Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 860  —  335. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um túlkaþjónustu á sviði fræðslumála.


     1.      Hver hefur verið heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu á sviði fræðslumála undanfarin fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir málefnasviðum.
    Hér á eftir fara upplýsingar um heildarkostnað ráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu á sviði fræðslumála undanfarin fimm ár. Rétt er að vekja athygli á eftirfarandi atriðum:
     –      Við breytingar á ráðuneytinu árið 2022 urðu breytingar á fjölda undirstofnana í samræmi við flutning málefna. Fyrir breytingar voru undirstofnanir 51 talsins en þær eru 30 í dag. Í ljósi þess eru upplýsingarnar takmarkaðar við þær stofnanir sem heyra í dag undir málefnasvið ráðuneytisins.
     –      Frá árinu 2022 teljast Barna- og fjölskyldustofa og Ráðgjafar- og greiningarstöð til undirstofnana mennta- og barnamálaráðuneytis en áður voru þær undirstofnanir félagsmálaráðuneytis.
     –      Menntamálastofnun var lögð niður 30. mars 2024 og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tók til starfa 1. apríl sama ár.
    
Tafla 1. Framhaldsskólar. Upphæðir í þús. kr.

Stofnun / Ár
2020 2021 2022 2023 2024
Menntaskólinn í Reykjavík - - - - -
Menntaskólinn á Akureyri - - - - -
Menntaskólinn að Laugarvatni - - - - -
Menntaskólinn við Hamrahlíð - - - 50,0 21,0
Menntaskólinn við Sund - - 52,4 104,0 -
Menntaskólinn á Ísafirði - 7,5 22,5 62,3 113,2
Menntaskólinn á Egilsstöðum - 87,2 27,0 -
Menntskólinn í Kópavogi - 44,2 14,0 - -
Kvennaskólinn í Reykjavík - 98,2 126,2 119,6 399,2
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 865,2 144,4 53,0 109,1 353,7
Fjölbrautaskólinn við Ármúla 23,5 67,6 29,0 76,7 113,4
Flensborg - 12,0 29,6 56,7 128,7
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ 9,6 7,5 11,7 - -
Fjölbrautaskóli Suðurnesja - - - 25,3 15,2
Fjölbrautaskóli Vesturlands - 15,0 - 22,5 17,8
Framhaldsskóli Vestmannaeyja - - - 45,0 -
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra - - - 26,0 -
Fjölbrautaskóli Suðurlands - - - - 50,0
Verkmenntaskóli Austurlands - 33,0 - 15,0 -
Verkmenntaskólinn á Akureyri 40,6 35,6 12,9 113,4 27,0
Fjölbrautarskóli í Garðabæ - - - - -
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu - 29,9 - 74,5 50,2
Framhaldsskólinn á Húsavík - 38,2 78,1 - -
Framhaldsskólinn á Laugum - - - - -
Borgarholtsskóli - - - - 19,8
Fjölbrautaskóli Snæfellinga - - - - -
Menntaskólinn á Tröllaskaga - - - - -
    
Tafla 2. Stjórnsýsla mennta- og barnamála. Upphæðir í þús.kr.
Stofnun / Ár 2020 2021 2022 2023 2024
Menntamálastofnun - - - - -
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu - - - - -
Mennta- og barnamálaráðuneyti, aðalskrifstofa - - - 34,1 -
    
Tafla 3. Annar stuðningur við fjölskyldur og börn. Upphæðir í þús. kr.
Stofnun / Ár 2022 2023 2024
Barna- og fjölskyldustofa 3.555 4.355 4.003
Ráðgjafar- og greiningarstöð 4.430 6.142 6.608
    
Tafla 4. Samantekt á kostnaði í töflum 1–3. Upphæðir í þús. kr.
2020 2021 2022 2023 2024 Samtals
20.10 Framhaldsskólar 939,0 533,1 516,6 927,0 1.309,2 4.224,9
22.30 Stjórnsýsla mennta- og barnamála - - - 34,1 - 34,1
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn - - 7.985 10.497 10.611 35.413

     2.      Hvaða reglur gilda um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess?
    Engar reglur gilda um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess umfram þær reglur sem almennt gilda um opinber innkaup, sbr. rammasamning Ríkiskaupa um túlka- og þýðingarþjónustu. 1

     3.      Er til sundurliðun á aðkeyptri þjónustu og því vinnuframlagi sem þjónustan krefst þegar hún er unnin af fastráðnum starfsmönnum?

    Hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess er almennt ekki sérstaklega haldið utan um sundurliðun á aðkeyptri túlkaþjónustu og því vinnuframlagi sem þjónustan krefst þegar hún er unnin af fastráðnum starfsmönnum Skýrist það einkum af þeirri ástæðu að í langflestum tilvikum er túlkaþjónusta aðkeypt og ekki unnin af fastráðnum starfsmönnum. Hins vegar er haldið utan um sundurliðun hjá eftirfarandi stofnunum ráðuneytisins en sú sundurliðun snýr að aðkeyptri túlkaþjónustu:
     –      Menntaskólinn á Ísafirði
     –      Menntaskólinn í Kópavogi
     –      Fjölbrautaskólinn við Ármúla
     –      Framhaldsskólinn á Húsavík
     –      Ráðgjafar- og greiningarstöð

1     www.midlaegirsamningar.is/is/tulka-og-thydingathjonusta