Ferill 436. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 885  —  436. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um starfsstöðvar heilsugæslu og stöðugildi lækna.


     1.      Hversu margir íbúar búa á starfssvæði hverrar starfsstöðvar heilsugæslu á landsbyggðinni?
    Hagstofa Íslands birtir upplýsingar um mannfjölda eftir mismunandi flokkun landsvæða, en sú skipting er ekki alltaf sambærileg skiptingu heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi. Í hverju heilbrigðisumdæmi eru starfræktar heilsugæslustöðvar og heilsugæslusel en skipting einstaklinga niður á einstaka starfsstöðvar innan umdæmis byggist á verklagi hverrar heilbrigðisstofnunar. Fjöldi íbúa á starfssvæði hverrar starfsstöðvar heilsugæslu gefur því ekki endilega raunsannar upplýsingar um fjölda einstaklinga sem hver heilsugæslustöð veitir þjónustu að jafnaði. Samkvæmt fjármögnunarlíkani heilsugæslu á landsbyggðinni miðast greiðslur til heilsugæslustöðva við hvar einstaklingar eru skráðir á stöð. Hafa ber í huga að einstaklingar geta skráð sig á stöð að eigin vali og þarf sú skráning ekki alltaf að vera í samræmi við búsetu en óskráðir sjúkratryggðir einstaklingar eru skráðir á stöð í samræmi við búsetu.
    Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda skráðra á einstaka starfsstöðvar í lok maí 2025. Í júní opnaði nýtt heilsugæslusel í Suðurnesjabæ og færast þá skráðir skjólstæðingar á heilsugæslu Reykjanesbæjar (HSS) sem eiga lögheimili í Suðurnesjabæ yfir á nýja selið.

Heilsugæsla Starfsstöð/sel Fjöldi skráðra
Heilsugæslan Akranesi Akranes 8.972
Heilsugæslan Akureyri Akureyri 22.855
Heilsugæslan Akureyri Grenivík 319
Heilsugæslan Akureyri Grímsey 39
Heilsugæslan Blönduósi Blönduós 1.259
Heilsugæslan Blönduósi Skagaströnd 398
Heilsugæslan Borgarnesi Borgarnes 3.946
Heilsugæslan Búðardal Búðardalur 812
Heilsugæslan Búðardal Reykhólar 0
Heilsugæslan Dalvík Dalvík 1.872
Heilsugæslan Djúpavogi Breiðdalsvík 128
Heilsugæslan Djúpavogi Djúpivogur 529
Heilsugæslan Egilsstöðum Borgarfjörður eystri 101
Heilsugæslan Egilsstöðum Egilsstaðir 3.828
Heilsugæslan Fjallabyggð Ólafsfjörður 726
Heilsugæslan Fjallabyggð Siglufjörður 1.227
Heilsugæslan Hólmavík Hólmavík 482
Heilsugæslan Húsavík Húsavík 3.106
Heilsugæslan Húsavík Laugar 159
Heilsugæslan Húsavík Reykjahlíð 590
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Kópasker 267
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Raufarhöfn 184
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Þórshöfn 514
Heilsugæslan Hvammstanga Hvammstangi 1.195
Heilsugæslan Höfða Reykjanesbær 10.527
Heilsugæslan Höfn Höfn 2.552
Heilsugæslan í Fjarðabyggð Eskifjörður 839
Heilsugæslan í Fjarðabyggð Fáskrúðsfjörður 585
Heilsugæslan í Fjarðabyggð Neskaupstaður 1.460
Heilsugæslan í Fjarðabyggð Reyðarfjörður 1.750
Heilsugæslan í Fjarðabyggð Stöðvarfjörður 147
Heilsugæslan Ísafirði Bolungarvík 840
Heilsugæslan Ísafirði Flateyri 180
Heilsugæslan Ísafirði Ísafjörður 3.056
Heilsugæslan Ísafirði Suðureyri 286
Heilsugæslan Ísafirði Súðavík 173
Heilsugæslan Ísafirði Þingeyri 272
Heilsugæslan Kirkjubæjarklaustri Kirkjubæjarklaustur 700
Heilsugæslan Laugarási Laugarás 3.096
Heilsugæslan Patreksfirði Bíldudalur 138
Heilsugæslan Patreksfirði Patreksfjörður 970
Heilsugæslan Patreksfirði Tálknafjörður 175
Heilsugæslan Rangárþingi Hella 1.991
Heilsugæslan Rangárþingi Hvolsvöllur 1.955
Heilsugæslan Reykjanesbæ Reykjanesbær 17.429
Heilsugæslan Reykjanesbæ Vogar 595
Heilsugæslan Sauðárkróki Hofsós 184
Heilsugæslan Sauðárkróki Sauðárkrókur 4.037
Heilsugæslan Selfossi Selfoss 12.668
Heilsugæslan Seyðisfirði Seyðisfjörður 620
Heilsugæslan Snæfellsnesi Grundarfjörður 807
Heilsugæslan Snæfellsnesi Ólafsvík 1.537
Heilsugæslan Stykkishólmi Stykkishólmur 1.273
Heilsugæslan Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar 4.359
Heilsugæslan Vík í Mýrdal Vík í Mýrdal 1.075
Heilsugæslan Vopnafirði Vopnafjörður 679
Heilsugæslan Ölfusi Hveragerði 3.012
Heilsugæslan Ölfusi Þorlákshöfn 2.238
Samtals 135.713

     2.      Hversu marga íbúa gerir mönnunarlíkan ráð fyrir að hvert stöðugildi læknis þjónusti, skipt eftir starfsstöðvum heilsugæslu?
    Í skýrslunni um „Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar“ kemur fram að heilsugæsluviðmið eru sett þannig að sem flestir einstaklingar geti haft aðgang að eigin heimilislækni. Talið hefur verið raunhæft að miða við 1.200 til 1.500 einstaklinga á hvern heimilislækni. Aðstæður eru afar mismunandi eftir landsvæðum og gera þarf ráð fyrir hvort um þéttbýli eða dreifbýli er að ræða, annarri þjónustu í nágrenninu sem og vaktskyldu á sólarhringsvöktum þar sem hennar er þörf. Þessar upplýsingar er ekki hægt að greina niður á hverja heilsugæslustöð. Þess skal getið að einhverjar heilsugæslustöðvar hafa þróað nýtt verklag og er einstaklingur þá skráður á ábyrgð teymis fagaðila sem starfa á tiltekinni heilsugæslustöð.

     3.      Hversu margir íbúar liggja að baki hverju stöðugildi læknis á starfsstöðvum heilsugæslu á landsbyggðinni, skipt eftir starfsstöðvum?
    Almennt er miðað við þá forsendu að stöðugildi læknis sinni að jafnaði um 1.500 skjólstæðingum í þéttbýli og 1.200 í dreifbýli. Á minnstu heilsugæslustöðvum, þar sem þörf er á fullri mönnum vegna fjarlægðar- og öryggissjónarmiða þrátt fyrir að fjöldi skjólstæðinga sé innan við 1.200, þá má gera ráð fyrir (í kjölfar nýrra kjarasamninga lækna) að þörf sé á um tveimur ársstöðugildum lækna, en það er nú til skoðunar. Þetta á ekki við þegar um er að ræða heilsugæslusel með takmarkaðan opnunartíma.

     4.      Hvaða starfsstöð heilsugæslu tilheyrir hvert og eitt sveitarfélag á landinu?
    Sjá eftirfarandi töflu:

Heilsugæsla Starfsstöð/sel Sveitarfélag Póstnúmer
Heilsugæslan Akranesi Akranes Akraneskaupstaður 300
Heilsugæslan Akranesi Akranes Akraneskaupstaður 301
Heilsugæslan Akranesi Akranes Hvalfjarðarsveit 301
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Akureyrarkaupstaður 600
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Akureyrarkaupstaður 601
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Grýtubakkahreppur 601
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Akureyrarkaupstaður 603
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Hörgársveit 604
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Eyjafjarðarsveit 605
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Svalbarðsstrandarhreppur 606
Heilsugæslan Akureyri Akureyri Þingeyjarsveit 607
Heilsugæslan Akureyri Grenivík Grýtubakkahreppur 610
Heilsugæslan Akureyri Grenivík Grýtubakkahreppur 616
Heilsugæslan Akureyri Grímsey Akureyrarkaupstaður 611
Heilsugæslan Blönduósi Blönduós Blönduósbær 540
Heilsugæslan Blönduósi Blönduós Blönduósbær 541
Heilsugæslan Blönduósi Blönduós Húnavatnshreppur 541
Heilsugæslan Blönduósi Blönduós Húnavatnshreppur 561
Heilsugæslan Blönduósi Skagaströnd Skagabyggð 541
Heilsugæslan Blönduósi Skagaströnd Sveitarfélagið Skagaströnd 545
Heilsugæslan Blönduósi Skagaströnd Skagabyggð 546
Heilsugæslan Blönduósi Skagaströnd Sveitarfélagið Skagaströnd 546
Heilsugæslan Borgarnesi Borgarnes Borgarbyggð 310
Heilsugæslan Borgarnesi Borgarnes Borgarbyggð 311
Heilsugæslan Borgarnesi Borgarnes Skorradalshreppur 311
Heilsugæslan Borgarnesi Borgarnes Borgarbyggð 320
Heilsugæslan Borgarnesi Borgarnes Eyja- og Miklaholtshreppur 342
Heilsugæslan Búðardal Búðardalur Dalabyggð 370
Heilsugæslan Búðardal Búðardalur Dalabyggð 371
Heilsugæslan Búðardal Reykhólar Reykhólahreppur 380
Heilsugæslan Búðardal Reykhólar Reykhólahreppur 381
Heilsugæslan Dalvík Dalvík Dalvíkurbyggð 620
Heilsugæslan Dalvík Dalvík Dalvíkurbyggð 621
Heilsugæslan Dalvík Dalvík Akureyrarkaupstaður 630
Heilsugæslan Djúpavogi Breiðdalsvík Fjarðabyggð 760
Heilsugæslan Djúpavogi Breiðdalsvík Fjarðabyggð 761
Heilsugæslan Djúpavogi Djúpivogur Múlaþing 765
Heilsugæslan Djúpavogi Djúpivogur Múlaþing 766
Heilsugæslan Egilsstöðum Borgarfjörður eystri Múlaþing 720
Heilsugæslan Egilsstöðum Borgarfjörður eystri Múlaþing 721
Heilsugæslan Egilsstöðum Egilsstaðir Múlaþing 700
Heilsugæslan Egilsstöðum Egilsstaðir Fljótsdalshreppur 701
Heilsugæslan Egilsstöðum Egilsstaðir Múlaþing 701
Heilsugæslan Egilsstöðum Egilsstaðir Múlaþing 701
Heilsugæslan Egilsstöðum Egilsstaðir Fjarðabyggð 715
Heilsugæslan Fjallabyggð Ólafsfjörður Fjallabyggð 625
Heilsugæslan Fjallabyggð Ólafsfjörður Fjallabyggð 626
Heilsugæslan Fjallabyggð Siglufjörður Sveitarfélagið Skagafjörður 570
Heilsugæslan Fjallabyggð Siglufjörður Fjallabyggð 580
Heilsugæslan Fjallabyggð Siglufjörður Fjallabyggð 581
Heilsugæslan Fjarðabyggð Eskifjörður Fjarðabyggð 735
Heilsugæslan Fjarðabyggð Eskifjörður Fjarðabyggð 736
Heilsugæslan Fjarðabyggð Fáskrúðsfjörður Fjarðabyggð 750
Heilsugæslan Fjarðabyggð Fáskrúðsfjörður Fjarðabyggð 751
Heilsugæslan Fjarðabyggð Reyðarfjörður Fjarðabyggð 730
Heilsugæslan Fjarðabyggð Reyðarfjörður Fjarðabyggð 731
Heilsugæslan Fjarðabyggð Stöðvarfjörður Fjarðabyggð 755
Heilsugæslan Hólmavík Hólmavík Strandabyggð 510
Heilsugæslan Hólmavík Hólmavík Kaldrananeshreppur 511
Heilsugæslan Hólmavík Hólmavík Strandabyggð 511
Heilsugæslan Hólmavík Hólmavík Strandabyggð 512
Heilsugæslan Hólmavík Hólmavík Kaldrananeshreppur 520
Heilsugæslan Hólmavík Hólmavík Árneshreppur 524
Heilsugæslan Húsavík Húsavík Norðurþing 640
Heilsugæslan Húsavík Húsavík Norðurþing 641
Heilsugæslan Húsavík Húsavík Tjörneshreppur 641
Heilsugæslan Húsavík Húsavík Þingeyjarsveit 641
Heilsugæslan Húsavík Laugar Þingeyjarsveit 645
Heilsugæslan Húsavík Laugar Þingeyjarsveit 650
Heilsugæslan Húsavík Reykjahlíð Fljótsdalshérað (eldra) 660
Heilsugæslan Húsavík Reykjahlíð Norðurþing 660
Heilsugæslan Húsavík Reykjahlíð Skútustaðahreppur 660
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Kópasker Norðurþing 670
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Kópasker Norðurþing 671
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Raufarhöfn Norðurþing 675
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Raufarhöfn Norðurþing 676
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Þórshöfn Svalbarðshreppur 676
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Þórshöfn Langanesbyggð 680
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Þórshöfn Langanesbyggð 681
Heilsugæslan Húsavík N-Þings Þórshöfn Svalbarðshreppur 681
Heilsugæslan Hvammstanga Hvammstangi Húnaþing vestra 500
Heilsugæslan Hvammstanga Hvammstangi Húnaþing vestra 530
Heilsugæslan Hvammstanga Hvammstangi Húnaþing vestra 531
Heilsugæslan Höfða Reykjanesbær Reykjanesbær 235
Heilsugæslan Höfða Reykjanesbær Reykjanesbær 260
Heilsugæslan Höfða Reykjanesbær Reykjanesbær 262
Heilsugæslan Höfn Höfn Sveitarfélagið Hornafjörður 780
Heilsugæslan Höfn Höfn Sveitarfélagið Hornafjörður 781
Heilsugæslan Höfn Höfn Sveitarfélagið Hornafjörður 785
Heilsugæslan Ísafirði Bolungarvík Bolungarvíkurkaupstaður 415
Heilsugæslan Ísafirði Bolungarvík Bolungarvíkurkaupstaður 416
Heilsugæslan Ísafirði Flateyri Ísafjarðarbær 425
Heilsugæslan Ísafirði Flateyri Ísafjarðarbær 426
Heilsugæslan Ísafirði Ísafjörður Ísafjarðarbær 400
Heilsugæslan Ísafirði Ísafjörður Ísafjarðarbær 401
Heilsugæslan Ísafirði Ísafjörður Ísafjarðarbær 410
Heilsugæslan Ísafirði Ísafjörður Ísafjarðarbær 466
Heilsugæslan Ísafirði Suðureyri Ísafjarðarbær 430
Heilsugæslan Ísafirði Suðureyri Ísafjarðarbær 431
Heilsugæslan Ísafirði Súðavík Súðavíkurhreppur 401
Heilsugæslan Ísafirði Súðavík Súðavíkurhreppur 420
Heilsugæslan Ísafirði Súðavík Súðavíkurhreppur 421
Heilsugæslan Ísafirði Þingeyri Ísafjarðarbær 470
Heilsugæslan Ísafirði Þingeyri Ísafjarðarbær 471
Heilsugæslan Kirkjubæjarklaustri Kirkjubæjarklaustur Skaftárhreppur 880
Heilsugæslan Kirkjubæjarklaustri Kirkjubæjarklaustur Skaftárhreppur 881
Heilsugæslan Laugarási Laugarás Hrunamannahreppur 801
Heilsugæslan Laugarási Laugarás Skeiða- og Gnúpverjahreppur 804
Heilsugæslan Laugarási Laugarás Grímsnes- og Grafningshr. 805
Heilsugæslan Laugarási Laugarás Bláskógabyggð 806
Heilsugæslan Laugarási Laugarás Bláskógabyggð 840
Heilsugæslan Laugarási Laugarás Hrunamannahreppur 845
Heilsugæslan Laugarási Laugarás Hrunamannahreppur 846
Heilsugæslan Neskaupstað Neskaupstaður Fjarðabyggð 740
Heilsugæslan Neskaupstað Neskaupstaður Fjarðabyggð 741
Heilsugæslan Patreksfirði Bíldudalur Vesturbyggð 465
Heilsugæslan Patreksfirði Bíldudalur Vesturbyggð 466
Heilsugæslan Patreksfirði Patreksfjörður Vesturbyggð 450
Heilsugæslan Patreksfirði Patreksfjörður Vesturbyggð 451
Heilsugæslan Patreksfirði Tálknafjörður Tálknafjarðarhreppur 460
Heilsugæslan Patreksfirði Tálknafjörður Tálknafjarðarhreppur 461
Heilsugæslan Rangárþingi Hella Rangárþing ytra 850
Heilsugæslan Rangárþingi Hella Ásahreppur 851
Heilsugæslan Rangárþingi Hella Rangárþing ytra 851
Heilsugæslan Rangárþingi Hvolsvöllur Rangárþing eystra 860
Heilsugæslan Rangárþingi Hvolsvöllur Rangárþing eystra 861
Heilsugæslan Rangárþingi Hvolsvöllur Rangárþing ytra 861
Heilsugæslan Reykjanesbæ Reykjanesbær Reykjanesbær 230
Heilsugæslan Reykjanesbæ Reykjanesbær Reykjanesbær 233
Heilsugæslan Reykjanesbæ Reykjanesbær Grindavíkurbær 240
Heilsugæslan Reykjanesbæ Reykjanesbær Grindavíkurbær 241
Heilsugæslan Reykjanesbæ Sandgerði Suðurnesjabær 245
Heilsugæslan Reykjanesbæ Sandgerði Suðurnesjabær 246
Heilsugæslan Reykjanesbæ Sandgerði Suðurnesjabær 250
Heilsugæslan Reykjanesbæ Sandgerði Suðurnesjabær 251
Heilsugæslan Reykjanesbæ Vogar Sveitarfélagið Vogar 190
Heilsugæslan Reykjanesbæ Vogar Sveitarfélagið Vogar 191
Heilsugæslan Sauðárkróki Hofsós Sveitarfélagið Skagafjörður 565
Heilsugæslan Sauðárkróki Hofsós Sveitarfélagið Skagafjörður 566
Heilsugæslan Sauðárkróki Sauðárkrókur Sveitarfélagið Skagafjörður 550
Heilsugæslan Sauðárkróki Sauðárkrókur Sveitarfélagið Skagafjörður 551
Heilsugæslan Sauðárkróki Sauðárkrókur Sveitarfélagið Skagafjörður 560
Heilsugæslan Sauðárkróki Sauðárkrókur Akrahreppur 561
Heilsugæslan Sauðárkróki Sauðárkrókur Sveitarfélagið Skagafjörður 561
Heilsugæslan Selfossi Selfoss Sveitarfélagið Árborg 800
Heilsugæslan Selfossi Selfoss Sveitarfélagið Árborg 801
Heilsugæslan Selfossi Selfoss Flóahreppur 803
Heilsugæslan Selfossi Selfoss Sveitarfélagið Árborg 820
Heilsugæslan Selfossi Selfoss Sveitarfélagið Árborg 825
Heilsugæslan Seyðisfirði Seyðisfjörður Múlaþing 710
Heilsugæslan Seyðisfirði Seyðisfjörður Múlaþing 711
Heilsugæslan Snæfellsnesi Grundarfjörður Grundarfjarðarbær 350
Heilsugæslan Snæfellsnesi Grundarfjörður Grundarfjarðarbær 351
Heilsugæslan Snæfellsnesi Ólafsvík Snæfellsbær 355
Heilsugæslan Snæfellsnesi Ólafsvík Snæfellsbær 356
Heilsugæslan Snæfellsnesi Ólafsvík Snæfellsbær 360
Heilsugæslan Stykkishólmi Stykkishólmur Helgafellssveit 340
Heilsugæslan Stykkishólmi Stykkishólmur Stykkishólmsbær 340
Heilsugæslan Stykkishólmi Stykkishólmur Stykkishólmsbær 341
Heilsugæslan Stykkishólmi Stykkishólmur Reykhólahreppur 345
Heilsugæslan Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar Vestmannaeyjabær 900
Heilsugæslan Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar Vestmannaeyjabær 902
Heilsugæslan Vík í Mýrdal Vík í Mýrdal Mýrdalshreppur 870
Heilsugæslan Vík í Mýrdal Vík í Mýrdal Mýrdalshreppur 871
Heilsugæslan Vopnafirði Vopnafjörður Langanesbyggð 685
Heilsugæslan Vopnafirði Vopnafjörður Langanesbyggð 686
Heilsugæslan Vopnafirði Vopnafjörður Vopnafjarðarhreppur 690
Heilsugæslan Vopnafirði Vopnafjörður Vopnafjarðarhreppur 691
Heilsugæslan Ölfusi Hveragerði Hveragerðisbær 810
Heilsugæslan Ölfusi Hveragerði Hveragerðisbær 816
Heilsugæslan Ölfusi Þorlákshöfn Sveitarfélagið Ölfus 815
Heilsugæslan Ölfusi Þorlákshöfn Sveitarfélagið Ölfus 816

     5.      Við hvaða fjölda íbúa í þéttbýli og nærliggjandi byggðum er miðað þegar tekin er ákvörðun um að veita þeim íbúum ekki heilbrigðisþjónustu í heimabyggð?
    Forstöðumenn heilbrigðisstofnana skipuleggja þjónustu innan síns umdæmis eftir þörfum. Við skipulagningu þjónustu í fámennum byggðum er tekið mið af fjölda skjólstæðinga, fjarlægð frá næstu heilsugæslustöð, samgöngu- og öryggissjónarmiðum. Í þeim tilvikum þar sem þjónustan fer fram í húsnæði á vegum stofnunarinnar er starfsstöðin skilgreind sem heilsugæslusel og er þá opnunartíminn takmarkaður og tekur mið af fyrrgreindum atriðum. Þegar þjónustan fer ekki fram í húsnæði á vegum stofnunarinnar fer heilbrigðisstarfsfólk í heimavitjanir eftir þörfum. Dæmi um slíkt fyrirkomulag er þjónustan í Hrísey sem sinnt er af heilsugæslu Dalvíkur.