Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 890 — 383. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um rannsóknir á nytjastofnum sjávar.
1. Hvaða rannsóknir standa yfir með það að markmiði að tryggja sem besta auðlindanýtingu á nytjastofnum sjávar?
Hér er fyrst að nefna að stofnmatsaðferðir, nýtingarhlutfall og nýtingarstefna stjórnvalda fara í reglulega rýni innan Hafrannsóknastofnunar og yfirleitt með aðkomu Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES). Slík vinna gerist árlega í tengslum við stofnmats- og veiðiráðgjafarvinnu en einnig á sérstökum rýnifundum um stofnmat. Á rýnifundum er farið yfir stofnmatsaðferðir, gögn sem liggja til grundvallar, viðmiðunarpunktar um sjálfbærni og varúðarnálgun endurmetnir og mismunandi aflareglur prófaðar fyrir stjórnvöld. Þessir fundir eru haldnir á 5–8 ára fresti eða oftar ef þörf krefur. Þetta er í flestum tilvikum einstofna mat, þ.e. ekki eru skoðaðar veiðar og nýting í fjölstofna samhengi.
Kerfisbundnar rannsóknir á nýtingu nytjastofna í fjölstofna samhengi eru skemmra á veg komnar enda viðfangsefnið ærið. Dæmi um slíkar rannsóknir og veiðiráðgjöf tengjast loðnu þar sem tekið er tillit til metins afráns þorsks, ýsu og ufsa í afránslíkani við ákvörðun á aflamarki loðnu. Eftir því sem gögn og upplýsingar leyfa er stefnt á útvíkkun líkansins svo það taki t.d. einnig tillit til afráns hvala. Innan Hafrannsóknastofnunar var nýverið settur á laggirnar sérstakur vistkerfishópur sem hefur margvísleg hlutverk og má þar nefna rannsóknir á tengslum umhverfis- og vistkerfisþátta á nytjastofna, að skoða fæðutengsl lífvera hafsins og frekari vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða. Þessi hópur vinnur þvert á svið í samvinnu við aðrar rannsóknastofnanir á Íslandi og í nágrannalöndum, og starfar sem sérstakur vinnuhópur innan ICES (Working group of integrated ecosystem assessment of Icelandic waters, WGICE).
Þekking á tengslum, blöndun og aðgreiningu mögulegra mismunandi stofna af sömu tegund er einnig mikilvæg til að tryggja sem áreiðanlegast stofnmat og besta nýtingu auðlinda. Af þeirri ástæðu er mikilvægt að sinna stofnerfðafræðirannsóknum og fiskmerkingum. Nokkrar rannsóknir eru í gangi á meðan aðrar bíða fjármögnunar.
Rannsóknir á stofnerfðafræði síldar í Norðaustur-Atlantshafi hafa verið í gangi í heilan áratug 1 en nú með meiri krafti en áður með styrkjum frá Verkefnasjóði Sjávarútvegsins og útgerðum uppsjávarveiðiskipa innan SFS ásamt styrkjum frá m.a. norska rannsóknaráðinu. Markmið þeirra er að þróa erfðamörk út frá greiningu alls erfðamengis allra stofnanna, sem hægt verður að nota til að greina á milli allra síldarstofna á hafsvæðunum. Jafnframt fer fram söfnun vefjasýna úr afla og rannsóknaleiðöngrum til að geta greint betur hlutfall hvers stofns, sem skilar sér m.a. í áreiðanlegra stofnmati. Stofnerfðafræði loðnu í Norðaustur-Atlantshafi hefur einnig verið rannsökuð sem hluti af doktorsverkefni í Noregi (óbirt) og samkvæmt niðurstöðum þess er þörf á frekari rannsóknum við Ísland þar sem komið hafa fram vísbendingar um fleiri en eina stofngerð loðnu. Frekari rannsóknir á loðnu bíða fjármögnunar og svipaða sögu má segja um rannsóknir á stofngerð hrognkelsis.
Í gangi er umfangsmikið áhersluverkefni, „Líffræðileg fjölbreytni innan lykiltegunda“, þar sem lagt er upp með að stórauka þekkingu okkar á stofngerð þorsksins við Ísland auk gönguhegðunar mismunandi stofngerðar hans. Þekking á stofngerðum þorsksins er grundvöllur þess að bæta megi ráðgjöf um vernd og veiðistjórnun en jafnframt skapast þá grundvöllur til að keyra stofnmat með tilliti til stofngerðar og tengsla við Grænland. Verkefnið hafði áður fengið sérstaka fjárveitingu á fjárlögum upp á tæplega 100 millj. kr. fyrir árin 2022 og 2023 2 en ekki fékkst fjárveiting árið 2024. Í upphafi var gert ráð fyrir fimm ára verkefni með um 200 millj. kr. fjárframlögum ár hvert. Hluti aukinna fjárveitinga vegna eflingar hafrannsókna hafa runnið til þessa verkefnis en einnig hefur verið sótt um styrki til VS-sjóðsins til áframhaldandi vinnu í verkefninu, m.a. til að vinna áfram við stofnerfðafræði og úrvinnslu merkingargagna en ýmsir verkþættir hafa fallið niður eða verið settir í biðstöðu.
2. Er til áætlun um hvaða rannsóknir þurfi að fara fram? Eru þær rannsóknir nú þegar fjármagnaðar? Ef ekki, er fyrirhugað að fjármagna þær?
Hafrannsóknastofnun setti fram stefnu árið 2023 til fimm ára þar sem helstu markmið voru efling vöktunar og grunnrannsóknir til að styrkja þekkingu á vistkerfum hafs og vatna, að ráðgjöf um vernd og sjálfbæra nýtingu sé veitt með vistkerfisnálgun að leiðarljósi og að auka sýnileika og þekkingu á starfsemi stofnunarinnar. Fyrir þessi markmið voru síðan skilgreind ellefu undirmarkmið.
Flestar af þeim aðgerðum hafa ratað inn í sérstök átaksverkefni sem hafa verið skilgreind í heild sinni sem efling hafrannsókna og hafa fengið sérstaka fjárveitingu, en samkvæmt greinargerð atvinnuvegaráðuneytisins um málaflokkinn í fjárlögum 2025 segir: „Fjárheimild málaflokksins hækkar um 230 m.kr. til eflingar hafrannsókna hjá Hafrannsóknastofnun með það að markmiði að skapa sjávarútvegi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Kemur sú hækkun til viðbótar 180 m.kr. framlagi til verkefnisins í fjárlögum 2024.“
Átaksverkefnin eru; Heildræn skoðun á vistkerfi hafs og vatna (vistkerfishópurinn sem minnst var á), „Kortlagning búsvæða, umhverfisbreytileika og líffræðilegrar fjölbreytni á lykilsvæðum – Vernd í hafi“, „Líffræðileg fjölbreytni innan lykiltegunda við vernd og veiðistjórnun“ (þorskverkefnið sem minnst var á), „Efling vöktunarrannsókna – á nytjategundum sem liðið hafa fyrir samdrátt“, „Bætt líkanagerð til að undirbyggja stofnmat“ og „Nýjar nytjategundir við Ísland“.
Sú fjárhagslega innspýting í starfsemi stofnunarinnar sem minnst er á hér að framan hefur verið nýtt til að keyra flest þessara verkefna af stað. Hafrannsóknastofnun hefur einnig sótt fjármagn í Evrópuverkefni sem tengjast með beinum hætti fyrrgreindum átaksverkefnum. Þannig tengjast þrjú ESB-verkefni átaksverkefninu „Vernd í hafi“. Verkefnið BioProtect snýst um þróun aðferðafræði og tæknilegra lausna til að auðvelda ákvarðanatöku um auðlindanýtingu eða verndun hafsvæða. Verkefnið REDRESS miðar að virkri endurreisn vistkerfa í djúpsjó, m.a. kóralsvæða, og verkefnið B-USEFUL miðar að því að þróa notendamiðaðar lausnir til að bæta eftirlit og stjórnun á líffræðilegri fjölbreytni og vistkerfisþjónustu í viðkvæmum hafsvæðum Evrópu.
Hvað varðar „Efling vöktunarrannsókna – á nytjategundum sem liðið hafa fyrir samdrátt“ þá stendur til að taka upp að nýju nauðsynlegar vaktanir á nytjastofnum sem hefur verið frestað vegna aðhaldskrafna undanfarinna fjárlaga. Hér er horft til 14 mismunandi tegunda sem hefur verið sinnt með fjölbreyttum hætti í mismunandi leiðöngrum. Í ár verða kannaðir stofnar sæbjúgna í tengslum við ástand sjávar, hörpudisksmið verða könnuð í Breiðafirði, stofnstærð humars metin með neðansjávarmyndavélum, rækja við Snæfellsnes verður könnuð og rækjuleiðangrar í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi verða samnýttir með umhverfisvöktun sjókvíaeldis. Farið verður í ungsíldarrannsóknir í haust í tengslum við síldarleiðangur.
Verkefnið „Bætt líkanagerð til að undirbyggja stofnmat“ snýr að bættri líkanagerð við stofnmat sem felur í sér bætta ferla og aukinn rekjanleika við líkanagerðina. Með þessu er stefnt að því að stofnmatsvinna Hafrannsóknastofnunar haldist í fremstu röð og að ráðgjafarhópur stofnunarinnar verði áfram leiðandi í lausnum tengdum stofnmati. Ýmis smærri verkefni hafa verið unnin á stofnuninni og ber að nefna þróun á hugbúnaði fyrir aldurslestur, vistun mynda af kvörnum og tengingu við gagnagrunna. Verið er að mynda eldri kvarnir og merkja inn ársvöxt þeirra en samhliða verður innleidd gervigreind til að aldursgreina með sjálfvirkum hætti og verður þar byggt á meistaraprófsverkefnum sem unnið hafa verið við Háskóla Íslands.
Hvað varðar verkefnið „Nýjar nytjategundir við Ísland“ má nefna rannsóknir á veiðimöguleikum rauðátu. Verkefnið er styrkt af m.a. Tækniþróunarsjóði Rannís og Matvælasjóði, en Hafrannsóknastofnun er samstarfsaðili í verkefninu. Einnig hafa verið unnin verkefni sem beinast að miðsjávartegundum, styrkt af Evrópusambandinu, og lauk á árinu 2024. Þetta voru verkefnin SUMMER ( summerh2020.eu/) og MEESO ( www.meeso.org/).
Þessi verkefni og verkefni er snúa að tækniskuld innviða snúa beint að því að tryggja sem besta auðlindanýtingu á nytjastofnum sjávar. Þau byggjast á markmiðum stjórnvalda um eflingu hafrannsókna sem sett hafa verið fram í undanförnum fjármálaáætlunum. Samtals var gert ráð fyrir um 3,6 milljarða kr. aukningu til næstu fimm ára árið 2023 í þessum átaksverkefnum sem áður hefur verið lýst en eldri fjármálaáætlanir gerðu ráð fyrir 3 milljarða kr. aukningu. Í nýjustu fjármálaáætlun er gert ráð fyrir 220 millj. kr. hækkun á árinu 2026 til eflingar hafrannsókna. Ljóst er að það þarf að draga eitthvað úr þeim átaksverkefnum sem sett voru fram, en aukning í ýmsum styrkjum frá Evrópusambandinu hefur einnig skipt töluverðu máli varðandi eflingu rannsókna.
Það sem er helst vanfjármagnað og hefur ekki verið nefnt eru stofnerfðafræðirannsóknir og tengsl þeirra við far fiskstofna með m.a. merkingum. Það er mat Hafrannsóknastofnunar að efla þurfi merkingar og hyggst stofnunin sækja fram í þeim efnum, m.a. með nýju VS-verkefni sem heitir „Áhrif friðunar á aðgengi og veiðanleika nytjafiska“, en þar er áætlað að fara í merkingarleiðangra, m.a. með línubátum. Einnig var byrjað að merkja ufsa í tengslum við netarall í ár.
3. Voru tekin húðsýni af hnúfubökum eða öðrum tegundum hvala árin 2015–2024? Ef svo er, hversu oft og hvaða ár var það gert og hvaða upplýsingar hafa verið unnar úr sýnum?
Á árunum 2015–2024 voru tekin 143 húðsýni úr hnúfubökum við landið í samstarfi við Háskóla Íslands og úrvinnslu lauk haustið 2024. Stöðugar samsætur voru greindar úr þessum sýnum sem ætti að gefa góða hugmynd um stöðu hnúfubaks í fæðukeðjunni við landið. Sérstaklega verður áhugavert að bera saman hnúfubak á loðnuslóð við þá sem sáust inni á fjörðum. Greinaskrif standa yfir og vonandi birtast niðurstöður þessara rannsókna næsta haust.
Auk rannsókna á hnúfubak voru fæðusýni og húðsýni tekin úr öllum langreyðum sem veiddust við landið á þessu tímabili. Vefja- og spiksýni voru einnig tekin úr ýmsum tegundum sem rak á fjörur landsins eða veiddust sem meðafli og hafa nýlega komið út greinar um fæðuval bæði grindhvala ( www.int-res.com/abstracts/meps/v748/meps14708) og hnýðinga og hnísu ( www.int-res.com/abstracts/meps/v702/meps14208). Grindhvalir við landið virðast nánast eingöngu éta kolkrabba og smokkfisk, á meðan hnýðingar éta aðallega þorskfiska en hnísur éta nánast eingöngu loðnu, síld og sandsíli.
4. Hver eru nýjustu gögn um áhrif afráns hvala á nytjastofna sjávar?
Á árinu 2022 birtist grein í vísindariti Alþjóðahafrannsóknaráðsins ICES ( www.academic.oup.com/icesjms/article/79/5/1583/6594656#363827935). Greinin er uppfærsla á mati Jóhanns Sigurjónssonar og Gísla Víkingssonar á afráni hvala sem kom út 1997. Hún metur orkuþörf sjávarspendýra á Íslandsmiðum og magn bráðar sem dýrin þurfa til að viðhalda sér. Bjarki Elvarsson, tölfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, kom að þessari rannsókn fyrir Ísland, auk Gísla Víkingssonar og Þorvaldar Gunnlaugssonar, í samstarfi við kollega í Noregi og Færeyjum. Þessi orkuþörf er síðan margfölduð með stofnstærð og viðverutíma sjávarspendýranna við landið.
Í greininni er áætlað að sjávarspendýr éti 13,4 milljónir tonna af bráð á ári við Ísland, 4,6 milljónir tonna við Grænland og 7,1 milljón tonna í Barentshafi. Hér er gert ráð fyrir að flestir hvalir séu u.þ.b. hálft ár við landið og á öðrum hafsvæðum á öðrum tímum, en margar tegundir fara suður á bóginn yfir háveturinn. Í greininni kemur m.a. fram að hver hnúfubakur þarf um 500 kg af bráð á dag og langreyður 770 kg. Algengasta bráðin er ljósáta en ljóst er að töluvert hlutfall bráðarinnar er fiskur.
Töluverð óvissa er í kringum þetta mat, t.d. eru takmarkaðar upplýsingar til um fæðuval, viðverutíma og stofnstærðir sumra tegunda. Ýmsar umhverfisbreytingar hafa einnig orðið á undanförnum árum sem hafa leitt til breytinga í útbreiðslu og viðveru hvala við landið.
5. Hvað annað getur haft áhrif á nytjastofna sjávar og er verið að rannsaka það?
Breytileiki í nýliðun fiskstofna (árgangastærð) er einn veigamesti áhrifaþáttur á stærð og framleiðslugetu nytjastofna. Margvíslegar rannsóknir hafa verið í gangi undanfarna áratugi til að skýra breytileika í nýliðun nytjastofna, bæði á Hafrannsóknastofnun og um allan heim, en þrátt fyrir það er lítið vitað um ástæðurnar, þótt ýmiss konar þekking hafi áunnist. Sveiflur í nýliðun eru örugglega tilkomnar vegna samhrifa margra ólíkra þátta, þ.m.t. fjölda fiska sem hrygna, hvar og hvenær árs hrygningin á sér stað, hversu langt hrygningartímabilið er, umhverfisaðstæður sem hafa áhrif á rek og lifun lirfa. Þá hefur líkamlegt ástand hrygna áhrif á stærð og lífvænleika eggja og val á hrygningarstað og hvert lirfurnar rekur, fæðuskilyrði ungviðis og afrán. Sú fjölbreytta gagnasöfnun sem á sér stað árið um kring í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar byggir m.a. undir þann þekkingar- og gagnagrunn sem er nauðsynlegur svo að finna megi svör við þessum áskorunum. Enn fremur er ljóst að endurvakning á seiðaleiðangri í einhverju formi, sem fór fram árlega fram til ársins 2003, væri mikilvægt skref í þessum rannsóknum. Rannsóknir á breytileika í nýliðun verða áfram hluti af verkefnum stofnunarinnar og frekari gagnasöfnun myndi hjálpa til þar.
Vaxtarhraði og þyngd hafa einnig áhrif á viðkomu nytjastofna. Þessir þættir stjórnast m.a. af fæðuskilyrðum viðkomandi stofna eða aldurshópa. Fylgst er með breytileika á þessum þáttum árlega í tengslum við stofnmatsvinnu. Þá hafa ýmsar rannsóknir verið gerðar til að greina tengsl milli vaxtarhraða, þyngdar eða holdastuðuls og vistkerfisþátta fyrir marga stofna. Þetta verður einnig eitt af viðfangsefnum hins nýstofnaða Vistkerfishóps á Hafrannsóknastofnun sem nefndur var að framan, þ.e. fæðutengsl lífvera hafsins. Sem dæmi um þessar rannsóknir má nefna vöxt og viðgang þorsks og áhrif loðnu þar á.
Aðrir þættir sem má nefna hér er sýkingarhlutfall af völdum sníkjudýra sem kunna að hafa áhrif á vöxt og viðgang fiskstofna. Dæmi um slíkt er Ichthyophonus-sýking sem hefur herjað á íslensku sumargotssíldina síðan 2007 og hefur verið fylgst með síðan þá.
Vert er einnig að minnast á rannsóknir á veiðarfærum sem er eitt af skilgreindum hlutverkum Hafrannsóknastofnunar og er óhjákvæmilegt til að nýta nytjastofna í hafi. Öll veiðarfæri hafa bein áhrif á náttúruna en áhrifin eru mismunandi eftir gerð og eðli veiðarfæra sem notuð eru. Undanfarna áratugi hafa rannsóknir á veiðarfærum mikið beinst að kjörhæfni þeirra, sér í lagi dregnum veiðarfærum eins og botnvörpu. Á tímabilinu hafa orðið töluverðar breytingar á gerð poka sem hafa mikil áhrif á kjörhæfni og gæði afla. Núverandi þróunarvinna sem Hafrannsóknastofnun leiðir er hönnun á búnaði til að veita rauntímaupplýsingar um aflasamsetningu þannig að skipstjórnandi geti brugðist við ef óæskileg aflasamsetning verður í veiðarfærum. Einnig hafa rannsóknir beinst að netaveiðum og hvernig hægt er að fæla frá smáhveli þannig að þau ánetjist síður í netum. Þannig er Hafrannsóknastofnun þátttakandi í tveimur ESB-verkefnum sem m.a. hafa það markmið að finna leiðir til að draga úr meðafla sjávarspendýra við fiskveiðar (Marine Beacon og CIBBRiNA).
Nú eru tvö stór ESB-verkefni nýhafin (INFINIFISH og MarineGuardian) sem beinast að því að auka betur skilning á hegðun veiða og veiðarfæra með því að safna saman fjölbreytilegum gögnum frá skipum á veiðum. Með greiningu á þessu gríðarlega magni gagna sem safnast á þennan hátt er ætlunin á að reyna að skilja hvaða þættir hafa helst áhrif á álag veiða á náttúruna og hvaða þætti má aðlaga betur til að lágmarka áhrifaþætti sem líklega eru neikvæðir og um leið að halda uppi árangri við veiðar. Innan þessara verkefna eru einnig nokkur minni verkefni sem ætlað er að mæla og prófa nýjar aðferðir og útbúnað veiðarfæra og mögulega innleiða þær í atvinnuveiðar ef árangur mælist jákvæður varðandi umhverfisáhrif og ásættanlegan árangur veiða.
Helstu áhrifaþættir veiðarfæra eru nokkuð vel þekktir en takmörkuð vitneskja er um hversu stórir þessir þættir eru. Óskráður fiskveiðidauði er einn af þáttunum og lítt þekktur varðandi flest veiðarfæri, þetta er flókið rannsóknarefni í framkvæmd en ekki útilokað. Hins vegar vantar fjármagn og mannafla til að stunda beinar rannsóknir á þessum þætti. Hér má nefna t.d. mat á áhrifum toghlera á loðnu við veiðar með flottrolli sem lendir í frákasti af straumum frá hlerunum sem verkefni sem líklega gæfi mat á óskráðum fiskveiðidauða. Einnig er þörf á að mæla óskráðan veiðidauða af völdum línu, neta og botnvörpu. Veiðarfærarannsóknir eru mjög sérhæfðar og full þörf er á eflingu slíkra rannsókna, m.a. í tengslum við nýju verkefnin sem minnst var á, en nú er aðeins einn starfandi veiðarfærasérfræðingur á þessu sviði á stofnuninni.
1 Christophe Pampoulie, Aril Slotte, Guðmundur J. Óskarsson, Guðbjörg Ólafsdóttir, Jan Arge Jacobsen, Hóraldur Joensen, Sindri Karl Sigurðsson, Sæmundur Sveinsson, Leif Andersson, Anna Kristín Daníelsdóttir, Davíð Gíslason, 2024. Discriminating populations of Atlantic herring mixing in the Norwegian Sea feeding ground using single nucleotide polymorphisms (SNPs). Marine Ecology Progress Series 739: 227–240. doi.org/10.3354/meps14619
2 Ingibjörg G. Jónsdóttir, Ásgeir Gunnarsson, Christophe Pampoulie, Einar Hjörleifsson, Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, Haseeb Randhawa, Höskuldur Björnsson, Jón Sólmundsson, Petrún Sigurðardóttir, Svanhildur Egilsdóttir, 2024. Þorskátak – framvinduskýrsla fyrir árið 2023. Haf- og vatnarannsóknir, HV 2024-03.