Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 882  —  236. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu.


    Við vinnslu svarsins leitaði ráðuneytið til undirstofnana sinna eftir upplýsingum og gögnum sem hér verða gerð frekari skil. Þess má geta að á því tímabili sem fyrirspurnin tekur til hafa orðið fjölmargar sameiningar á stofnunum og tekur svarið mið af núverandi skipan stofnana sem heyra undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðuneytis. Undir ráðuneytið heyrir verkefnastofa um stafrænt Ísland sem rekur miðlæga þjónustugátt, Ísland.is, fyrir opinbera aðila og veitir stofnunum ríkisins aðstoð við að bæta stafræna þjónustu og er sérstaklega gerð grein fyrir umfangi á rekstri hennar í svarinu.

     1.      Hversu margir aðilar kaupa inn hvers kyns vörur eða þjónustu á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
    Einn starfsmaður hjá ráðuneytinu hefur sinnt innkaupum á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála, ellefu hjá verkefnastofu um stafrænt Ísland, fjórir til fimm hjá Fjársýslu ríkisins, einn hjá Framkvæmdasýslunni, þrír hjá Skattinum, fimm hjá Umbru og einn hjá yfirskattanefnd.

     2.      Hefur ráðuneytið og undirstofnanir þess á að skipa sérhæfðu starfsfólki vegna innkaupa á upplýsingatækni eða stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
    Ráðuneytið og allar undirstofnanir þess, að undanskilinni yfirskattanefnd, hafa yfir að ráða sérhæfðu starfsfólki sem sér um innkaup á upplýsingatækni eða stafrænum málum, sbr. einnig svar við 1. tölul. Yfirskattanefnd leitar aðstoðar hjá Skattinum sem sér að mestu leyti um rekstur á tölvukerfum nefndarinnar. Auk þessa geta allar stofnanirnar leitað faglegrar aðstoðar hjá innkaupasviði Fjársýslu ríkisins (áður Ríkiskaupum) varðandi kaup á upplýsingatækni, gerð útboða og rammasamninga. Stafrænt Ísland hefur jafnframt sinnt ráðgefandi hlutverki til stofnana varðandi þau verkefni sem falla að þeirra starfsemi.

     3.      Hver var heildarrekstrarkostnaður og fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess árin 2021, 2022, 2023 og 2024 vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum eða kostnaðarstöð og því hvort um er að ræða fjárfestingu eða rekstur. Einnig er óskað eftir að sá hluti rekstrar- og fjárfestingarkostnaðar sem telst vöru- eða þjónustukaup verði flokkaður eftir tegund innkaupa (lausafjárkaup, útboð, rammasamningar o.s.frv.) og hvort þau kaup voru með aðstoð Ríkiskaupa (Fjársýslunnar) eða annarra og þá hverra.
    Hér að aftan má finna sundurliðun á rekstrarkostnaði og fjárfestingarkostnaði ráðuneytisins og undirstofnana vegna áranna 2021–2024. Þess ber að geta að undir fjárfestingarkostnað falla kaup á vélbúnaði, m.a. hvers konar tölvubúnaði auk fjárfestinga í óefnislegum eignum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


*Aðalskrifstofa ráðuneytis ásamt kjara- og mannauðssýslu ríkisins.
**Verkefnastofa um samgöngugjöld, áætlanakerfi Stjórnarráðsins og Ísl. upplýsingasamfélagið.


    Ekki er haldið sérstaklega utan um það miðlægt hvaða innkaupaferli er notað við einstaka kaup hjá hverri stofnun fyrir sig, auk þess sem ekki liggur fyrir í bókhaldi flokkun á vöru- og þjónustukaupum eftir tegund innkaupa. Markvisst er þó unnið að úrbótum á slíkri flokkun og hefur Fjársýsla ríkisins unnið að mælaborði innkaupa fyrir stjórnendur. Þó má nefna að samkvæmt upplýsingum frá stofnununum fara nær allar fjárfestingar Fjársýslunnar í gegnum rammasamninga og útboð, tölvukaup hjá Framkvæmdasýslunni og Skattinum sömuleiðis, auk þess sem fyrir liggur að 60–80% af rekstrarinnkaupum hjá Umbru fóru í gegnum rammasamninga eða útboð á tímabilinu.
    Umfangsmesti hluti fjárveitingar Stafræns Íslands fer í hugbúnaðarþróun sem keypt er í gegnum rammasamning um þverfagleg teymi á sviði hugbúnaðarþróunar. Sá samningur er boðinn út reglulega með aðstoð Fjársýslunnar.

     4.      Hvað starfar margt starfsfólk annars vegar og verktakar hins vegar á sviði upplýsingatækni eða stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
    Þrír starfsmenn hjá ráðuneytinu starfa á sviði gagna og upplýsingatæknimála, 11 hjá Stafrænu Íslandi, 20 hjá Fjársýslu ríkisins, tveir hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum, 44 hjá Skattinum og 23 hjá Umbru, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins.
    Fjöldi verktaka sem sinnir slíkum verkefnum byggist á mati hverrar stofnunar á hvað margir starfsmenn hafa unnið að hluta til að verkefnum fyrir viðkomandi stofnun. Það er mat Framkvæmdasýslunnar að um sé að ræða 20% stöðugildi í formi verktöku, hjá Umbru séu þeir að meðaltali um sex talsins en hjá Fjársýslunni er einn verktaki að störfum. Skatturinn kaupir þjónustu af fjölda fyrirtækja á sviði upplýsingatækni og hafa starfsmenn þessara fyrirtækja mismikla aðkomu að upplýsingatækniverkefnum fyrir Skattinn eftir umfangi og þörfum hverju sinni.
    Fyrirkomulag Stafræns Íslands er með þeim hætti að keypt er hugbúnaðarþróun af þeim fyrirtækjum sem eru í rammasamningi Stafræns Íslands hverju sinni. Í yfirstandandi útboði Stafræns Íslands á nýjum rammasamningi um þverfagleg teymi er gert ráð fyrir að semja við 20 teymi sem nýtt verða, eftir þörfum, yfir samningstímann.

     5.      Hversu margt fólk starfar við hugbúnaðargerð eða þróun, svo sem fram- eða bakendaforritun, á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
    Einn starfsmaður hjá ráðuneytinu starfar við hugbúnaðargerð eða þróun, 11 hjá Stafrænu Íslandi, fimm hjá Fjársýslu ríkisins, 1,5 hjá Framkvæmdasýslunni og u.þ.b. 12 hjá Skattinum.
    Engin eiginleg forritun fer fram hjá starfsfólki Stafræns Íslands heldur er hugbúnaðarþróun aðkeypt í gegnum útboð. Sérfræðingar Stafræns Íslands eru því sérfræðingar í því að leiða og stýra slíkri aðkeyptri hugbúnaðarþróun í samræmi við kröfur ríkisins.
    Hjá Skattinum starfa 23 starfsmenn í hugbúnaðardeild í störfum sem eru tengd upplýsingatæknimálum, einkum er varðar hugbúnað. Sinna þeir hönnun, þróun, smíði, innleiðingu og viðhaldi á sérsmíðuðum tæknilausnum. Ekki er haldið sérstaklega utan um hvern verkþátt en um 50% af vinnuframlagi þeirra tengist hugbúnaðargerð eða þróun.

     6.      Sér ráðherra sér hag í eða hefur hann áform um að auka samþættingu og hagræðingu varðandi stafræn mál innan opinberrar stjórnsýslu? Ef svo er, yrðu slík áform hugsuð fyrir bæði stjórnsýslustig?
    Síðastliðin ár hefur verið lögð áhersla á samþættingu og hagræðingu í stafrænni þjónustu með uppbyggingu Stafræns Íslands og Ísland.is. Með þróun miðlægrar stafrænnar kjarnaþjónusta til afnota fyrir opinbera stjórnsýslu skapast mikil tækifæri í betri nýtingu fjármuna þvert á öll stjórnsýslustig. Ráðuneytið er í virku samtali við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um aukið samstarf með samþættingu og hagræðingu að leiðarljósi fyrir bæði stjórnsýslustigin.