Ferill 394. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 843 — 394. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Gísla Stefánssyni um tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fitjum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra hraða framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fitjum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar umfram gildandi samgönguáætlun? Ef svo er, hver eru áform ráðherra?
Í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2024–2038 var gert ráð fyrir framkvæmdum við Reykjanesbraut milli Fitja og Rósaselstorgs á árunum 2029–2033 og miðast undirbúningur verkefnisins við þær tímasetningar.
Undanfarin ár hefur verið unnið að frumdrögum og mati á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar og matsáætlun var skilað til Skipulagsstofnunar í júní 2024. Stefnt er að því að drög að umhverfismatsskýrslu verði send til Skipulagsstofnunar haustið 2025 og að frumdrögum verkefnisins ljúki á árinu 2025.
Í framhaldi af umhverfismatsferlinu og að loknum aðalskipulagsbreytingum verður farið í forhönnun og deiliskipulagsvinnu en reiknað er með að sú vinna fari fram á árunum 2026 og 2027. Verkhönnun vegna framkvæmdanna ætti að geta farið fram á árinu 2028 með það að markmiði að framkvæmdir geti hafist 2029.
Nánari tímasetning framkvæmdarinnar mun skýrast þegar þingsályktun um samgönguáætlun 2026–2040 verður lögð fram á Alþingi haustið 2025.