Ferill 240. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 888 — 240. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu.
1. Hversu margir aðilar kaupa inn hvers kyns vörur eða þjónustu á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana?
| Matvælaráðuneytið | 1 * |
| Fiskistofa | 1 ** |
| Matvælastofnun | 1 |
| Hafrannsóknastofnun | 3 *** |
| Matís | 1 **** |
| Land og skógur | 3 |
| Samkeppniseftirlitið | 1 ***** |
| Ferðamálastofa | 2 |
| Neytendastofa | 1 ****** |
** Sviðsstjóri UT-sviðs sér um kaup á vörum og þjónustu á sviði upplýsingatækni.
*** Hjá Hafrannsóknastofnun mynda þrír einstaklingar innkaupateymi fyrir innkaup á vörum og þjónustu á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála. Þetta starf er hluti af starfsskyldum þessara starfsmanna. Verkefnum í upplýsingatækni má skipta í tvennt. Annars vegar í rekstur upplýsingatækniinnviða en þar undir falla kaup, rekstur og þjónusta við notendur, útstöðvar, netkerfi og netþjóna og kaup á hugbúnaði sem þessu tengist. Hins vegar eru verkefni sem snúa að hugbúnaði sem notaður er í rannsóknarstarfi stofnunarinnar.
**** Það sér einn aðili um innkaup á vörum, innkaup á þjónustu eru oftast í gegnum fjármálastjóra Matís. Það er ekki sérhæft starfsfólk í innkaupum á upplýsingatækni eða stafrænum málum. Aðstoð er fengin frá Opnum kerfum þegar það á við.
***** Rekstrarstjóri Samkeppniseftirlitsins sér um að kaupa inn vörur á sviði upplýsingatæknimála hjá stofnuninni.
****** Aðeins einn aðili er titlaður innkaupastjóri hjá NEST þó að forstjóri kaupi inn líka.
2. Hefur ráðuneytið og undirstofnanir þess á að skipa sérhæfðu starfsfólki vegna innkaupa á upplýsingatækni eða stafrænna mála?
| Matvælaráðuneytið | Já |
| Fiskistofa | Já |
| Matvælastofnun | Já |
| Hafrannsóknastofnun | Já * |
| Matís | Nei ** |
| Land og skógur | Já |
| Samkeppniseftirlitið | Nei *** |
| Ferðamálastofa | Nei |
| Neytendastofa | Nei |
** Það er ekki sérhæft starfsfólk í innkaupum á upplýsingatækni eða stafrænum málum. Aðstoð er fengin frá Opnum kerfum þegar það á við.
*** Samkeppniseftirlitið hefur ekki yfir að ráða sérhæfðu starfsfólki á sviði upplýsingatæknimála. Ef þörf er á sérstakri upplýsingatæknikunnáttu er leitað til þeirra sem upplýsingatækniþjónustu er útvistað til eða annarra sem búa yfir þeirri þekkingu sem vantar.
3. Hver var heildarrekstrarkostnaður og fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess árin 2021, 2022, 2023 og 2024 vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaðarstöð og því hvort um er að ræða fjárfestingu eða rekstur. Einnig er óskað eftir að sá hluti rekstrar- og fjárfestingarkostnaðar sem telst vöru- eða þjónustukaup verði flokkaður eftir tegund innkaupa (lausafjárkaup, útboð, rammasamningar o.s.frv.) og hvort þau kaup voru með aðstoð Ríkiskaupa (Fjársýslunnar) eða annarra og þá hverra.
Kostnaður var settur upp með samræmdum hætti fyrir ráðuneytið og stofnanir þess samkvæmt bókhaldskerfi ríkisins (Orra).
Matvælaráðuneytið.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Matvælaráðuneytið var sett á laggirnar í febrúar árið 2022, en allt það ár er hér tekið með.
Kaup á tölvubúnaði byggjast á rammasamningi ríkisins. Aðgangur að stöðluðum hugbúnaði, svo sem Microsoft og málakerfinu Örk, fer í gegnum þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, Umbru.
Fiskistofa.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Kaup á tölvubúnaði eru samkvæmt rammasamningi ríkisins. Í Samtals þjónusta ii færast m.a. reikningar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og aðgangur að ýmsum stöðluðum hugbúnaði – lausafjárkaup og útboð. Í Samtals þjónusta i kemur m.a. fram kostnaður samkvæmt samningum við verktaka.
Matvælastofnun.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Kaup á tölvubúnaði byggjast á rammasamningi ríkisins. Varðandi rekstrarkostnað er óskað eftir tilboðum, sbr. hugbúnaðar- og hýsingarkostnað, og einnig er um lausafjárkaup að ræða.
Hafrannsóknastofnun.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Aðkeypt sérfræðiþjónusta er unnin á grundvelli tilboða frá birgjum. Í dag eru nánast öll vörukaup í upplýsingatækni keypt samkvæmt rammasamningum. Önnur gjöld eru samkvæmt gjaldskrá aðila sem veita þjónustu á viðkomandi sviði, svo sem notendagjöld og gjöld til ríkisins.
Land og skógur.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Land og skógur var stofnað árið 2024 með sameiningu Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins.
Matís.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Bókhald hjá Matís fært með öðrum hætti en hjá ráðuneytum og öðrum stofnunum, þ.e. ekki fært í Orra.
Samkeppniseftirlitið.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Ferðamálastofa.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Neytendastofa.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hvað starfar margt starfsfólk annars vegar og verktakar hins vegar á sviði upplýsingatækni eða stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
| Stofnun | Fjöldi starfsfólks |
| Matvælaráðuneytið | 2 |
| Fiskistofa | 8* |
| Matvælastofnun | 4, enginn verktaki |
| Hafrannsóknastofnun | 6,5, verktaki 1** |
| Matís | 1, enginn verktaki |
| Land og skógur | 1, verktaki 1*** |
| Samkeppniseftirlitið | 0, verktaki**** |
| Ferðamálastofa | 1 |
| Neytendastofa | 0 |
** Hjá Hafrannsóknastofnun starfa sex einstaklingar í hugbúnaðarteymi sem sinnir verkefnum sem snúa að því að byggja upp og endurskrifa rannsóknarhugbúnað stofnunarinnar. Um 0,5 stöðugildi (hluti af verkefnum þriggja stjórnenda) sér um samninga og samskipti við Wise, sem sér rekstur upplýsingatækniinnviða hjá Hafrannsóknastofnun og mótar frekari þróun þessara innviða frá einum tíma til annars. Birgjar á sviði upplýsingatækni eru alls í kringum 20 á hverjum tíma. Þeirra þjónusta er t.d. að sjá um rekstur innviðaþjónustu í upplýsingatækni, útvega og þróa hugbúnað sem þá eru greidd notendaleyfi af, reka stafræn öryggiskerfi og svo aðilar sem sjá um miðlægan rekstur og þróun hugbúnaðar, þ.e. Umbra, Fjársýslan og Advania.
*** Hjá Landi og skógi er ekki starfandi hugbúnaðarteymi en Origio sér um tölvu- og netþjónustu við starfsfólk samkvæmt þjónustusamningi.
**** Upplýsingatækniþjónusta Samkeppniseftirlitsins er útvistuð. Það er Þekking/Wise sem sér um þessa þjónustu fyrir stofnunina.
5. Hversu margt fólk starfar við hugbúnaðargerð eða þróun, svo sem fram- eða bakendaforritun, á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
| Stofnun | Fjöldi stöðugilda |
| Matvælaráðuneytið | 0 |
| Fiskistofa | 6 |
| Matvælastofnun | 3 |
| Hafrannsóknastofnun | 6* |
| Matís | 0,2 |
| Land og skógur | 0 |
| Samkeppniseftirlitið | 0 |
| Ferðamálastofa | 1 |
| Neytendastofa | 0 |