Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 881  —  461. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um sýklalyf.


     1.      Er yfirlit um sýklalyfjanotkun manna og dýra skráð í rafrænan gagnagrunn? Ef svo er, hver ber ábyrgð á söfnun og miðlun gagna um ávísun og afhendingu sýklalyfja til manna og dýra?
    Samkvæmt 4. mgr. 9. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, er forstöðumönnum heilbrigðisstofnana skylt að senda sóttvarnalækni upplýsingar um magn sýklalyfja sem notað er á viðkomandi stofnun, skipt eftir deildum þar sem það á við.
    Upplýsingum um sýklalyfjanotkun dýra ber að skila til Matvælastofnunar á því sniði sem stofnunin óskar, sbr. reglugerð um sýkingalyf fyrir dýr, nr. 303/2023. Matvælastofnun svaraði ekki upplýsingabeiðni ráðuneytisins varðandi það hvort umræddar upplýsingar væru geymdar með rafrænum hætti þrátt fyrir ítrekun. Bent er á að Matvælastofnun heyrir ekki undir heilbrigðisráðuneytið heldur atvinnuvegaráðuneytið, sbr. j-lið 5. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

     2.      Hvernig fer skráning fram á sýklalyfjum sem gefin eru sjúklingum innan heilbrigðisstofnana, svo sem sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila og heilsugæslustöðva, þar sem lyfið er ekki leyst út í lyfjabúð?
    Lyfjagjafir, þ.m.t. sýklalyf eru skráð í rafræn lyfjafyrirmælakerfi Landspítala og annarra sjúkrastofnana. Eftirfarandi kerfi eru notuð: Therapy, CIS, CATO og Orbit. Á hjúkrunarheimilum fer lyfjagjöf ekki fram með hefðbundinni lyfjaávísun heldur eru lyf skráð beint í lyfjafyrirmælakerfi, svo sem eMed, á kennitölu sjúklings og eru þar af leiðandi rekjanleg. Lyfin eru afgreidd í samráði við það apótek sem hjúkrunarheimilið hefur samning við. Frá og með mars 2024 eru upplýsingar um skömmtun lyfja íbúa hjúkrunarheimila aðgengilegar í lyfjagagnagrunni embættis landlæknis. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins heldur ekki úti almennum lyfjalager til lyfjagjafa, að undanskildum bóluefnum, en bólusetningar eru skráðar í bólusetningagrunn. Önnur lyf sem gefin eru á stofnuninni eru afgreidd í gegnum lyfjaávísanakerfið. Það felur í sér að einstaklingur fær ávísað lyfi í lyfjaávísanagáttina, sækir lyfið í apótek og kemur með það með sér til lyfjagjafar á heilsugæslu. Lyfið er gefið til dæmis af hjúkrunarfræðingi. Sama verklag gildir almennt hjá öðrum heilsugæslustöðvum.

     3.      Telur ráðherra, með hliðsjón af aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn sýklalyfjaónæmi, að fyrirliggjandi skráningar- og upplýsingakerfi nái utan um alla notkun sýklalyfja, bæði dýra og manna, á fullnægjandi hátt? Ef svo er ekki, hvaða úrbóta er þörf?
    Ráðherra telur að gera þurfi betur og hefur m.a. af þessu tilefni lagt fram frumvarp á Alþingi, sbr. 257. mál, þar sem áætlað er að skráning lyfjafyrirmæla sem gefin eru á heilbrigðisstofnunum séu skráð í lyfjagagnagrunn, sbr. 16. og 26. gr. frumvarpsins. Með því verður öll lyfjanotkun skráð miðlægt á einum stað. Jafnframt er unnið að innleiðingu á miðlægu lyfjakorti þar sem bæði lyf afgreidd úr apótekum og lyfjafyrirmæli stofnana á að skrá á einn stað. Ráðherra telur brýnt að þessi mál nái fram að ganga til að halda utan um notkun sýklalyfja.