Ferill 498. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 892 — 498. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um geislafræðinga.
1. Hvaða áhrif hefur skortur á geislafræðingum haft á bið krabbameinssjúklinga eftir geislameðferð?
Geislafræðingar starfa flestir við myndgreiningarþjónustu en hluti þeirra í sérhæfðri þjónustu við veitingu geislameðferða við krabbameinum. Mönnun geislafræðinga er almennt nokkuð góð og nýliðun innan stéttarinnar hefur verið stöðug sem tryggir nokkuð jafna aldursdreifingu innan stéttarinnar. Auk geislafræðinga sinna sérfræðilæknar í krabbameinslækningum, læknisfræðilegir eðlisfræðingar og hjúkrunarfræðingar geislameðferðarþjónustu. Sé mönnun þessara stétta ófullnægjandi getur það leitt til þess að tæki og mannauður á geislameðferðardeild nýtist ekki sem skyldi og bið verði eftir þjónustunni. Ekki virðist vera skortur á geislafræðingum við myndgreiningar en öðru máli gegnir um geislafræðinga á geislameðferðardeild Landspítala. Geislafræðingar sem þar starfa þurfa að hafa lokið um tólf mánaða klínískri þjálfun á deildinni til að öðlast fulla færni til að veita geislameðferðir á eigin ábyrgð. Þörf er á að fjölga í stéttinni til að mæta aukinni þörf fyrir geislameðferðir og vegna styttingar vinnuviku starfsmanna ríkisins. Þetta hefur orðið til þess að bið eftir geislameðferð hefur lengst.
2. Hversu margir geislafræðingar starfa við myndgreiningu annars vegar og geislameðferð hins vegar og hve mörg eru stöðugildi þeirra?
Myndgreiningarþjónusta er veitt á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri og heilbrigðisstofnunum í öllum heilbrigðisumdæmum, nema Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á starfsstofum sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna. Mönnun geislafræðinga í myndgreiningu er með þeim hætti að á Landspítala eru mönnuð stöðugildi geislafræðinga í myndgreiningarþjónustu um 60. Við myndgreiningu starfa 18 geislafræðingar við Sjúkrahúsið á Akureyri, 3 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, 9 á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, 5 á Heilbrigðisstofnun Norðurlands og 6 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Alls starfa 10 geislafræðingar í Orkuhúsinu. Ekki bárust svör frá öðrum en framangreindum stofnunum og starfsstofum innan þess frests sem ráðuneytinu var veittur til svara.
Geislameðferð er eingöngu veitt á geislameðferðardeild Landspítala þar sem 12,5 stöðugildi geislafræðinga eru mönnuð.
3. Hver hefur þróun stöðugilda og fjölda starfandi geislafræðinga verið sl. 10 ár, annars vegar í myndgreiningu og hins vegar geislameðferð?
Ekki tókst að afla umbeðinna upplýsinga innan þess frests sem ráðuneytinu var veittur. Hins vegar er unnið að verkefni þar sem heilbrigðisráðuneytið hyggst koma upp mælaborði sem sýnir mönnun eftir stéttum og stöðum.
4. Hver hefur þróun fjölda þeirra sem hljóta geislameðferð verið á sama tíma?
Geislameðferð er eingöngu veitt á geislameðferðardeild Landspítala. Fjöldi geislameðferða á ári á Landspítala hefur, samkvæmt starfsemisupplýsingum Landspítala, verið eftirfarandi:
| 2024 | 2023 | 2022 | 2021 | 2020 | 2019 | 2018 | 2017 | 2016 | 2015 |
| 12.408 | 12.633 | 13.043 | 13.255 | 11.916 | 16.270 | 11.692 | 11.817 | 12.499 | 11.305 |
5. Hefur landsráð um mönnun og menntun fjallað um stöðu geislafræðinga og metið þörf á mögulegri fjölgun þeirra í ljósi spár um fjölgun krabbameinstilfella um 57% árið 2040 miðað við árið 2022?
Nei.
6. Hvernig er unnt að tryggja mönnun nauðsynlegra stöðugilda geislafræðinga við kaup á fleiri línuhröðlum til þess að krabbameinssjúklingar geti fengið meðferð hér á landi?
Til að styrkja mönnun geislafræðinga sem sinna geislameðferð þarf að vera eftirsóknarvert að starfa við veitingu þeirrar þjónustu. Tryggja þarf vandað starfsumhverfi og laun í samræmi við sérhæfingu og ábyrgð. Þá þurfa kröfur um menntun og þjálfun að vera í samræmi við ábyrgð og hlutverk. Skýra þarf umgjörð utan um sérhæfingu geislafræðinga sem sinna geislameðferðum í samvinnu við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og þróa nám og námskröfur til starfsleyfa í samræmi við alþjóðlega þróun. Ganga þarf úr skugga um að ekki séu óþarfa hindranir sem koma í veg fyrir að heilbrigðisstarfsfólk með fullnægjandi menntun í veitingu geislameðferða frá öðrum ríkjum geti veitt geislameðferð hér á landi.
Þá hefur ráðuneytið stofnað svokallaðan spretthóp sem vinnur að því verkefni að stytta biðtíma eftir geislameðferð.