Ferill 449. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 887 — 449. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Pétri Zimsen um samninga við félagasamtök.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamning við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár og hver var fjárhæð greiðslna úr ríkissjóði til þessara félaga á grundvelli slíkra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi, eðli samnings og ári.
2. Hverjar voru heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölul. á sama tímabili og hvert var hlutfall samningsbundinna framlaga úr ríkissjóði af tekjum hvers þeirra á grundvelli umræddra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
3. Í hvaða erlenda styrktarsjóði, sem félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr, á málefna sviði ráðherra greiðir íslenska ríkið og hver var fjárhæð framlags Íslands í hvern þessara sjóða sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
4. Hversu háar fjárhæðir hafa íslensk félagasamtök á málefnasviði ráðherra samtals fengið úthlutað úr sjóðum sem íslenska ríkið greiddi í fyrrgreint tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
5. Hvert var hlutfall framlaga úr slíkum erlendum sjóðum af heildartekjum félagasamtaka sem hafa haft þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
6. Ef upplýsingar um heildartekjur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, hefur verið óskað eftir slíkum upplýsingum við gerð samninganna?
Við vinnslu svarsins var leitað til núverandi undirstofnana ráðuneytisins vegna fyrirspurnarinnar. Í svörum frá þeim kom fram að ekki hefðu verið gerðir umræddir samningar við félagasamtök hjá þeim sl. tíu ár.
Forsendur við gagnaöflun ráðuneytisins:
* Skoðuð voru þau fjögur málefnasvið sem eru á ábyrgð atvinnuvegaráðuneytisins (12-Landbúnaður, 13-Sjávarútvegur og fiskeldi, 14-Ferðaþjónusta, 16-Markaðseftirlit, neytendamál …).
* Skoðaðir voru þeir samningar sem birst hafa aftast í fylgiritum með fjárlögum hvers árs, í flokknum „Rekstrar- og þjónustusamningar“.
* Tímabilið sem er til skoðunar er 2017–2024 (frá fyrsta fylgiriti með fjárlögum).
* Á lista eru settir þeir lögaðilar sem hafa merkinguna „Félagasamtök“ sem rekstrarform í Fyrirtækjaskrá Skattsins.
1. Gildandi samningar hjá ráðuneytinu: Eingöngu hafa verið í gildi samningar við eftirtalda aðila (tölur eru í millj. kr.):
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Heildartekjur félaga: Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um þetta.
3. Greiðslur í erlenda styrktarsjóði sl. tíu ár: Ekki hefur verið greitt í erlenda styrktarsjóði.
4. Fjárhæðir úr erlendum styrktarsjóðum: Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um þetta.
5. Hlutfall framlaga úr erlendum styrktarsjóðum: Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um þetta.
6. Óskað eftir upplýsingum við gerð samninga: Nei, það hefur ekki verið gert.