Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 865  —  351. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018 (aflaverðmæti í reiknistofni).

Frá Eiríki Birni Björgvinssyni, Eydísi Ásbjörnsdóttur, Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, Maríu Rut Kristinsdóttur og Sigurjóni Þórðarsyni.


    Á eftir 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
    Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     a.      (I.)
                      Tillaga ríkisskattstjóra til ráðherra vegna veiðigjaldsársins 2026 fyrir síld, kolmunna, makríl, þorsk og ýsu skal nema 85% af fjárhæð veiðigjalds skv. 2. málsl. 4. gr. Þá skal tillaga ríkisskattstjóra til ráðherra vegna veiðigjaldsársins 2027 fyrir síld, kolmunna, makríl, þorsk og ýsu nema 95% af fjárhæð veiðigjalds skv. 2. málsl. 4. gr.
     b.      (II.)
                      Ráðherra skal fela Byggðastofnun að meta áhrif veiðigjalds á stöðu sjávarútvegssveitarfélaga og skila ráðherra skýrslu þar að lútandi fyrir árslok 2027.

Greinargerð.

    Flutningsmenn leggja til að tveimur nýjum ákvæðum til bráðabirgða verði bætt við lög um veiðigjald. Er það gert í kjölfar fundar atvinnuveganefndar 11. júlí 2025 með Byggðastofnun og Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga. Lagt er til að ákvæði frumvarpsins verði innleidd í skrefum og með því er komið til móts við þær áhyggjur sem framangreindir aðilar hafa viðrað. Þá telur meiri hlutinn í atvinnuveganefnd mikilvægt að áhrif frumvarpsins verði metin út frá byggðasjónarmiðum.