var þrjú ár frá og með 13. apríl 2022 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Núverandi flugrekstraraðili er Norlandair ehf.
     Þórshöfn – Akureyri. Útboð var auglýst um flugið til Þórshafnar árið 2022 og var tilboði Norlandair ehf tekið í verkið. Samningstíminn var þrjú ár frá og með 13. apríl 2022 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Núverandi flugrekstraraðili er Norlandair ehf.
     Vopnafjörður – Akureyri. Útboð var auglýst um flugið til Vopnafjarðar árið 2022 og var tilboði Norlandair ehf. tekið í verkið. Samningstíminn var þrjú ár frá og með 13. apríl 2022 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Núverandi flugrekstraraðili er Norlandair ehf.
     Vestmannaeyjar – Reykjavík. Útboð var auglýst um flugið til Vestmannaeyja árið 2024. Um er að ræða þriggja mánaða vetrarsamning fyrir tímabilið frá desember til febrúar og var tilboði Mýflugs tekið. Samningstíminn er þrjú ár frá og með 1. desember 2024 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Núverandi flugrekstraraðili er Norlandair ehf. en félagið yfirtók verkskyldu Mýflugs eftir að Mýflug hætti starfsemi.
     Húsavík – Reykjavík. Verðfyrirspurn um flugið var auglýst í nóvember 2024. Um var að ræða vetrarflug til þriggja mánaða frá desember til mars og var samningurinn til eins árs. Ekki eru fyrir hendi fjárheimildir fyrir áframhaldi þjónustu á flugleiðinni.

Nýjar flugleiðir.
     Ísafjörður – Reykjavík. Í mars 2025 tilkynnti Icelandair hf. að félagið hygðist hætta að fljúga til Ísafjarðar frá og með haustinu 2026. Í ljósi þessa fól ráðuneytið Vegagerðinni að kanna forsendur þess hvort unnt væri að reka flugleiðina á markaðslegum forsendum eða hvort flugleiðin væri styrkhæf. Vinna er í gangi við markaðsgreiningu á flugleiðinni sem mun leiða í ljós hvort flugleiðin sé hæf til rekstrar á markaðslegum forsendum eða hvort heimilt sé að styrkja flugleiðina samkvæmt PSO-tilskipuninni. Niðurstöðu þeirrar vinnu er að vænta í júlí 2025.
    Að öðru leyti en að framan greinir hefur ekki verið tekin ákvörðun um frekari styrkingu annarra flugleiða að svo stöddu.