Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 889 — 439. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Hrund Logadóttur um nám og öryggismál í ferðaþjónustu.
1. Telur ráðherra þörf fyrir öflugt verklegt og fræðilegt nám í ferðaþjónustu og fjallaleiðsögn til að tryggja öryggi ferðamanna og stuðla þannig að sjálfbærni greinarinnar til lengri tíma?
Öryggi ferðamanna er mikilvægt verkefni sem stjórnvöld og atvinnugreinin vinna stöðugt að því að reyna að tryggja með sem bestum hætti. Einn liður í því er að í greininni starfi vel menntað og þjálfað starfsfólk. Til þess þarf öflugt nám í ferðaþjónustu, m.a. í fjallaleiðsögn.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að stuðla að öryggi í ferðaþjónustu. Í ferðamálastefnu til 2030 sem samþykkt var á Alþingi í júní 2024 er jafnframt áhersla á að fagmennska, gæði og öryggi einkenni íslenska ferðaþjónustu.
Í aðgerðaáætlun með ferðamálastefnu til ársins 2030 eru aðgerðir sem snúast um að bæta menntun í ferðaþjónustu. Má þar fyrst nefna aðgerð E.2 Efling náms í ferðaþjónustu þvert á skólastig og aukið aðgengi að námi, sem snýst um að vinna að því að efla nám í ferðaþjónustu, þvert á skólastig, og auka aðgengi að því, með það að leiðarljósi að auka gæði og hæfni innan greinarinnar, efla og styrkja mannauð, sem leiðir til aukinnar þekkingar, starfsánægju, skilvirkni, framleiðni og samkeppnishæfni. Gerð verði úttekt á núverandi námi í ferðamálum og ferðaþjónustu og áætlun um þróun og eflingu námsins í samræmi við þróun atvinnugreinarinnar og stefnu stjórnvalda í ferðamálum, m.a. með áherslu á fjölmenningarvitund og inngildingu. Starfshópur er að störfum til að framfylgja þessari aðgerð og lýkur hann störfum í haust.
Starfshópur er einnig að störfum til að framfylgja aðgerð E.4 Alþjóðlegt nám í afþreyingartengdri ferðaþjónustu með áherslu á sjálfbærni. Starfshópurinn vinnur að því að hér á landi verði boðið upp á nám í ferðaþjónustu, með alþjóðlega viðurkenndri prófgráðu, í þeim tilgangi að auka fagmennsku innan greinarinnar, ásamt því að styrkja ásýnd og ímynd íslenskrar ferðaþjónustu. Starfshópurinn mun ljúka störfum í haust.
Þá er starfshópur að störfum til að framfylgja aðgerð E.7 Bætt öryggi ferðamanna, sem hefur til umfjöllunar menntunarkröfur til leiðsögumanna út frá öryggi ferðamanna. Einnig má nefna aðgerð E.3. Menntunarkrafa til leiðsögumanna sem starfa í þjóðgörðum. Markmið hennar er að samræmi sé innan þjóðgarða varðandi menntunarkröfur til leiðsögumanna.
2. Hefur ráðherra lagt mat á áhrif áforma mennta- og barnamálaráðuneytisins um að bjóða ekki upp á nám í fjallaleiðsögn við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu næsta haust í ljósi niðurstöðu ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli, og í samhengi við stöðu öryggismála í ferðaþjónustu almennt?
Menntun á framhaldsskólastigi heyrir undir mennta- og barnamálaráðuneyti. Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneyti eru til skoðunar leiðir til að tryggja áframhaldandi framboð á faglegu námi í fjallaleiðsögn.
Ráðherra hefur ekki lagt mat á áhrif þess að Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu bjóði ekki upp á nám í fjallaleiðsögn en telur mikilvægt að aðgengi að námi sé tryggt þegar gerðar eru menntunarkröfur í ferðaþjónustu.
Starfshópur til að framfylgja aðgerð E.7 um bætt öryggi ferðamanna í aðgerðaáætlun með ferðamálastefnu til 2030 var skipaður haustið 2024. Starfshópnum var m.a. falið að taka til nánari skoðunar nokkrar af tillögum ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir og er hann að störfum.
3. Hefur ráðherra unnið að því að tryggja að áfram verði boðið upp á nám í fjallaleiðsögn í samvinnu við mennta- og barnamálaráðherra og aðra ráðherra sem fara með skyld málefnasvið, svo sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, í ljósi mikilvægis námsins fyrir öryggi og orðspor ferðaþjónustu hér á landi?
Atvinnuvegaráðuneytið hefur átt fundi með mennta- og barnamálaráðuneyti þar sem komið hefur verið á framfæri mikilvægi öflugs náms í ferðaþjónustu.