Ferill 491. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 884  —  491. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um lyfjakostnað ríkisins.


     1.      Hver voru heildarútgjöld ríkisins vegna lyfjakostnaðar ár hvert 2018–2024?
    Í eftirfarandi töflu má sá fjárheimild og heildarútgjöld vegna lyfjakostnaðar árin 2018– 2024 skipt niður á almenn lyf og leyfisskyld lyf.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     2.      Hver er áætlaður lyfjakostnaður ríkisins á yfirstandandi ári?
    Áætlaður lyfjakostnaður ríkisins á yfirstandandi ári skiptist annars vegar á almenn lyf í umsjón Sjúkratrygginga og hins vegar á leyfisskyld lyf í umsjón Landspítala.
     *      Fjárheimild fjárlagaliðar almennra lyfja (08-206.115) fyrir árið 2025 er 18.860,8 millj. kr. Samkvæmt útkomuspá Sjúkratrygginga frá því í maí 2025 er gert ráð fyrir að heildarútgjöld verði 19.815,0 millj. kr., sem er um 954,2 millj. kr. yfir fjárheimild eða 5%.
     *      Fjárheimild fjárlagaliðar leyfisskyldra lyfja (08-212.110) hjá Landspítala er 16.725,1 millj. kr. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Landspítala er gert ráð fyrir að útgjöld ársins verði 17.336,1 millj. kr. sem er um 611 millj. kr. umfram fjárheimild, eða 3,7% framúrkeyrsla.
    Það er umtalsvert minni fjárvöntun en í fyrri útkomuspá þar sem gert var ráð fyrir allt að 2.078 millj. kr. halla.
    Helstu skýringar samkvæmt Landspítala á því að fjárvöntun hefur dregist saman eru:
     *      Styrking lyfjaverðskrárgengis um 2,8% sem skilar sér í um 200 millj. kr. lækkun á útgjöldum.
     *      Takmörkuð innleiðing nýrra lyfja: Áætlað hafði verið að ný lyf myndu kosta um 300 millj. kr. á árinu, en samkvæmt nýjustu spá er gert ráð fyrir aðeins 175 millj. kr.
     *      Minni lyfjanotkun í tilteknum flokkum en áætlað var, einkum þar sem notkun jókst mikið frá árinu 2023 til 2024, en hélt sér ekki að fullu á þessu ári.
     *      Verðlækkun á leyfisskyldum lyfjum í kjölfar útboða, samninga og innleiðingar samheitalyfja og líftæknilyfshliðstæðna (biosimilars). Ávinningur af þessum lækkunum lá að hluta ekki fyrir í fyrri spám.

     3.      Hvaða óskir hafa undirstofnanir heilbrigðisráðuneytis sett fram um fjármagn til lyfjakaupa í samskiptum sínum við ráðuneytið undanfarin ár og hvernig hefur verið brugðist við þeim óskum?
    Undirstofnanir ráðuneytisins hafa ítrekað komið á framfæri óskum um aukið fjármagn til lyfjakaupa á undanförnum árum. Sérstaklega hafa þessar óskir komið til vegna:
     *      hækkunar lyfjakostnaðar vegna verðþróunar og fjölgunar notenda,
     *      tilkomu nýrra, kostnaðarsamra lyfja, einkum á sviði krabbameinslækninga og meðferða við sjaldgæfum sjúkdómum,
     *      aukinna væntinga um jafnræði og aðgengi að lyfjameðferð í samræmi við alþjóðleg viðmið.
    Landspítali hefur sérstaklega bent á vaxandi fjárhagslegan þrýsting vegna leyfisskyldra lyfja og lýst yfir áhyggjum af ósamræmi milli fjárheimilda og raunútgjalda. Í umsögn spítalans við fjárlög 2025 var spáð allt að 2 milljarða kr. halla á lyfjaliðnum, þótt sú spá hafi síðan batnað eins og fram hefur komið.
    Sjúkratryggingar Íslands hafa á sama hátt kallað eftir hækkun fjárheimilda til að mæta kostnaði við almenn lyf og lyfjagreiðsluþátttöku. Þeir hafa jafnframt bent á að núverandi kerfi tekur ekki nægilega mið af hraðri þróun á lyfjamarkaði.
    Viðbrögð ráðuneytisins hafa m.a. falist í eftirfarandi:
     *      Fjárheimildir hafa verið hækkaðar árlega, m.a. með vísun til verðlagsþróunar og fjölgunar notenda, þó að áhersla hefur verið lögð á að nýting fjármagns sé sem markvissust.
     *      Ráðuneytið hefur á undanförnum árum unnið að mótun verklags og forgangsröðunar við upptöku nýrra, kostnaðarsamra lyfja í samvinnu við fagráð, stofnanir og Sjúkratryggingar.
    Þrátt fyrir viðbætur í fjárlögum hefur ekki alltaf verið unnt að verða við öllum fjárhagslegum óskum stofnana og stendur ráðuneytið nú frammi fyrir því að endurmeta fjármögnun lyfja til framtíðar með tilliti til jafnræðis, kostnaðarsamra nýjunga og ábyrgðar á opinberum fjármálum.