Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 878 — 334. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um túlkaþjónustu.
1. Hver hefur verið heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu á eftirtöldum sviðum undanfarin fimm ár:
a. lögregla og löggæsla,
b. fullnusta refsinga,
c. ákæruvald, dómstólar, réttarfar og réttaraðstoð,
d. málefni útlendinga, þar á meðal Útlendingastofnun?
Samkvæmt 2. gr. laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensk táknmáls, nr. 61/2011, skulu allir sem eru búsettir hér á landi eiga þess kost að læra og nota íslensku til almennrar þátttöku í íslensku þjóðlífi, svo sem nánar er kveðið á um í sérlögum. Í 7. gr. laganna kemur fram að dómstólum sé skylt að leita aðstoðar túlka og táknmálstúlka eftir því sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála. Þá skulu stjórnvöld leitast við að tryggja að sá sem ekki skilur íslensku geti fengið úrlausn erinda sinna og tileinkað sér efni skjala og gagna sem skipta hann máli.
Heildarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna túlkaþjónustu á sviðum löggæslu, fullnustu refsinga, ákæruvalds, dómstóla, réttarhalda og réttaraðstoðar, sem og á sviði málefna útlendinga, hefur verið sundurliðaður í meðfylgjandi töflu. Upplýsingarnar eru byggðar á skráningu gjalda undir gjaldaliðum 54460 (Þýðendur, túlkar) og 54461 (Þýðendur, túlkar án virðisaukaskatts) og ná yfir árin 2020 til og með 2024.
Upplýsingarnar eru teknar saman eftir stofnunum og varða bæði verkefni sem heyra undir lögregluembætti, ákæruvald og dómstóla, sem og stofnanir sem fara með málefni útlendinga og fullnustu refsinga.
| Allar upphæðir í þús. kr. | 54460 Þýðendur, túlkar | 54461 Þýðendur, túlkar, án VSK | Samtals | |
| Ár | Stofnun | Staða frá upphafi árs | Staða frá upphafi árs | Staða frá upphafi árs |
| 2020 |
Samtals | 94.370 | 61.880 | 156.250 |
| 06201 Hæstiréttur | 159 | 159 | ||
| 06220 Dómstólasýslan | 17 | 17 | ||
| 06231 Málskostnaður í opinberum málum | 60.209 | 19.576 | 79.785 | |
| 06232 Opinber réttaraðstoð | 2.015 | 2.015 | ||
| 06300 Héraðssaksóknari | 525 | 525 | ||
| 06301 Ríkissaksóknari | 54 | 54 | ||
| 06151 Kærunefnd útlendingamála | 252 | 1.099 | 1.351 | |
| 06303 Ríkislögreglustjóri | 12.921 | 1.686 | 14.607 | |
| 06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd | 17.713 | 39.519 | 57.232 | |
| 06501 Fangelsismálastofnun ríkisins | 505 | 505 | ||
| 2021 | Samtals | 104.060 | 49.400 | 153.460 |
| 06151 Kærunefnd útlendingamála | – | 870 | 870 | |
| 06231 Málskostnaður í opinberum málum | 65.800 | 22.530 | 88.330 | |
| 06232 Opinber réttaraðstoð | 10.570 | 550 | 11.120 | |
| 06303 Ríkislögreglustjóri | 20 | 790 | 810 | |
| 06310 Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 50 | 50 | ||
| 06301 Ríkissaksóknari | 20 | 20 | ||
| 06201 Hæstiréttur | 170 | 20 | 190 | |
| 06210 Héraðsdómstólar | 70 | 70 | ||
| 06220 Dómstólasýslan | 110 | 110 | ||
| 06398 Útlendingastofnun | 520 | 520 | ||
| 06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd | 25.820 | 24.450 | 50.270 | |
| 06501 Fangelsismálastofnun ríkisins | 960 | 140 | 1.100 | |
| 2022 | Samtals | 147.384 | 98.639 | 246.022 |
| 06151 Kærunefnd útlendingamála | 23 | 326 | 350 | |
| 06303 Ríkislögreglustjóri | 6.142 | 978 | 7.120 | |
| 06310 Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 16 | 26 | 42 | |
| 06315 Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 0 | 0 | ||
| 06318 Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 34 | 34 | ||
| 06319 Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 5 | 120 | 125 | |
| 06398 Útlendingastofnun | – | 89 | 89 | |
| 06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd | 60.292 | 66.184 | 126.476 | |
| 06501 Fangelsismálastofnun ríkisins | 470 | 684 | 1.154 | |
| 06201 Hæstiréttur | 383 | 383 | ||
| 06210 Héraðsdómstólar | – | 108 | 108 | |
| 06231 Málskostnaður í opinberum málum | 70.844 | 29.067 | 99.911 | |
| 06232 Opinber réttaraðstoð | 8.933 | 789 | 9.721 | |
| 06301 Ríkissaksóknari | 241 | 268 | 509 | |
| 2023 | Samtals | 158.754 | 140.485 | 299.239 |
| 06201 Hæstiréttur | 526 | 526 | ||
| 06210 Héraðsdómstólar | 76 | 148 | 224 | |
| 06231 Málskostnaður í opinberum málum | 108.717 | 50.583 | 159.300 | |
| 06232 Opinber réttaraðstoð | 5.344 | 3.608 | 8.952 | |
| 06301 Ríkissaksóknari | 101 | 101 | ||
| 06151 Kærunefnd útlendingamála | 35 | 243 | 277 | |
| 06303 Ríkislögreglustjóri | 1.766 | 89 | 1.855 | |
| 06310 Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 57 | 57 | ||
| 06312 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 59 | 59 | ||
| 06313 Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 74 | 80 | 154 | |
| 06316 Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 76 | 10 | 86 | |
| 06318 Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 24 | 24 | ||
| 06319 Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 12 | 29 | 41 | |
| 06398 Útlendingastofnun | 33 | 218 | 251 | |
| 06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd | 40.144 | 83.119 | 123.264 | |
| 06501 Fangelsismálastofnun ríkisins | 2.360 | 2.234 | 4.594 | |
| 2024 | Samtals | 168.896 | 119.673 | 288.569 |
| 06201 Hæstiréttur | 473 | 473 | ||
| 06205 Landsréttur | 10 | 10 | ||
| 06210 Héraðsdómstólar | 15 | 12 | 27 | |
| 06220 Dómstólasýslan | 205 | 205 | ||
| 06231 Málskostnaður í opinberum málum | 146.167 | 58.335 | 204.502 | |
| 06232 Opinber réttaraðstoð | 8.845 | 5.015 | 13.860 | |
| 06300 Héraðssaksóknari | 123 | 123 | ||
| 06301 Ríkissaksóknari | 153 | 153 | ||
| 06151 Kærunefnd útlendingamála | 103 | 103 | ||
| 06303 Ríkislögreglustjóri | 4.807 | 12 | 4.819 | |
| 06312 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 330 | 330 | ||
| 06313 Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 26 | 26 | ||
| 06314 Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | 20 | 20 | ||
| 06316 Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 225 | – | 225 | |
| 06398 Útlendingastofnun | 6.182 | 53.316 | 59.498 | |
| 06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd | 982 | 982 | ||
| 06501 Fangelsismálastofnun ríkisins | 1.613 | 1.604 | 3.217 | |
2. Hvaða reglur gilda um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess?
Réttur einstaklinga til túlkaþjónustu fer m.a. eftir lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61/2011, auk viðeigandi sérlaga, svo sem laga um meðferð einkamála og laga um meðferð sakamála.
Kaup á túlkaþjónustu hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fara eftir lögum um opinber innkaup. Samkvæmt þeim skulu opinberir aðilar kaupa þjónustu innan rammasamnings ef slíkur er til staðar. Ef um er að ræða verkefni sem vara lengur en þrjá mánuði, skal bjóða þjónustuna sérstaklega út. Þetta gildir um túlkaþjónustu, hvort sem hún er skrifleg eða munnleg.
3. Er til sundurliðun á aðkeyptri þjónustu og því vinnuframlagi sem þjónustan krefst þegar hún er unnin af fastráðnum starfsmönnum?
Ekki er sérstaklega haldið utan um skiptingu á milli aðkeyptrar túlkaþjónustu og þeirrar þjónustu sem veitt er af fastráðnu starfsfólki. Slík sundurliðun liggur því ekki fyrir í bókhalds- eða rekstrargögnum ráðuneytisins eða undirstofnana þess.