Ferill 270. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 872 — 270. mál.
Frumvarp til laga
um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
(Eftir 2. umræðu, 14. júlí.)
1. gr.
Hlutverk.
2. gr.
Tekjur.
a. Framlag úr ríkissjóði er nemur 2,036% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs og tryggingagjöldum. Þar af rennur fjárhæð er nemur 0,235% af innheimtum skatttekjum og tryggingagjöldum til málefna fatlaðs fólks. Skal framlagið greiðast Jöfnunarsjóði mánaðarlega.
b. Árlegt framlag úr ríkissjóði er nemur 0,264% af álagningarstofni útsvars næstliðins tekjuárs og skal greiðast Jöfnunarsjóði með jöfnum mánaðarlegum greiðslum.
c. Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga af álagningarstofni útsvars ár hvert:
1. er nemur 0,77% til jöfnunar vegna reksturs grunnskóla,
2. er nemur 1,44% til jöfnunar vegna málefna fatlaðs fólks.
Við skil á staðgreiðslu útsvars til sveitarfélaga samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, skal jafnframt gera Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skil á hlutdeild sjóðsins í staðgreiðslu útsvars, sundurliðað skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. þessa stafliðar.
d. Framlög úr ríkissjóði eftir atvikum, sem ákveðin eru í fjárlögum ár hvert.
e. Vaxtatekjur.
3. gr.
Ráðstöfun.
a. Til greiðslu bundinna framlaga skv. 4. gr.
b. Til greiðslu sérstakra framlaga skv. 5. gr.
c. Til greiðslu jöfnunarframlaga skv. 6.–9. gr.
d. Til greiðslu framlaga vegna reksturs grunnskóla skv. 10. gr.
e. Til greiðslu jöfnunarframlaga vegna þjónustu við fatlað fólk skv. 11. gr.
f. Til greiðslu framlaga til sveitarfélaga skv. 13. gr. og annarra framlaga sem Jöfnunarsjóði er með lögum þessum sérstaklega falið að úthluta til sveitarfélaga vegna sérstakra verkefna.
4. gr.
Bundin framlög.
a. Til Sambands íslenskra sveitarfélaga, 1,479% af tekjum sjóðsins skv. a- og b-lið og 1. tölul. 1. mgr. c-liðar 2. gr.
b. Til landshlutasamtaka sveitarfélaga, 1,379% af tekjum sjóðsins skv. a- og b-lið 2. gr. sem skiptist jafnt á milli þeirra allra.
c. Til greiðslu útgjalda samkvæmt lögum um innheimtu meðlaga o.fl.
d. Til Tryggingastofnunar ríkisins vegna eftirlaunasjóðs aldraðra samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra.
e. Til greiðslu framlaga sveitarfélaga í húsafriðunarsjóð samkvæmt lögum um menningarminjar.
5. gr.
Sérstök framlög.
a. Til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, svo sem með þátttöku í eðlilegum kostnaði við undirbúning sameiningar, kynningu á sameiningartillögu og framkvæmd atkvæðagreiðslu. Ráðherra setur vinnureglur um úthlutun framlaga samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einnig er heimilt að veita aðstoð með óskertum almennum jöfnunarframlögum, sbr. 6.–9. gr., á því ári þegar sameiningin tekur gildi og með sérstöku framlagi í fjögur ár sem nemur þeirri skerðingu sem kann að verða á almennum jöfnunarframlögum í kjölfar sameiningar. Þá er heimilt að veita sérstök framlög í allt að sjö ár til að jafna skuldastöðu sveitarfélaga, vegna kostnaðar við framkvæmd sameiningar, til að stuðla að endurskipulagningu þjónustu og stjórnsýslu, í stuðning vegna innviðauppbyggingar og til að rétta stöðu sveitarfélaga þar sem fjölgun íbúa hefur verið undir árlegri meðalfjölgun íbúa í sveitarfélögum á landsvísu. Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð, sbr. 22. gr., m.a. um forsendur og útreikning framlaga.
b. Til að greiða úr sérstökum fjárhagserfiðleikum sveitarfélaga með styrk eða láni, á grundvelli sveitarstjórnarlaga, og/eða greiðslu framlaga vegna ráðgjafar við fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélaga.
c. Til greiðslu stofnkostnaðar við vatnsveitur á lögbýlum þar sem hagkvæmara er að mati sveitarstjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004. Hámarksfjárhæð vegna einstakra framkvæmda má nema allt að 44% stofnkostnaðar við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa. Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð, sbr. 22. gr., um skilyrði fyrir úthlutun samkvæmt ákvæði þessu.
d. Til greiðslu framlaga vegna skólaaksturs í dreifbýli. Útreikningur framlaga byggist á upplýsingum frá sveitarfélögum um akstursleiðir úr dreifbýli sveitarfélags og fjölda grunnskólabarna á hverri leið sem eiga heimili lengra en 3,0 km frá skóla, miðað við 1. október ár hvert. Framlög taka mið af lengstu akstursvegalengd á hverri leið frá heimili að skóla, fjölda barna, stærð ökutækis og fjölda skóladaga á viðkomandi skólaári. Ráðherra setur vinnureglur um úthlutun framlagsins samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
e. Til greiðslu framlaga vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Útreikningur framlaga byggist á umsóknum frá sveitarfélögum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli. Framlög taka mið af akstursvegalengd og fjölda farþega. Ráðherra setur vinnureglur um úthlutun framlagsins samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
f. Til greiðslu framlaga til sérstakra verkefna sem geta haft mikla þýðingu fyrir sveitarfélög og/eða leiða til hagræðingar í rekstri og þjónustu þeirra.
6. gr.
Almenn jöfnunarframlög.
Útreikningur jöfnunarframlaga fer fram á grundvelli tveggja stoða:
1. Jöfnunar vegna mismunandi tekjuöflunarmöguleika og stærðarhagkvæmni, sbr. 8. gr.
2. Jöfnunar vegna mismunandi útgjaldaþarfa, sbr. 9. gr.
Almenn jöfnunarframlög til sveitarfélaga eru endanleg niðurstaða jöfnunar skv. 1. og 2. tölul. 2. mgr., sbr. þó 4. mgr.
Veita skal Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ sérstakt jöfnunarframlag vegna höfuðstaðarálags sem skal nema 2,5% af þeirri fjárhæð sem varið er til jöfnunarframlaga skv. 1. mgr. Framlagið skiptist þannig að einu prósentustigi þess skal skipta jafnt á milli sveitarfélaganna og 1,5 prósentustigum skal skipta eftir fjölda íbúa þeirra 1. janúar ár hvert.
7. gr.
Grundvöllur jöfnunarframlaga.
a. Útsvarstekjur sveitarfélaga eins og þær hefðu verið árið áður, ef miðað hefði verið við fulla nýtingu álagningarhlutfalls útsvars.
b. Allar fasteignaskattstekjur sveitarfélaga eins og þær hefðu verið á úthlutunarári, ef miðað hefði verið við hámark skatthlutfalls fasteignaskatts, að teknu tilliti til álags, sbr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, vegið með íbúafjölda.
c. Hámarkstekjur , sem eru samtala útsvarstekna, sbr. a-lið, og fasteignaskattstekna, sbr. b-lið, deilt með íbúafjölda hvers sveitarfélags 1. janúar næstliðins árs.
Við útreikning almennra jöfnunarframlaga skal sveitarfélögum skipt upp í þrjá stærðarflokka, fámenn sveitarfélög með undir 2.000 íbúa, meðalstór sveitarfélög með 2.000–10.000 íbúa og fjölmenn sveitarfélög með yfir 10.000 íbúa.
8. gr.
Jöfnun vegna mismunandi tekjuöflunarmöguleika og stærðarhagkvæmni.
a. Leggja skal til grundvallar hámarkstekjur sveitarfélags, sbr. c-lið 1. mgr. 7. gr.
b. Ákvarða skal tekjuhagkvæmniferil skv. c-, d- og e-lið. Tekjuhagkvæmniferill er tekjuviðmið sveitarfélags á hvern íbúa, að teknu tilliti til stærðarhagkvæmni.
c. Tekjuhagkvæmniferill skal vera 23% hærri fyrir fámenn sveitarfélög en fjölmenn sveitarfélög, sbr. 2. mgr. 7. gr.
d. Tekjuhagkvæmniferill fyrir meðalstór sveitarfélög, sbr. 2. mgr. 7. gr., skal reiknaður á grundvelli reiknilíkans skv. 3. gr. viðauka við lög þessi.
e. Tekjuhagkvæmniferill skal aðlagaður því fjármagni sem er til ráðstöfunar.
f. Til jöfnunar getur komið ef hámarkstekjur, sbr. a-lið, eru undir viðmiðum tekjuhagkvæmniferils.
g. Sveitarfélög sem hafa hámarkstekjur sem eru lægri en tekjuhagkvæmniferill reiknast með jöfnun samkvæmt þessu ákvæði, sem nemur 80% af mismun á gildi tekjuhagkvæmniferils og hámarkstekjum, sbr. a-lið.
h. Jöfnun vegna tekjuöflunarmöguleika og stærðarhagkvæmni getur að hámarki numið 16 milljónustu hlutum ráðstöfunarfjármagns framlaganna fyrir sveitarfélög með undir 2.000 íbúa og 3,2 milljónustu hlutum ráðstöfunarfjármagns fyrir sveitarfélög með yfir 20.000 íbúa. Fyrir sveitarfélög með íbúatölu á bilinu 2.000−20.000 skal hámarkið ákvarðað hlutfallslega út frá íbúafjölda á milli 16 og 3,2 milljónustu hluta.
9. gr.
Jöfnun vegna mismunandi útgjaldaþarfa.
a. Leggja skal til grundvallar hámarkstekjur sveitarfélags, sbr. c-lið 1. mgr. 7. gr., aðlagaðar niðurstöðu jöfnunar vegna mismunandi tekjuöflunarmöguleika og stærðarhagkvæmni, sbr. 8. gr.
b. Reiknaður skal útgjaldastuðull fyrir hvert sveitarfélag. Útgjaldastuðull skal vera vegið meðaltal staðlaðra útgjaldabreytna, sbr. reiknilíkan skv. 1., 4. og 5. gr. viðauka við lög þessi.
c. Útkoma hvers sveitarfélags skv. a-lið er margfölduð með útgjaldastuðli, sbr. b-lið, á grundvelli reiknilíkans skv. 5. gr. viðauka við lög þessi.
Ef hámarkstekjur eru hærri en sem nemur tekjuhagkvæmniferli, sbr. b-lið 8. gr., skal miða grundvöll jöfnunar við tekjuhagkvæmniferil. Jöfnun skal þó ekki vera hærri en mismunur á reiknaðri útgjaldaþörf á mann og hámarkstekjum.
10. gr.
Framlög vegna reksturs grunnskóla.
a. Jöfnunarframlög vegna reksturs grunnskóla.
b. Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda.
c. Framlög vegna nemenda með íslensku sem annað mál.
d. Framlög til Barna- og fjölskyldustofu vegna kennslu barna á grunnskólaaldri sem eru að beiðni barnaverndarþjónustu lögheimilissveitarfélags vistuð utan þess á meðferðarheimili á vegum Barna- og fjölskyldustofu.
e. Önnur framlög til sveitarfélaga og stofnana sem tengd eru rekstri grunnskóla.
Miða skal við að 70–75% af tekjum Jöfnunarsjóðs vegna reksturs grunnskóla, sbr. 1. mgr., skuli varið í jöfnunarframlög vegna reksturs grunnskóla skv. a-lið 1. mgr.
Við útreikninga jöfnunarframlaga vegna reksturs grunnskóla skv. a-lið 1. mgr. skal finna mismun heildarútgjaldaþarfar hvers sveitarfélags og áætlaðra útsvarstekna, 2,33% af útsvarsstofni, sem renna til sveitarfélaga vegna yfirfærslu á rekstri grunnskóla til sveitarfélaga.
Jöfnunarsjóður skal gera áætlun um heildarframlög skv. b-lið 1. mgr. og skulu framlög veitt á grundvelli samræmds mats á sérþörfum fatlaðra nemenda sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Jöfnunarsjóður skal gera áætlun um heildarframlög skv. c-lið 1. mgr. og skulu framlög veitt á grundvelli umsókna vegna nemenda sem hafa íslensku sem annað mál og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Jöfnunarsjóður skal annast greiðslu á útlögðum kostnaði Barna- og fjölskyldustofu vegna kennslu þeirra barna á grunnskólaaldri sem eru að beiðni barnaverndarþjónustu lögheimilissveitarfélags vistuð utan þess á meðferðarheimili á vegum Barna- og fjölskyldustofu og skal Jöfnunarsjóður draga fjárhæð sem nemur kennslukostnaði frá jöfnunarframlögum viðkomandi sveitarfélags. Barna- og fjölskyldustofu er skylt að láta Jöfnunarsjóði í té upplýsingar um þau börn eftir því sem nauðsynlegt er við framkvæmd þessarar greinar.
Jöfnunarsjóði er heimilt að veita sérstök framlög til sveitarfélaga og stofnana vegna verkefna, nýsköpunar eða þróunarvinnu sem tengist rekstri grunnskóla skv. e-lið 1. mgr. á grundvelli sérstakra samninga. Jöfnunarsjóði er einnig heimilt að veita sérstök framlög til sveitarfélaga á grundvelli umsókna þeirra vegna ófyrirséðra tilvika í rekstri grunnskóla sem leiða til mikilla útgjalda umfram tekjur.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal vera í bakábyrgð fyrir greiðslum til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins vegna þeirra lífeyrisskuldbindinga sem stofnast vegna kennara og skólastjórnenda við grunnskóla. Til ábyrgðargreiðslu af hálfu sjóðsins skal þó ekki koma fyrr en vanskil sveitarfélags hafa varað í a.m.k. sex mánuði. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal halda eftir af sjóðsframlögum til einstakra sveitarfélaga þeim greiðslum ásamt vöxtum og áföllnum kostnaði sem sjóðurinn hefur greitt Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins vegna starfsmanna grunnskóla eða innheimta slíkar kröfur með öðrum hætti.
11. gr.
Framlög vegna málefna fatlaðs fólks.
Tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks skv. 2. tölul. 1. mgr. c-liðar 2. gr. að frádregnum kostnaði tengdum flutningi málaflokksins og framlagi í fasteignasjóð, sbr. 12. gr., að viðbættum beinum framlögum af fjárlögum, skal varið til jöfnunar vegna þjónustu við fatlað fólk, sem veitt er á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, með greiðslu framlaga til einstakra sveitarfélaga og þjónustusvæða. Framlögin skulu reiknuð á grundvelli samræmds mats á stuðningsþörf á landsvísu og skal kveðið nánar á um útreikning þeirra í reglugerð, sbr. 22. gr. Í reglugerðinni skal reynt að tryggja að tekjuaukning einstakra sveitarfélaga og þjónustusvæða endurspegli kostnaðarmun vegna mismunandi þjónustuþarfa fatlaðra íbúa. Í reglugerðinni skal jafnframt kveðið á um:
a. Ráðstöfun framlaga vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og til verkefna sem tengjast þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.
b. Heimildir Jöfnunarsjóðs til að veita önnur framlög til þjónustusvæða, sveitarfélaga, Sambands íslenskra sveitarfélaga og annarra aðila vegna rekstrarmála eða þróunarvinnu sem nýtist þjónustusvæðum og sveitarfélögum til þróunar í málaflokknum.
12. gr.
Fasteignasjóður.
Tekjur fasteignasjóðs eru:
a. Tekjur af skuldabréfum í eigu sjóðsins vegna sölu á fasteignum.
b. Vaxtatekjur.
c. Framlag af tekjum Jöfnunarsjóðs vegna málefna fatlaðs fólks, sbr. 11. gr.
Í samræmi við hlutverk fasteignasjóðs er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að úthluta úr fasteignasjóði framlögum til sveitarfélaga til uppbyggingar eða breytinga á fasteignum sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk og til úrbóta í ferlimálum fatlaðs fólks, sbr. 1 mgr.
Ráðherra setur í reglugerð, sbr. 22. gr., nánari reglur um starfsemi fasteignasjóðs í samræmi við hlutverk sjóðsins, að fenginni umsögn þess ráðherra er fer með málefni fatlaðs fólks, Sambands íslenskra sveitarfélaga og ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, svo sem um skilyrði og fyrirkomulag úthlutunar framlaga skv. 3. mgr. Ráðherra er heimilt í reglugerðinni að kveða á um að sveitarfélagi sé heimilt að ráðstafa framlagi úr fasteignasjóði til að auka eða bæta aðgengi fyrir fatlað fólk enda séu framkvæmdir unnar í samstarfi við félagasamtök og aðra aðila sem starfa í þágu almannaheilla.
13. gr.
Framlög ákveðin í fjárlögum.
Framlög til einstakra sveitarfélaga skv. 1. mgr. skulu ekki vera hærri en umframkostnaður sveitarfélagsins af framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, að frádregnum ávinningi sem sveitarfélagið fær af þeim. Nánar skal kveðið á um útreikning framlaga samkvæmt þessari grein í reglugerð, sbr. 22. gr.
14. gr.
Lækkun eða niðurfelling framlaga.
Ekki skal úthluta framlögum vegna reksturs grunnskóla skv. a-, b- og d-lið 1. mgr. 10. gr. til sveitarfélaga með íbúafjölda yfir 70.000.
15. gr.
Eigið fé Jöfnunarsjóðs.
16. gr.
Ofgreidd og vangreidd framlög.
Hafi sveitarfélag fengið ofgreidd framlög skv. 1. mgr. er Jöfnunarsjóði heimilt að halda eftir framlögum til viðkomandi sveitarfélags til að leiðrétta ofgreiðsluna.
Greiðslur á grundvelli þessa ákvæðis skulu ekki bera vexti.
17. gr.
Heimild til vinnslu persónuupplýsinga.
18. gr.
Aðgangur að upplýsingum.
19. gr.
Ráðgjafarnefnd.
20. gr.
Yfirstjórn.
21. gr.
Ársreikningur.
22. gr.
Reglugerð.
23. gr.
Gildistaka.
24. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995:
a. B-liður 1. mgr. 1. gr. laganna fellur brott.
b. Á eftir orðinu „leyfisgjöldum“ í 1. mgr. 2. gr. laganna kemur: úthlutuðum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
c. III. kafli laganna, Um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, fellur brott, ásamt fyrirsögn.
d. Ákvæði til bráðabirgða XV, XIX–XXI, XXIII–XXVIII, XXXII og XXXIII í lögunum og viðauki við lögin falla brott.
e. Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir d-lið 11. gr. skal fasteignaskattsframlag til Grindavíkurbæjar á árinu 2025 miðað við að sveitarfélagið fái 1,37% af því heildarfjármagni sem kemur til úthlutunar til sveitarfélaga á árinu 2025 á grundvelli ákvæðisins.
2. Sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011:
a. Við 81. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er jafnframt heimilt að mæla í reglugerðinni fyrir um nánari viðmið og skilyrði styrks og láns úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skv. 1. tölul. 1. mgr. 84. gr. og samkvæmt lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
b. Í stað orðanna „skv. 15. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum“ í 1. tölul. 1. mgr. 84. gr. laganna kemur: samkvæmt lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
III.
Framlag skv. 1. mgr. skal skiptast hlutfallslega á milli sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar skólaárið á undan og greiðist mánaðarlega til sveitarfélaga frá gildistöku laganna til loka árs 2027, að undanskildum júlímánuði ár hvert. Ef ekki kemur til úthlutunar til sveitarfélags á grundvelli ákvæðisins skal reiknað framlag Jöfnunarsjóðs til viðkomandi sveitarfélags endurgreitt ríkissjóði.
Ákveði sveitarfélag að taka gjald fyrir skólamáltíðir á grundvelli 23. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, eftir að Jöfnunarsjóður hefur úthlutað framlagi til þess á grundvelli 1. og 2. mgr., skal sveitarfélagið endurgreiða Jöfnunarsjóði úthlutað framlag til þess fyrir það tímabil sem sveitarfélagið hefur tekið gjald fyrir skólamáltíðir og skal fjárhæðin renna í ríkissjóð. Sama á við ef sjálfstætt rekinn grunnskóli, sem gert hefur þjónustusamning við sveitarfélag á grundvelli 43. gr. a laga um grunnskóla, ákveður að taka gjald fyrir skólamáltíðir.
Jöfnunarsjóði er heimilt að halda eftir öðrum framlögum sjóðsins hafi sveitarfélagið fengið ofgreitt framlag, sbr. 3. mgr.
IV.
Árið 2027 skal hlutfallið vera 70%, 55% árið 2028 og 40% árið 2029, en við útreikning hlutfallsins skal uppreikna framlögin árið 2025 skv. 1. mgr. með vísitölu neysluverðs fyrir hvert ár miðað við nóvember árið á undan.
V.
Viðauki.
1. gr.
| Útgjaldabreyta | Vogir |
| Hlutfall íbúa 5 ára og yngri | 18% |
| Hlutfall 6–15 ára íbúa | 13% |
| Hlutfall 67–80 ára íbúa | 4% |
| Hlutfall íbúa eldri en 81 árs | 3% |
| Hlutfall barna 5 ára og yngri af erlendum uppruna | 6% |
| Fjarlægðir í kílómetrum milli útmarka sveitarfélaga | 5% |
| Fjöldi byggðarkjarna í sveitarfélagi, að hámarki fjórir | 13% |
| Fækkun íbúa umfram 1% að meðaltali síðustu þrjú ár | 3% |
| Fjölgun íbúa umfram 2,5% að meðaltali síðustu þrjú ár | 5% |
| Snjómokstur, km | 4% |
| Sérstakar samgönguhindranir | 3% |
| Stærðarhagkvæmni grunnskóla | 8% |
| Lágt fasteignamat | 15% |
2. gr.
a. Hlutfall íbúa eftir aldri: Hlutfall íbúa á viðkomandi aldursbili af heildaríbúafjölda sveitarfélags.
b. Hlutfall barna 5 ára og yngri af erlendum uppruna: Við útreikninginn skal miða við fjölda barna með erlent ríkisfang, fjölda barna með íslenskt ríkisfang sem fæddust erlendis og fjölda barna þar sem ríkisfang annars foreldris er erlent.
c. Fjarlægðir í kílómetrum milli útmarka sveitarfélaga: Lagðir eru saman akstursleggir frá nyrstu, syðstu, austustu og vestustu byggð (lögbýli) í sveitarfélagi að stærsta byggðarkjarna þess. Sé enginn byggðarkjarni skal þess í stað miða við landfræðilega miðju sveitarfélagsins. Hver akstursleggur skal einungis talinn einu sinni við útreikninginn.
d. Fjöldi byggðarkjarna í sveitarfélaginu: Miða skal við fjölda byggðarkjarna samkvæmt skilgreiningu Hagstofunnar, umfram einn og að hámarki fjóra. Þó skal eingöngu miða við byggðarkjarna með íbúafjölda yfir 50 íbúa.
e. Fækkun íbúa umfram 1%: Miðað er við meðaltalsfækkun síðustu þriggja ára, að því marki sem hún er umfram 1%.
f. Fjölgun íbúa umfram 2,5%: Miða skal við meðaltalsfjölgun síðustu þriggja ára, að því marki sem hún er umfram 2,5%.
g. Snjómokstur, km: Samanlagður kílómetrafjöldi þeirra vega í þéttbýli þar sem sveitarfélag er veghaldari. Þessi stuðull á eingöngu við um þau sveitarfélög sem eru að meiri hluta flatarmáls norðan 64,8° norðlægrar breiddargráðu.
h. Sérstakar samgönguhindranir: Miðað er við hlutfall íbúa í sveitarfélagi sem búa á eyjum.
i. Stærðarhagkvæmni grunnskóla: Miðast við niðurstöðu úr reiknilíkani Jöfnunarsjóðs, sem er ætlað að lýsa best hagkvæmni grunnskóla til að finna heildarútgjaldaþörf hvers sveitarfélags vegna reksturs grunnskóla sem reiknuð er á grundvelli 3. mgr. 10. gr. og 21. gr. Líta má á niðurstöðu reiknilíkansins um stærðarhagkvæmni sem útreiknaðan kennslustundafjölda á hvern nemanda vegna almennrar kennslu í grunnskólum.
j. Lágt fasteignamat: Byggist á hlutfallslegum mismun á fasteignamati á viðmiðunareign milli sveitarfélaga. Viðmiðunareign er 25 ára steinsteypt einbýlishús á einni hæð af hefðbundinni gerð þar sem íbúðarflatarmál er 113,1 fm og bílskúr 48 fm og stendur á 808 fm lóð. Miða skal við fasteignamat viðmiðunareignar að því marki sem það er umfram 60% lægra en hjá því sveitarfélagi sem var með hæsta fasteignamat viðmiðunareignar árið á undan. Stuðullinn reiknast eingöngu fyrir sveitarfélög með að minnsta kosti einn byggðarkjarna.
3. gr.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
þar sem Tp táknar tekjuhagkvæmniferil fyrir sveitarfélag með íbúafjöldann p og talan 0,23 táknar hlutfall stærðarhagkvæmni. Formúlan lýsir línulegri lækkun ferilsins á íbúafjöldabilinu 2.000 til 10.000.
4. gr.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
þar sem x er útgjaldabreyta, µ er meðaltal sömu breytu og σ staðalfrávik hennar. Tilgangur stöðlunarinnar er að umbreyta breytunum þannig að taka megi vegið meðaltal þeirra.
5. gr.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
þar sem zi er útgjaldabreyta i, wi er vægi útgjaldabreytu i og Σ wi = 1. Talan 0,2 táknar styrk útgjaldastuðulsins í líkaninu. Stuðullinn s tekur gildið 1 fyrir sveitarfélög þar sem færri en 6.000 íbúar búa, gildið 0,5 fyrir sveitarfélög þar sem fleiri en 8.000 íbúar búa en fyrir sveitarfélög með íbúafjölda á bilinu 6.001 til 7.999 gildir formúlan:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tilgangur formúlunnar er að taka vegið meðaltal útgjaldabreytna og stýra styrk útgjaldastuðulsins í líkaninu.