Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 880  —  208. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og stofnana sem heyra undir það verið frá árinu 2018 við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, þ.e. upplýsingakerfa, gagnagrunna, staðlaðs skrifstofuhugbúnaðar og annarra stafrænna innviða sem nýtast í almennum rekstri ríkisaðila? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, stofnunum og árum.

    Við vinnslu svarsins leitaði fjármála- og efnahagsráðuneytið til fimm undirstofnana sinna varðandi upplýsingar og gögn sem hér verða gerð frekari skil. Þess má geta að á því tímabili sem fyrirspurnin tekur til hafa orðið fjölmargar sameiningar á stofnunum og miðast svörin við núverandi skipan stofnana sem heyra undir ráðuneytið. Í meðfylgjandi töflu er að finna upplýsingar um þann hluta kostnaðar sem færður hefur verið til bókar á árunum 2018–2024 og telst hafa verið vegna þróunar upplýsingatæknilausna samkvæmt fyrirspurninni. Launakostnaður og kaup á tilbúnum lausnum eða notendaleyfum eru ekki tilgreind.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


*Aðalskrifstofa ráðuneytis ásamt kjara- og mannauðssýslu ríkisins.
**Verkefnastofa um samgöngugjöld, áætlanakerfi Stjórnarráðsins og Ísl. upplýsingasamfélagið.