Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 883 — 416. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Jónínu Brynjólfsdóttur um eignarhald ríkisins á fasteignum á landsbyggðinni.
1. Hver er stefna ríkisins um eignarhald fasteigna á landsbyggðinni, m.a. um hvort treysta eigi alfarið á leigusamninga við sveitarfélög eða einkaaðila?
Í stefnu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um áherslur og viðmið í húsnæðismálum stofnana er lögð áhersla á að tryggja hagkvæma og markvissa húsnæðisnýtingu og ná fram markmiðum um fjölbreytt og sveigjanlegt vinnuumhverfi. Þar kemur fram að almennt sé miðað við að ríkið leigi ósérhæft húsnæði á almennum markaði fremur en að kaupa eða byggja slíkar eignir nema sérstök rök réttlæti aðra tilhögun. Það viðmið er óháð staðsetningu og er því leitast við að leigja húsnæði þar sem kostur er á því að því gefnu að leiguverð teljist hagstætt.
2. Nær fyrrgreind stefna til húsnæðis með sérhæfðum kröfum, svo sem starfsstöðva lögreglu við landamæri?
Viðmiðin í áðurnefndri stefnu ganga út frá því að ósérhæft húsnæði verði tekið á leigu á markaði sé þess kostur. Þegar um er að ræða sérhæft húsnæði er lagt mat á hagkvæmni lausna eftir því hvað telst fjárhagslega hagkvæmast fyrir ríkissjóð hverju sinni.
3. Telur ráðherra æskilegt að sveitarfélög taki að sér að byggja húsnæði með sérhæfðum kröfum fyrir ríkið á þeim svæðum þar sem markaðsaðstæður eru óhagstæðar, eins og óskað hefur verið eftir varðandi lögreglustöðina á Seyðisfirði?
Við öflun húsnæðis fyrir ríkið eru ýmsir valkostir skoðaðir og samstarf við sveitarfélög um samnýtingu á aðstöðu getur verið einn af þeim.
4. Telur ráðherra að núverandi stefna ríkisins um að leigja húsnæði á landsbyggðinni samræmist markmiðum stefnumótandi byggðaáætlunar 2022–2036 um fjölgun vinnurýma og óstaðbundinna starfa?
Í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 er fjallað um starfsemi ríkisins á landsbyggðinni þar á meðal staðarval ríkisstarfa og stjórnsýslustöðvar ríkis í héraði, en hún fjallar ekki um eignarhald ríkisins á húsnæði. Öflun ríkisins á húsnæði undir slíka starfsemi fer eftir sömu viðmiðum og fyrir aðra starfsemi ríkisins.
5. Hafa vinnustaðaklasar verið byggðir upp á landsbyggðinni frá ársbyrjun 2022 í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila, þannig að góð vinnuaðstaða sé tryggð sem víðast? Svar óskast sundurliðað eftir staðsetningu og stofnunum ríkisins.
Eini eiginlegi vinnustaðaklasinn sem hefur verið byggður upp á landsbyggðinni frá árinu 2022 er Gígur í Mývatnssveit þar sem Náttúruverndarstofnun, áður Umhverfisstofnun, er með starfsemi en hýsir einnig starfsstöðvar fyrir aðra. Sveitarfélaginu hefur staðið til boða að vera með aðstöðu í þeirri eign samhliða ríkinu. Á vefsíðu FSRE er að finna vefsjá sem sýnir myndrænt heildaryfirlit yfir fasteignir ríkisins og er hægt að sjá hvaða stofnun er í hverri fasteign.
Það sem vísað er til í fyrirspurninni heyrir undir verkefni B.7 Óstaðbundin störf í byggðaáætluninni og er framkvæmdaraðili þess verkefnis Byggðastofnun, sem heyrir undir innviðaráðherra. Á vef Byggðastofnunar er að finna yfirlit yfir þær starfsstöðvar sem í boði eru víða um land, þó svo að þær séu ekki á forræði ríkisins.
6. Hvað hefur vinnurýmum ríkisins á landsbyggðinni fjölgað mikið frá ársbyrjun 2022? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum og stofnunum ríkisins.
Frá árinu 2022 hefur vinnurýmum af ýmsum toga fjölgað á landsbyggðinni, þ.m.t. lögreglustöðvum, hjúkrunarheimilum og heilsugæslum auk skrifstofurýma. Upptalning þessi nær til nýrra vinnurýma, en ekki rýma sem komu í stað annarra, og telur ekki fjölda starfsstöðva í hverju rými.
| Landshluti | Fjöldi |
| Austurland | 1 |
| Norðurland eystra | 3 |
| Norðurland vestra | 1 |
| Suðurland | 3 |
| Suðurnes | 4 |
| Vesturland | 1 |
| Vestfirðir | 1 |