Ferill 440. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 847 — 440. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Hrund Logadóttur um nám í fjallaleiðsögn.
1. Hefur ráðherra látið leggja mat á áhrif þess að bjóða ekki upp á nám í fjallaleiðsögn, m.a. í ljósi markmiða ferðamálastefnu til ársins 2030 um eflingu náms í ferðaþjónustu og að teknu tilliti til áherslu stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036 á blómlegar byggðir í öllum landshlutum?
Mennta- og barnamálaráðherra hefur ekki látið leggja mat á áhrif þess að bjóða ekki upp á nám í fjallaleiðsögn. Ráðuneytið á fulltrúa í tveimur starfshópum í tengslum við ferðamálastefnu til ársins 2030 en stefnt er að því að hóparnir skili stöðuskýrslum um vinnu sína á árinu. Auk þess er rétt að benda á að framhaldsskólar taka sjálfir ákvarðanir um námsframboð sitt á grundvelli laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008.
2. Hyggst ráðherra tryggja fjármögnun faglegs náms í fjallaleiðsögn í ljósi niðurstöðu skýrslu ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli, í samvinnu við atvinnuvegaráðherra og aðra hlutaðeigandi ráðherra?
Um er að ræða sex tillögur starfshóps ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og dómsmálaráðuneytis sem reifaðar eru í samantekt hópsins frá 8. nóvember 2024. Ein þeirra tillagna var að menntun leiðsögumanna verði betur tryggð innan menntakerfisins og/eða með stuðningi við Félag fjallaleiðsögumanna og er í samantektinni reifuð dæmi um leiðir til þess. Samantekt þessa hóps var síðan vísað til nánari úrvinnslu og útfærslu innan starfshóps á vegum menningar- og viðskiptaráðherra um bætt öryggi ferðamanna.
Óháð framangreindri vinnu er mennta- og barnamálaráðuneytið með til skoðunar, m.a. í samtali við viðkomandi ráðuneyti, leiðir til að tryggja áframhaldandi framboð á faglegu námi í fjallaleiðsögn, þar á meðal er varðar fjármögnun námsins.
3. Er ráðuneytið reiðubúið að semja um framlengingu á undanþágu fyrir ákveðinn nemendafjölda í fjallaleiðsögunámi undir merkjum Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu eða Háskólaseturs Vestfjarða samhliða því að nýir tekjustofnar námsins verði þróaðir, í stað þess að knýja á um stofnun einkaskóla?
Mennta- og barnamálaráðuneytið áréttar að það fellur í hlut framhaldsskóla, en ekki ráðuneytisins, að taka ákvarðanir um námsframboð hverju sinni, þar á meðal um fjölda nemenda í viðkomandi námi. Þar af leiðandi liggur hvorki fyrir samkomulag af hálfu ráðuneytisins þar sem veitt er undanþága fyrir ákveðinn nemendafjölda í fjallaleiðsögunám eða að ráðuneytið hafi verið að knýja á um stofnun einkaskóla. Ráðuneytið hefur átt samtal við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu um rekstur hans og rætt leiðir til að tryggja áframhaldandi námsframboð. Þá heyrir Háskólasetur Vestfjarða undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.