Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 876 — 242. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu.
Svar þetta er byggt á upplýsingum sem bárust frá undirstofnunum ráðuneytisins auk gagna úr bókhaldskerfum ríkisins. Gögnin endurspegla skráningu stofnananna sjálfra og voru fengin með formlegri fyrirspurn frá ráðuneytinu. Í sumum tilvikum liggja ekki fyrir aðgengilegar eða samræmdar upplýsingar um tegund innkaupa, aðkomu utanaðkomandi aðila eða afmörkun starfa en slíkt er tilgreint sérstaklega eftir því sem við á. Fjárhagsleg gögn eru sett fram í samræmi við flokkun í fjárhagskerfum.
1. Hversu margir aðilar kaupa inn hvers kyns vörur eða þjónustu á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana?
Innkaup á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála hjá stofnunum sem heyra undir dómsmálaráðuneytið eru almennt ekki á ábyrgð sérstakra starfsmanna eða eininga og vinnast eftir atvikum samhliða öðrum störfum. Slík verkefni eru oftast hluti af almennri starfsemi innan fjármála- eða rekstrarsviðs hverrar stofnunar. Ábyrgð og verkaskipting við innkaup á þessu sviði er því breytileg eftir umfangi og starfsemi stofnunar.
Fáar stofnanir hafa skilgreint sérstakar stöður með beina og afmarkaða ábyrgð á upplýsingatæknikaupum.
Þar sem ábyrgð á þessum verkefnum er jafnan dreifð innan stofnana og mörg þeirra eru unnin í samstarfi við aðra aðila eða utanaðkomandi ráðgjafa, liggja ekki fyrir nákvæmar heildartölur um fjölda þeirra sem formlega annast innkaup á vörum eða þjónustu á sviði upplýsingatækni. Svör frá stofnunum gefa til kynna að slík innkaup séu yfirleitt framkvæmd sem hluti af venjubundinni starfsemi stofnunar, án sérstakrar aðgreiningar eða formlegrar verkaskiptingar.
Í tilviki ráðuneytisins fer ábyrgð á upplýsingatæknitengdum innkaupum fram með aðkomu sérfræðinga í upplýsingatækni en samþykktarvald liggur hjá skrifstofustjóra fjármála og rekstrar. Þá er ráðuneytið með þjónustusamning við Umbru um kaup á skrifstofubúnaði og rekstur málaskrár en annast aðrar tæknilausnir sjálft ef tilefni er til.
Yfirlit yfir hverjir sinna upplýsingatæknitengdum innkaupum er sett fram í töflu 1. Taflan gefur vísbendingu um fjölda starfsmanna sem formlega koma að slíkum innkaupum hjá hverri stofnun.
Tafla 1. Sérhæft starfsfólk og umsjón með innkaupum á upplýsingatækni og stafrænum málum.
| Stofnun/embætti | Sérhæft starfsfólk og umsjón með upplýsingatæknimálum |
| Dómstólasýslan og dómstólar | Enginn sérhæfður starfsmaður í innkaupum. Einn tæknimaður aðstoðar við greiningu þarfa. Leitað er ráðgjafar hjá Fjársýslunni og/eða utanaðkomandi sérfræðingum þegar um sérhæfð mál er að ræða. |
| Dómsmálaráðuneytið | Tveir sérfræðingar í upplýsingatækni, ekki sérhæfðir í innkaupum en hafa þekkingu og yfirsýn yfir markaðinn og aðstoða ráðuneytið og undirstofnanir. |
| Ríkislögreglustjóri | Einn sérfræðingur í innkaupum sem vinnur með sérfræðingum á viðkomandi sviðum. |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | Enginn sérhæfður starfsmaður; þjónusta sótt til tölvudeildar ríkislögreglustjóra. |
| Lögreglustjórinn á Vesturlandi | Nei. |
| Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | Nei. Ríkislögreglustjóri sér um tölvukerfi lögreglunnar á landsvísu. |
| Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | Sérhæft starfsfólk í upplýsingatækni í ýmsum deildum embættisins, m.a. upplýsingatækni-, tölvurannsóknar- og rafeindadeild, sem koma að innkaupum ásamt fjármáladeild. |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | Nei. |
| Lögreglustjórinn á Austurlandi | Nei. |
| Lögreglustjórinn á Suðurlandi | Fimm starfsmenn með þekkingu á upplýsingatækni og stafrænum tæknimálum. |
| Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | Tveir kerfisstjórar. |
| Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | Nei. |
| Ríkissaksóknari | Nei. |
| Héraðssaksóknari | Einn kerfisstjóri sem að jafnaði annast innkaup á UT. Annað starfsfólk hefur stundum frumkvæði að innkaupum en þau eru langoftast borin undir kerfisstjórann. |
| Persónuvernd | Einn sérfræðingur í upplýsingaöryggi sem aðstoðar rekstrarstjóra við innkaup á UT eftir þörfum en starfar fyrst og fremst við úrlausn mála stofnunarinnar. |
| Sýslumenn | Nei. Ekki sérhæft starfsfólk en embættin hafa keypt ráðgjöf varðandi UT-mál og unnið í samstarfi við Ríkiskaup vegna útboða. |
| Útlendingastofnun | Tveir starfsmenn sinna m.a. þessum verkefnum. |
| Kærunefnd útlendingamála | Nei. |
| Landhelgisgæslan | Rekur almenna upplýsingatæknideild fyrir kerfisrekstur og upplýsingaöryggi og sérhæfða tæknideild vegna varnarmála (NATO-kerfi). Starfsmenn þessara eininga sjá um innkaup fyrir sinn rekstur. |
| Fangelsismálastofnun | Einn starfsmaður. |
| Landskjörstjórn | Einn verkefnastjóri með reynslu í innkaupum á upplýsingatækni og stafrænum verkefnum. |
2. Hefur ráðuneytið og undirstofnanir þess á að skipa sérhæfðu starfsfólki vegna innkaupa á upplýsingatækni eða stafrænna mála?
Á flestum stofnunum fer ábyrgð á innkaupum á upplýsingatækni og stafrænni þjónustu fram sem hluti af öðrum rekstrarlegum eða tæknilegum verkefnum. Ekki er almennt gert ráð fyrir að þessi ábyrgð sé bundin við sérstakar stöður eða afmörkuð sem skilgreind stöðugildi í skipulagi stofnana.
Á einstaka stærri stofnunum, einkum hjá embætti ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslu Íslands, er ábyrgð á upplýsingatæknitengdum innkaupum að hluta til formlega skilgreind sem hluti af starfsemi upplýsingatæknieininga. Þar sem rekstur eða þróun kerfa byggist annars staðar á aðkeyptri þjónustu, er algengt að leitað sé til samstarfsaðila og ráðgjafa þegar innkaup krefjast sérhæfðrar þekkingar.
Í tilfelli ráðuneytisins sjálfs er ekki starfandi sérstakur starfsmaður sem annast innkaup upplýsingatækni en tveir sérfræðingar í upplýsingatækni aðstoða við greiningu og val á lausnum og hafa yfirsýn yfir markaðinn. Samþykkt á innkaupunum er hjá skrifstofustjóra fjármála og rekstrar.
Sundurliðað yfirlit yfir verkaskiptingu og ábyrgð innan einstakra stofnana er að finna í töflu 1.
3. Hver er heildarrekstrarkostnaður og fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess árin 2021, 2022, 2023 og 2024 vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaðarstöð og því hvort um er að ræða fjárfestingu eða rekstur. Einnig er óskað eftir að sá hluti rekstrar- og fjárfestingarkostnaðar sem telst vöru- eða þjónustukaup verði flokkaður eftir tegund innkaupa (lausafjárkaup, útboð, rammasamningar o.s.frv.) og hvort þau kaup voru með aðstoð Ríkiskaupa (Fjársýslunnar) eða annarra og þá hverra.
Heildarrekstrarkostnaður og fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála á árunum 2021–2024 er settur fram í töflum 2 og 3. Þar er útgjöldum skipt niður eftir árum og stofnunum, auk þess sem greint er á milli rekstrar (tafla 2) og fjárfestinga, þar á meðal þróunarverkefna og verka í vinnslu (tafla 3).
Tafla 2. Rekstrarútgjöld vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála hjá dómsmálaráðuneytinu og undirstofnunum, 2021–2024.
| Allar upphæðir eru í þús. kr. | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | |
| Rekstrarkostnaður | Hreyfingar innan árs | Hreyfingar innan árs | Hreyfingar innan árs | Hreyfingar innan árs | |
| Samtals | 1.369.638 | 1.478.639 | 1.975.666 | 2.010.874 | |
| 06101 Dómsmálaráðuneyti, aðalskrifstofa | Samtals | 36.076 | 40.433 | 41.737 | 46.627 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 850 | 1.120 | 376 | 318 | |
| 54 – Þjónusta i | 203 | 310 | 267 | 861 | |
| 55 – Þjónusta ii | 35.022 | 39.002 | 41.093 | 45.448 | |
| 06102 Stjórnartíðindi | Samtals | 1.715 | 2.098 | 2.139 | 2.811 |
| 54 – Þjónusta i | 55 | 309 | 184 | 747 | |
| 55 – Þjónusta ii | 1.660 | 1.789 | 1.956 | 2.064 | |
| 06111 Kosningar | Samtals | 9.895 | 1.198 | 2.816 | 5.415 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 6 | 939 | 129 | 77 | |
| 54 – Þjónusta i | 9.322 | 45 | 2.057 | 2.519 | |
| 55 – Þjónusta ii | 567 | 213 | 630 | 2.819 | |
| 06151 Kærunefnd útlendingamála | Samtals | 6.274 | 5.152 | 6.427 | 9.382 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 71 | 480 | 334 | 224 | |
| 54 – Þjónusta i | 1.517 | 900 | 1.009 | 675 | |
| 55 – Þjónusta ii | 4.686 | 3.772 | 5.084 | 8.482 | |
| 06190 Ýmis verkefni | Samtals | 394 | 535 | 9.689 | 25.470 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 3 | 0 | |||
| 54 – Þjónusta i | 216 | 3.757 | 13.382 | ||
| 55 – Þjónusta ii | 178 | 535 | 5.929 | 12.088 | |
| 06201 Hæstiréttur | Samtals | 16.662 | 9.838 | 15.033 | 12.241 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 1.816 | 94 | 280 | 142 | |
| 54 – Þjónusta i | 6.031 | 3.189 | 6.646 | 1.755 | |
| 55 – Þjónusta ii | 8.816 | 6.555 | 8.107 | 10.344 | |
| 06205 Landsréttur | Samtals | 9.617 | 8.084 | 9.238 | 10.591 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 63 | 824 | 275 | 282 | |
| 54 – Þjónusta i | 347 | 723 | 159 | 373 | |
| 55 – Þjónusta ii | 9.207 | 6.537 | 8.804 | 9.936 | |
| 06210 Héraðsdómstólar | Samtals | 24.514 | 20.414 | 26.213 | 27.346 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 910 | 425 | 1.075 | 1.035 | |
| 54 – Þjónusta i | 2.452 | 1.932 | 2.568 | 3.526 | |
| 55 – Þjónusta ii | 21.153 | 18.057 | 22.571 | 22.784 | |
| 06220 Dómstólasýslan | Samtals | 54.359 | 53.184 | 58.481 | 55.428 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 709 | 249 | 63 | 41 | |
| 54 – Þjónusta i | 4.434 | 10.280 | 8.688 | 7.995 | |
| 55 – Þjónusta ii | 49.216 | 42.655 | 49.730 | 47.391 | |
| 06231 Málskostnaður í opinberum málum | Samtals | 11.327 | 2.312 | 1.012 | 305 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 517 | 175 | 49 | 51 | |
| 54 – Þjónusta i | 10.652 | 2.015 | 606 | 253 | |
| 55 – Þjónusta ii | 157 | 122 | 357 | ||
| 06232 Opinber réttaraðstoð | Samtals | 0 | 963 | ||
| 54 – Þjónusta i | 963 | ||||
| 55 – Þjónusta ii | 0 | ||||
| 06251 Persónuvernd | Samtals | 16.585 | 11.570 | 14.252 | 18.804 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 192 | 231 | 434 | 612 | |
| 54 – Þjónusta i | 7.494 | 3.831 | 6.594 | 7.204 | |
| 55 – Þjónusta ii | 8.899 | 7.508 | 7.224 | 10.988 | |
| 06300 Héraðssaksóknari | Samtals | 36.369 | 24.717 | 35.409 | 38.685 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 1.301 | 1.943 | 1.104 | 1.513 | |
| 54 – Þjónusta i | 2.229 | 358 | 882 | 835 | |
| 55 – Þjónusta ii | 32.839 | 22.416 | 33.423 | 36.337 | |
| 06301 Ríkissaksóknari | Samtals | 8.261 | 8.278 | 8.969 | 8.960 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 141 | 92 | 422 | 149 | |
| 54 – Þjónusta i | 239 | 577 | 751 | 316 | |
| 55 – Þjónusta ii | 7.881 | 7.608 | 7.796 | 8.494 | |
| 06303 Ríkislögreglustjóri | Samtals | 405.903 | 321.323 | 376.065 | 583.893 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 24.665 | 21.844 | 16.508 | 8.572 | |
| 54 – Þjónusta i | 121.891 | 82.185 | 109.945 | 148.138 | |
| 55 – Þjónusta ii | 259.346 | 217.294 | 249.613 | 427.183 | |
| 06310 Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | Samtals | 123.674 | 130.258 | 152.992 | 196.401 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 1.413 | 6.835 | 6.234 | 21.779 | |
| 54 – Þjónusta i | 2.059 | 1.418 | 1.564 | 1.233 | |
| 55 – Þjónusta ii | 120.202 | 122.005 | 145.194 | 173.389 | |
| 06312 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | Samtals | 69.043 | 88.712 | 62.653 | 79.137 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 1.647 | 2.047 | 1.477 | 3.554 | |
| 54 – Þjónusta i | 716 | 727 | 299 | 1.777 | |
| 55 – Þjónusta ii | 66.680 | 85.938 | 60.876 | 73.806 | |
| 06313 Lögreglustjórinn á Vesturlandi | Samtals | 25.914 | 25.345 | 20.774 | 29.643 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 1.215 | 1.187 | 696 | 1.190 | |
| 54 – Þjónusta i | 0 | 58 | 566 | ||
| 55 – Þjónusta ii | 24.699 | 24.159 | 20.020 | 27.887 | |
| 06314 Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | Samtals | 11.984 | 13.677 | 13.087 | 16.148 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 94 | 286 | 249 | 95 | |
| 54 – Þjónusta i | 89 | 76 | 146 | 379 | |
| 55 – Þjónusta ii | 11.800 | 13.315 | 12.691 | 15.674 | |
| 06315 Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | Samtals | 8.317 | 8.701 | 10.272 | 12.356 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 233 | 47 | 256 | 298 | |
| 54 – Þjónusta i | 254 | 176 | 0 | 225 | |
| 55 – Þjónusta ii | 7.830 | 8.477 | 10.017 | 11.833 | |
| 06316 Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | Samtals | 12.414 | 11.896 | 14.655 | 19.646 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 1.437 | 4.116 | 2.486 | 2.200 | |
| 54 – Þjónusta i | 1.394 | 3.689 | 2.023 | 3.022 | |
| 55 – Þjónusta ii | 9.582 | 4.091 | 10.146 | 14.424 | |
| 06317 Lögreglustjórinn á Austurlandi | Samtals | 19.289 | 19.509 | 19.679 | 21.217 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 767 | 507 | 209 | 353 | |
| 54 – Þjónusta i | 551 | 350 | 324 | 706 | |
| 55 – Þjónusta ii | 17.971 | 18.652 | 19.146 | 20.159 | |
| 06318 Lögreglustjórinn á Suðurlandi | Samtals | 29.696 | 36.348 | 31.914 | 38.499 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 936 | 1.802 | 975 | 442 | |
| 54 – Þjónusta i | 119 | 1.597 | 130 | 361 | |
| 55 – Þjónusta ii | 28.641 | 32.949 | 30.809 | 37.696 | |
| 06319 Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | Samtals | 2.630 | 583 | 6.622 | 7.825 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 23 | 41 | 34 | 433 | |
| 54 – Þjónusta i | 0 | 22 | 177 | 361 | |
| 55 – Þjónusta ii | 2.607 | 520 | 6.410 | 7.031 | |
| 06390 Ýmis löggæslu- og öryggismál | Samtals | 194 | 2 | 2 | 3.283 |
| 54 – Þjónusta i | 70 | 2 | 2 | 3 | |
| 55 – Þjónusta ii | 124 | 3.280 | |||
| 06395 Landhelgisgæsla Íslands | Samtals | 192.086 | 211.597 | 252.748 | 243.391 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 126.938 | 151.849 | 188.908 | 160.204 | |
| 54 – Þjónusta i | 9.362 | 10.895 | 7.989 | 16.483 | |
| 55 – Þjónusta ii | 55.786 | 48.853 | 55.851 | 66.704 | |
| 06398 Útlendingastofnun | Samtals | 66.685 | 98.505 | 65.775 | 122.481 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 579 | 1.098 | 218 | 1.669 | |
| 54 – Þjónusta i | 34.761 | 43.535 | 26.386 | 47.196 | |
| 55 – Þjónusta ii | 31.344 | 53.872 | 39.172 | 73.616 | |
| 06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd | Samtals | 2.959 | 153.540 | 438.450 | 51 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 31 | 821 | 1.440 | ||
| 54 – Þjónusta i | 305 | 4.609 | |||
| 55 – Þjónusta ii | 2.928 | 152.414 | 432.401 | 51 | |
| 06441 Sýslumaður höfuðborgarsvæðisins | Samtals | 48.000 | 29.620 | 29.517 | 33.613 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 847 | 1.064 | 2.755 | 606 | |
| 54 – Þjónusta i | 253 | 322 | 641 | 408 | |
| 55 – Þjónusta ii | 46.899 | 28.234 | 26.121 | 32.600 | |
| 06442 Sýslumaður Vesturlands | Samtals | 8.726 | 2.525 | 2.410 | 3.129 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 209 | 40 | 56 | 15 | |
| 54 – Þjónusta i | 48 | ||||
| 55 – Þjónusta ii | 8.518 | 2.485 | 2.307 | 3.114 | |
| 06443 Sýslumaður Vestfjarða | Samtals | 10.143 | 6.086 | 5.455 | 6.774 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 14 | 65 | 66 | 111 | |
| 54 – Þjónusta i | 664 | 2.098 | 546 | 1.013 | |
| 55 – Þjónusta ii | 9.466 | 3.923 | 4.843 | 5.649 | |
| 06444 Sýslumaður Norðurlands vestra | Samtals | 8.178 | 5.579 | 5.191 | 15.178 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 1.395 | 131 | 103 | 669 | |
| 54 – Þjónusta i | 970 | 2.050 | 1.902 | 8.894 | |
| 55 – Þjónusta ii | 5.814 | 3.399 | 3.187 | 5.615 | |
| 06445 Sýslumaður Norðurlands eystra | Samtals | 11.744 | 4.671 | 3.077 | 3.804 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 95 | 2.315 | 71 | 154 | |
| 54 – Þjónusta i | 121 | 139 | 1.063 | 398 | |
| 55 – Þjónusta ii | 11.528 | 2.218 | 1.943 | 3.252 | |
| 06446 Sýslumaður Austurlands | Samtals | 2.259 | 4.749 | 4.752 | 6.067 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 392 | 40 | 33 | 68 | |
| 54 – Þjónusta i | 1.084 | 1.106 | 2.671 | 3.266 | |
| 55 – Þjónusta ii | 783 | 3.603 | 2.048 | 2.733 | |
| 06447 Sýslumaður Suðurlands | Samtals | 17.173 | 68.178 | 136.539 | 201.428 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 237 | 156 | 200 | 276 | |
| 54 – Þjónusta i | 12.348 | 63.157 | 131.164 | 194.572 | |
| 55 – Þjónusta ii | 4.589 | 4.865 | 5.175 | 6.580 | |
| 06448 Sýslumaður Suðurnesja | Samtals | 9.046 | 4.553 | 4.449 | 6.489 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 99 | 98 | 133 | 85 | |
| 54 – Þjónusta i | 878 | 3.129 | 2.848 | 3.640 | |
| 55 – Þjónusta ii | 8.069 | 1.326 | 1.468 | 2.764 | |
| 06449 Sýslumaður Vestmannaeyja | Samtals | 4.212 | 2.140 | 2.634 | 3.742 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 20 | 7 | 47 | 15 | |
| 54 – Þjónusta i | 216 | 312 | 1.352 | 2.054 | |
| 55 – Þjónusta ii | 3.976 | 1.821 | 1.235 | 1.674 | |
| 06490 Ýmis rekstrarkostnaður sýslumannsembætta | Samtals | 3.994 | 0 | 25.400 | 41.032 |
| 54 – Þjónusta i | 3.870 | 0 | 25.400 | 41.032 | |
| 55 – Þjónusta ii | 124 | 0 | |||
| 06501 Fangelsismálastofnun ríkisins | Samtals | 43.325 | 42.728 | 58.176 | 53.581 |
| 52 – Vörukaup, almenn | 2.528 | 2.205 | 2.819 | 2.023 | |
| 54 – Þjónusta i | 6.584 | 6.759 | 7.248 | 9.628 | |
| 55 – Þjónusta ii | 34.214 | 33.764 | 48.109 | 41.930 | |
Tafla 3. Fjárfestingar og þróunarverkefni (verk í vinnslu) vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála hjá dómsmálaráðuneytinu og undirstofnunum, 2021–2024.
| Fjárfestingar í þús. kr. | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | |
| Stofnun | Kostn.flokkur | Hreyfingar innan árs | Hreyfingar innan árs | Hreyfingar innan árs | Hreyfingar innan árs |
| 06101 Dómsmálaráðuneyti, aðalskrifstofa |
Samtals | 997 | 1.321 | -1.039 | -53 |
| 18 – Eignakerfi | 854 | 995 | -1.480 | -521 | |
| 58 – Eignakaup | 143 | 326 | 441 | 468 | |
| 06111 Kosningar |
Samtals | 2.230 | 326 | 18.502 | |
| 18 – Eignakerfi | 1.985 | -369 | 16.727 | ||
| 58 – Eignakaup | 245 | 695 | 1.774 | ||
| 06151 Kærunefnd útlendingamála |
Samtals | 447 | 1.865 | 806 | 1.932 |
| 18 – Eignakerfi | 137 | 987 | -40 | 497 | |
| 58 – Eignakaup | 310 | 878 | 846 | 1.436 | |
| 06190 Ýmis verkefni |
Samtals | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 18 – Eignakerfi | 0 | 0 | 0 | 0 | |
| 06201 Hæstiréttur |
Samtals | -17 | -17 | -17 | -17 |
| 18 – Eignakerfi | -1.581 | -720 | -565 | -100 | |
| 58 – Eignakaup | 1.564 | 703 | 548 | 83 | |
| 06205 Landsréttur |
Samtals | 198 | 1.860 | 195 | 5.705 |
| 18 – Eignakerfi | -3.635 | -527 | -784 | 4.622 | |
| 58 – Eignakaup | 3.833 | 2.386 | 979 | 1.082 | |
| 06210 Héraðsdómstólar |
Samtals | 773 | 1.640 | 5.520 | 4.847 |
| 18 – Eignakerfi | -13.317 | -5.869 | 641 | -849 | |
| 58 – Eignakaup | 14.089 | 7.509 | 4.879 | 5.696 | |
| 06220 Dómstólasýslan |
Samtals | 6.001 | 3.380 | 19.588 | 10.619 |
| 18 – Eignakerfi | -2.701 | -5.992 | 9.355 | -5.514 | |
| 58 – Eignakaup | 8.702 | 9.372 | 10.233 | 16.132 | |
| 54 – Verk í vinnslu | 15.860 | 11.590 | 1.129 | 690 | |
| 55 – Verk í vinnslu | 320 | ||||
| 06231 Málskostnaður í opinberum málum | Samtals | 372 | |||
| 18 – Eignakerfi | 372 | ||||
| 06251 Persónuvernd |
Samtals | 1.558 | 1.570 | 1.279 | 811 |
| 18 – Eignakerfi | 97 | 509 | -292 | -495 | |
| 58 – Eignakaup | 1.460 | 1.061 | 1.571 | 1.306 | |
| 06300 Héraðssaksóknari |
Samtals | 537 | 4.300 | 299 | 5.047 |
| 18 – Eignakerfi | -1.819 | 1.524 | -2.248 | 2.521 | |
| 58 – Eignakaup | 2.356 | 2.776 | 2.547 | 2.525 | |
| 06301 Ríkissaksóknari |
Samtals | 511 | 387 | 2.702 | 970 |
| 18 – Eignakerfi | -340 | -538 | 1.734 | 142 | |
| 58 – Eignakaup | 851 | 924 | 968 | 828 | |
| 06303 Ríkislögreglustjóri |
Samtals | 315.114 | 79.063 | 83.118 | 146.264 |
| 18 – Eignakerfi | 253.140 | -23.925 | -34.020 | 19.271 | |
| 58 – Eignakaup | 61.975 | 102.989 | 117.138 | 126.993 | |
| 06310 Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu |
Samtals | 110 | 16.631 | 10.193 | 12.119 |
| 18 – Eignakerfi | -26.399 | 284 | -575 | -930 | |
| 58 – Eignakaup | 26.509 | 16.347 | 10.768 | 13.049 | |
| 06312 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum |
Samtals | 3.774 | 3.748 | 6.148 | 9.483 |
| 18 – Eignakerfi | -6 | -168 | 2.138 | 4.449 | |
| 58 – Eignakaup | 3.780 | 3.915 | 4.010 | 5.034 | |
| 06313 Lögreglustjórinn á Vesturlandi |
Samtals | 2.647 | 3.303 | 2.005 | 2.939 |
| 18 – Eignakerfi | -323 | 474 | -1.066 | -137 | |
| 58 – Eignakaup | 2.970 | 2.829 | 3.070 | 3.075 | |
| 06314 Lögreglustjórinn á Vestfjörðum |
Samtals | 206 | 190 | 563 | 988 |
| 18 – Eignakerfi | -485 | -85 | 191 | 362 | |
| 58 – Eignakaup | 691 | 275 | 372 | 626 | |
| 06315 Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra |
Samtals | 152 | 1.122 | 1.469 | 7.437 |
| 18 – Eignakerfi | -565 | 321 | 416 | 5.418 | |
| 58 – Eignakaup | 717 | 802 | 1.053 | 2.019 | |
| 06316 Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra |
Samtals | 2.637 | 10.619 | 2.494 | 4.710 |
| 18 – Eignakerfi | 397 | 7.540 | -1.898 | -153 | |
| 58 – Eignakaup | 2.240 | 3.079 | 4.392 | 4.863 | |
| 06317 Lögreglustjórinn á Austurlandi |
Samtals | 2.209 | 762 | 359 | -107 |
| 18 – Eignakerfi | 1.579 | -247 | -766 | -1.001 | |
| 58 – Eignakaup | 631 | 1.009 | 1.125 | 894 | |
| 06318 Lögreglustjórinn á Suðurlandi |
Samtals | 965 | 2.969 | 4.491 | 7.538 |
| 18 – Eignakerfi | -1.351 | 637 | 1.589 | 4.146 | |
| 58 – Eignakaup | 2.316 | 2.332 | 2.902 | 3.392 | |
| 06319 Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum |
Samtals | 126 | 411 | -42 | 169 |
| 18 – Eignakerfi | 50 | 315 | -167 | 13 | |
| 58 – Eignakaup | 76 | 96 | 126 | 156 | |
| 06390 Ýmis löggæslu- og öryggismál |
Samtals | 65.627 | 17.317 | ||
| 54 – Verk í vinnslu | 65.627 | 17.317 | |||
| 06395 Landhelgisgæsla Íslands |
Samtals | 10.569 | 16.806 | 16.531 | 45.053 |
| 18 – Eignakerfi | 718 | 5.445 | 6.490 | 28.554 | |
| 58 – Eignakaup | 9.851 | 11.361 | 10.041 | 16.499 | |
| 06397 Schengen-samstarf |
Samtals | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 18 – Eignakerfi | -6 | 0 | 0 | 0 | |
| 58 – Eignakaup | 6 | ||||
| 06398 Útlendingastofnun |
Samtals | 2.915 | 21.408 | 1.460 | 12.066 |
| 18 – Eignakerfi | 1.426 | 18.982 | -7.270 | 2.377 | |
| 58 – Eignakaup | 1.489 | 2.426 | 8.730 | 9.689 | |
| 54 – Verk í vinnslu | 23.672 | 39.376 | |||
| 06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd |
Samtals | 5.954 | 5.542 | 1.818 | -34 |
| 18 – Eignakerfi | 4.484 | 2.144 | -2.138 | -3.453 | |
| 58 – Eignakaup | 1.470 | 3.399 | 3.956 | 3.419 | |
| 06441 Sýslumaður höfuðborgarsvæðisins |
Samtals | 7.275 | 3.475 | 1.604 | 1.383 |
| 18 – Eignakerfi | 4.986 | -61 | -2.041 | -1.364 | |
| 58 – Eignakaup | 2.289 | 3.535 | 3.646 | 2.747 | |
| 06442 Sýslumaður Vesturlands |
Samtals | 1.307 | 191 | 0 | 0 |
| 18 – Eignakerfi | 809 | -451 | -486 | -423 | |
| 58 – Eignakaup | 497 | 642 | 486 | 423 | |
| 06443 Sýslumaður Vestfjarða |
Samtals | 1.054 | 359 | 176 | -7 |
| 18 – Eignakerfi | 759 | -46 | -234 | -401 | |
| 58 – Eignakaup | 295 | 405 | 409 | 394 | |
| 06444 Sýslumaður Norðurlands vestra |
Samtals | 797 | 2.214 | 380 | 815 |
| 18 – Eignakerfi | 517 | 1.299 | -683 | -290 | |
| 58 – Eignakaup | 280 | 916 | 1.063 | 1.104 | |
| 06445 Sýslumaður Norðurlands eystra |
Samtals | 1.322 | 1.995 | 58 | 422 |
| 18 – Eignakerfi | 308 | 571 | -1.367 | -714 | |
| 58 – Eignakaup | 1.013 | 1.424 | 1.425 | 1.136 | |
| 06446 Sýslumaður Austurlands |
Samtals | 96 | 172 | 25 | 0 |
| 18 – Eignakerfi | -360 | -190 | -129 | -81 | |
| 58 – Eignakaup | 456 | 362 | 154 | 81 | |
| 06447 Sýslumaður Suðurlands |
Samtals | 1.809 | 2.469 | 640 | 689 |
| 18 – Eignakerfi | 974 | 1.056 | -844 | -415 | |
| 58 – Eignakaup | 835 | 1.413 | 1.484 | 1.104 | |
| 06448 Sýslumaður Suðurnesja |
Samtals | 317 | 1.516 | 191 | 458 |
| 18 – Eignakerfi | -336 | 884 | -428 | -121 | |
| 58 – Eignakaup | 653 | 633 | 619 | 579 | |
| 06449 Sýslumaður Vestmannaeyja |
Samtals | 354 | 1.693 | 453 | 19 |
| 18 – Eignakerfi | -221 | 1.100 | -289 | -697 | |
| 58 – Eignakaup | 575 | 593 | 742 | 716 | |
| 06501 Fangelsismálastofnun ríkisins |
Samtals | 3.266 | 3.217 | 9.775 | 15.149 |
| 18 – Eignakerfi | -379 | -794 | 4.757 | 8.602 | |
| 58 – Eignakaup | 3.645 | 4.011 | 5.018 | 6.547 | |
Við flokkun útgjalda er stuðst við ríkisbókhaldskerfi og útgjaldaflokka þess. Rekstrarkostnaður nær meðal annars til kaupa á búnaði, hýsingar, reksturs á hugbúnaði, afnot á hugbúnaði og sérfræðiþjónustu. Fjárfestingar eru bókaðar sem eignir eða verk í vinnslu í samræmi við reikningsskilareglur hins opinbera.
Undir ráðuneytið heyra um 40 stofnanir. Fæstar þeirra hafa eigin upplýsingatæknieiningar eða sérhæft starfsfólk á því sviði. Því byggist rekstur og þróun UT-kerfa í langflestum tilfellum á aðkeyptri þjónustu. Ríkislögreglustjóri rekur eigin upplýsingatæknieiningu og sinnir þróun og rekstri helstu kerfa lögregluembættanna, ákæruvalds og Útlendingastofnunar. Þá annast Landhelgisgæslan einnig upplýsingatæknirekstur á sínu innra kerfi og sýslumaðurinn á Suðurlandi sinnir sameiginlegum innkaupum á upplýsingatækni fyrir sýslumannsembættin. Dómsmálaráðuneytið sjálft hefur tvo starfsmenn sem sinna stafrænni þróun í samstarfi við Stafrænt Ísland og styðja við arfleifðarkerfi. Ráðuneytið ber jafnframt ábyrgð á rekstri sérstakra UT-innviða utan þjónustusviðs Umbra, m.a. vegna réttarvörslugáttar, Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðsins.
Dómsmálaráðuneytið sjálft hefur tvo starfsmenn sem sinna stafrænni þróun en þeir aðilar starfa í samræmi við tæknistefnu ríkisins og nýta innviði og þjónustu Stafræns Íslands eins og kostur er og ef verkefnin falla undir kjarnastarfsemi þeirra. Ráðuneytið og stofnanir þess nýta þannig þá fjárfestingu sem á sér stað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þetta teymi vinnur jafnframt að því að styðja við stofnanir ráðuneytisins í að skipta út arfleifðarkerfum í nánu samstarfi við viðeigandi stofnanir, enda er um að ræða mikla tækniskuld víðs vegar í kerfinu sem nauðsynlegt er að leysa til framtíðar, einkum og sér í lagi ef það á að vera hægt að nýta stafræna þjónustu og gervigreind til fulls. Ráðuneytið ber jafnframt ábyrgð á rekstri sérstakra UT-innviða utan þjónustusviðs Umbra. Þar undir eru verkefni eins og þróun réttarvörslugáttar sem er samstarfsverkefni ráðuneytisins og stofnana réttarvörslukerfisins Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðsins. Þessi verkefni eru jafnframt unnin í góðu samstarfi við Stafrænt Ísland. Þróunarvinnan er einmitt unnin í aðkeyptri þjónustu byggt á rammasamningi Stafræns Íslands í hugbúnaðargerð.
Aðgreining á því hvort útgjöld teljist til vöru- eða þjónustukaupa og í hvaða innkaupaformi þau voru framkvæmd (til dæmis sem lausafjárkaup, útboð eða rammasamningar) liggur ekki fyrir með kerfisbundnum hætti í öllum tilvikum. Þar sem slíkar upplýsingar voru tiltækar eru þær settar fram í töflu 1, þar á meðal hvort innkaupin fóru fram með aðstoð Ríkiskaupa eða annarra aðila.
4. Hvað starfar margt starfsfólk annars vegar og verktakar hins vegar á sviði upplýsingatækni eða stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
Stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru almennt ekki með afmarkaðan fjölda starfsmanna sem sinna upplýsingatæknimálum. Í flestum tilfellum er þjónustu og grunnrekstri útvistað til aðila á markaði.
Þróun eða sérhæfð verkefni á sviði stafrænnar þjónustu eru í flestum tilvikum unnin utan stofnana, af stafrænu Íslandi eða með aðkeyptri þjónustu og í einstaka tilfellum eru stofnanir sem sinna upplýsingatæknirekstri og þjónustu fyrir aðrar stofnanir.
Í svörum stofnana kemur fram að aðeins lítill hluti upplýsingatækniverkefna er unnin af eigin starfsfólki. Þjónustuaðilar eða aðilar á markaði sinna því slíkum verkefnum en nákvæmar upplýsingar um fjölda þeirra liggur ekki fyrir. Algengt er að stofnanir sem ekki hafa eigin upplýsingatæknieiningar kaupi þjónustu aðila sem búa yfir sérfræðiþekkingu til að sinna þróunarvinnu, þjónustu eða rekstri eftir þörfum. Þegar unnið er að stafrænum lausnum, sem beinast að þjónustu við borgarana, nýta stofnanir í langflestum tilvikum þjónustu Stafræns Íslands. Sé hins vegar um að ræða lausnir sem snúa að innri starfsemi eða bakendakerfum hafa stofnanir leitað til upplýsingatækniteymis ráðuneytisins sem styðja þær í ákvarðanatöku, innkaupum og þróun.
Þá má einnig nefna að stærri stofnanir, svo sem embætti ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsla, hafa yfir að ráða UT-einingum með fleiri en einn starfsmann. Á minni stofnunum er hins vegar lítið um slíkar einingar og innri þróun takmörkuð.
Yfirlit yfir fjölda starfsmanna og verktaka sem komu að upplýsingatæknimálum árið 2024 er sett fram í töflu 4.
Tafla 4. Fjöldi starfsfólks og verktaka á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála hjá dómsmálaráðuneytinu og undirstofnunum þess.
| Stofnun | Starfsfólk | Verktakar |
| Dómstólasýslan og dómstólar | 3 starfsmenn (Dómstólasýslan) | Samningar við fimm fyrirtæki, auk tímabundinna samninga |
| Dómsmálaráðuneytið | 2 starfsmenn (með öðrum verkefnum) | Verktakar eftir þörfum (rammasamningar Stafræns Íslands) |
| Ríkislögreglustjóri | 13,5 stöðugildi (14 starfsmenn) | Einn fastur verktaki, fleiri eftir þörfum |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 1 starfsmaður (að hluta) | Engir |
| Lögreglustjórinn á Vesturlandi | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 3–13 starfsmenn | Engir |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á Austurlandi | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 6–8 starfsmenn (að hluta) | Engir |
| Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 2 kerfisstjórar | Engir |
| Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | Enginn | Engir |
| Ríkissaksóknari | Enginn | Engir |
| Héraðssaksóknari | 3 starfsmenn (kerfisstjóri, skjalastjóri, lögreglufulltrúi) | Engir |
| Persónuvernd | 1 sérfræðingur í upplýsingaöryggi | Aðkeypt þjónusta frá Opnum kerfum eftir þörfum |
| Sýslumenn | 4,5 stöðugildi | Þrír forritarar á vegum verktaka |
| Útlendingastofnun | 2 starfsmenn (með öðrum verkefnum) | Þjónusta keypt eftir þörfum |
| Kærunefnd útlendingamála | 2 starfsmenn (með öðrum verkefnum) | Engir |
| Landhelgisgæslan | 4 stöðugildi | Aðkeypt þjónusta eftir þörfum |
| Fangelsismálastofnun | 2 starfsmenn | Engir |
| Landskjörstjórn | 2 starfsmenn (með öðrum verkefnum) | Verktaki á vegum Stafræns Íslands og Þjóðskrár Íslands |
5. Hversu margt fólk starfar við hugbúnaðargerð eða þróun, svo sem fram- eða bakendaforritun, á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
Í svörum stofnana kemur fram að eiginleg hugbúnaðargerð eða sérsmíði upplýsingakerfa hafi verið í lágmarki síðustu ár. Flestar stofnanir nýta fyrirliggjandi lausnir, hvort sem þær eru þróaðar af innlendum aðilum, innleiddar í samstarfi við aðrar stofnanir eða keyptar sem þjónusta á markaði. Þróun nýrra lausna á vegum stofnana snýr einkum að tengingum milli kerfa, aðgengi að gögnum eða aðlögun að öðrum kerfum innan stjórnsýslunnar. Þessi þróun hefur leitt til þess að víða standa stofnanir frammi fyrir tækniskuld, einkum þar sem eldri lausnir hafa ekki verið endurnýjaðar eða aðlagaðar að þeim auknu kröfum sem gerðar eru um stafræna þjónustu. UT-teymi ráðuneytisins hefur, í samstarfi við stofnanir, unnið að kortlagningu þessara þátta með það að markmiði að stuðla að meiri samræmingu, bæta nýtingu og tryggja að upplýsingakerfi stofnana séu rekstrarhæf og þróunarfær til framtíðar.
Þegar ráðist er í sértæk verkefni á þessu sviði er algengt að stofnanir leiti til ytri verktaka með sérhæfða þekkingu, hvort sem um ræðir innlend hugbúnaðarfyrirtæki, einstaka ráðgjafa eða samstarfsaðila í sameiginlegum rekstri. Slík verkefni beinast oft að skjalavistunarkerfum, þjónustukerfum, gögnum eða sérlausnum sem styðja við tiltekin stjórnsýsluverkefni. Upplýsingar um þróunarverkefni og sérsmíði kerfa á tímabilinu 2021–2024 eru settar fram í töflu 5.
Tafla 5. Fjöldi starfsfólks og verktaka á sviði hugbúnaðargerðar og þróunar (fram- og bakendaforritun) hjá dómsmálaráðuneytinu og undirstofnunum þess.
| Stofnun | Starfsfólk | Verktakar |
| Dómstólasýslan og dómstólar | Enginn | Samningur við verktaka |
| Dómsmálaráðuneytið | Enginn | Engir |
| Ríkislögreglustjóri | 4 forritarar og 1 deildarstjóri (bakendaforritun) | Aðkeypt framendaforritun |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á Vesturlandi | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | Embættið sér ekki um þróun kerfa | Ekki viðeigandi |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á Austurlandi | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á Suðurlandi | Enginn | Engir |
| Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 1 starfsmaður (að hluta) | Engir |
| Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | Enginn | Engir |
| Ríkissaksóknari | Enginn | Engir |
| Héraðssaksóknari | 1 starfsmaður (að hluta) | Tölvunarfræðinemi frá HR |
| Persónuvernd | Enginn | Engir |
| Sýslumenn | Enginn | Þrír forritarar á vegum verktaka (framendaforritun) |
| Útlendingastofnun | Enginn | Engir |
| Kærunefnd útlendingamála | Enginn | Engir |
| Landhelgisgæslan | Enginn | Engir |
| Fangelsismálastofnun | Enginn | Engir |
| Landskjörstjórn | Enginn | Verktaki á vegum Stafræns Íslands og Þjóðskrár Íslands |