Ferill 411. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 844  —  411. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um uppbyggingu smávirkjana.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig miðar vinnu við átak í uppbyggingu smávirkjana í samstarfi við landeigendur og hagsmunaaðila sem kynnt var af fyrrverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 28. nóvember 2024 og hefur Umhverfis- og orkustofnun hafið nánari könnun á þeim 2.500 virkjunarkostum sem Orkustofnun hafði kortlagt?

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið fól Umhverfis- og orkustofnun að leggja til nánari útfærslu á frekari vinnu í tengslum við uppbyggingu smávirkjana. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfis- og orkustofnun er stofnunin í samstarfi við Bláma og hefur falið þeim það verkefni að skoða nánar, í samvinnu við stofnunina, tækifæri sem felast í frekari uppbyggingu á smávirkjunarkostum og hvernig hægt sé að styðja við hagkvæm verkefni.
    Verkefninu miðar vel og lögð hefur verið áhersla á eftirfarandi þætti:

Leyfisveitingarferli:
    Kannað er hver reynsla framkvæmdaraðila er af því að afla nauðsynlegra leyfa og hversu langan tíma ferlið tekur. Þá er lagt mat á mögulegar úrbætur.

Umhverfismat og matsskyldufyrirspurnir:
    Leitast er við að skilja kostnað sem fylgir undirbúningi, framkvæmdum og tengingu við flutningskerfið. Einnig eru greindar tímalínur og hugsanlegar tafir sem tengjast lögformlegu umhverfismatsferli.

Samskipti við opinberar stofnanir:
    Varpað er ljósi á reynslu framkvæmdaraðila af samskiptum við opinberar stofnanir og stofnanalegar hindranir sem kunna að koma upp í ferlinu.

Aðkoma náttúruverndarsamtaka:
    Rætt verður við fulltrúa náttúruverndarsamtaka til að fá innsýn í þeirra sjónarmið varðandi uppbyggingu smávirkjana.

    Í verkefni Bláma felst að kanna nánar þá smávirkjunarkosti sem hafa nú þegar verið kortlagðir af fyrrum Orkustofnun, forgangsraða þeim með tilliti til flutningskerfis og fræðilegrar hagkvæmni.

     Fjöldi virkjunarkosta eftir landshlutum og mögulegu uppsettu afli:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þá felst í verkefninu að tekin eru viðtöl til þess að greina hverjar helstu hindranir eru og hvað þurfi að breytast til að auðvelda uppbyggingu smávirkjana. Rætt er við framkvæmdaraðila, fulltrúa Skipulagsstofnunar, fulltrúa skipulagsyfirvalda á sveitarstjórnarstiginu ásamt fulltrúa Umhverfis- og orkustofnunar ásamt öðrum sérfræðingum. Þá starfa Umhverfis- og orkustofnun og Blámi með Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði (SAFL).
    Gert er ráð fyrir að ráðherra kynni afrakstur vinnunnar í haust.