Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 893  —  391. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kostnað vegna umsókna um alþjóðlega vernd.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess frá árinu 2015 vegna umsókna um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum, verkefnum, úrræðum og öðru sem við á, þ.m.t. vegna Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og málskostnaðar.

    Svar þetta afmarkast við árleg útgjöld á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins og undirstofnana þess vegna umsókna um alþjóðlega vernd á tímabilinu 2015–2024.
    Umfjöllunin nær bara til þriggja fjárlagaliða sem lúta að málsmeðferð og þjónustu eftirfarandi liða:
     *      Útlendingastofnunar (06398),
     *      Kærunefndar útlendingamála (06151) og
     *      Umsækjenda um alþjóðlega vernd (06399).
    Fjárlagaliðurinn Umsækjendur um alþjóðlega vernd (06399), sem tekur til þjónustu við umsækjendur, var á forræði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins á árunum 2022 og 2023, en færðist aftur til dómsmálaráðuneytisins við áramótin 2023/2024.
    Í þessu svari er tekið mið af þeirri ábyrgðarskiptingu sem gilti á hverjum tíma og eru því aðeins talin með útgjöld sem skráð eru á málefnasvið dómsmálaráðuneytisins.
    Eftirfarandi fjárlagaliðir heyra núna undir málefnasvið ráðuneytisins:
     a.      06151 Kærunefnd útlendingamála.
     b.      06398 Útlendingastofnun.
     c.      06399 Umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Nánar um a-lið.
    Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem tók til starfa í mars 2015. Hún fékk sérstakt fjárlaganúmer árið 2017. Nefndina skipa nú þrír fulltrúar: formaður, varaformaður og einn almennur nefndarmaður. Nefndarmenn eru skipaðir til fimm ára í senn.
    Hjá kærunefnd útlendingamála starfa nú 23 starfsmenn, þar af hluti í tímabundnum stöðum sem ráðið var í til að mæta auknu verkefnaálagi vegna fjölda mála sem bíða afgreiðslu. Starfsemi nefndarinnar jafnast, að umfangi og eðli til, á við rekstur sjálfstæðrar stofnunar.
    Tölur í töflu 1 endurspegla vaxandi heildargjöld kærunefndarinnar frá árinu 2017. Þróunin tengist auknu álagi og fjölgun mála, sem leitt hefur til fjölgunar starfsmanna og hækkandi launakostnaðar.

Tafla 1: Kærunefnd útlendingamála, rekstrarkostnaður 2017–2024 í þús. kr.

2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
250.832 262.735 280.661 286.785 291.197 260.052 270.417 301.199

Nánar um b-lið.
    Útlendingastofnun fer með stjórnsýslu og framkvæmd málsmeðferðar vegna umsókna um alþjóðlega vernd. Stofnunin annast móttöku umsækjenda, meðferð mála, gagnaöflun, túlkaþjónustu og aðra umsýslu sem tengist afgreiðslu einstakra mála.
    Rekstrargjöld sem færð eru á fjárlagalið 06398 hafa aukist jafnt og þétt frá árinu 2015 og námu 816,7 millj. kr. árið 2024. Þróunin sýnir aukningu í útgjöldum og endurspeglar fjölgun umsækjenda á tímabilinu og auknar kröfur um skilvirka og faglega málsmeðferð. Stærstur hluti gjalda fellur til vegna launakostnaðar og rekstrar sem tengist móttöku umsækjenda og meðferð mála.

Tafla 2: Útlendingastofnun, rekstrargjöld 2015–2024 í þús. kr.

2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
293.275 415.435 589.633 579.150 682.568 566.272 558.497 573.271 703.060 816.685

Nánar um c-lið.
    Fjárlagaliður 06399 tekur til útgjalda vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Undir hann falla m.a. kostnaður við móttöku og aðstöðu, úrræði tengd dvöl og aðstoð umsækjenda, sem og málsmeðferðartengd verkefni. Liðurinn var í umsjón Útlendingastofnunar til ársloka 2021 en færðist frá og með 2022 yfir til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Þrátt fyrir það var hann áfram nýttur til bókhalds á fyrri hluta ársins 2022, meðan allur kostnaður var greiddur af nýju ráðuneyti, sem skýrir háar sértekjur á liðnum það ár. Við áramótin 2023/2024 færðist ábyrgðin aftur til dómsmálaráðuneytisins.
    Á liðinn eru færð útgjöld sem tengjast rekstri móttökumiðstöðvar fyrir umsækjendur á vegum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, aðgerðum heimferðar- og fylgdadeildar RLS vegna umsækjenda sem ekki hafa öðlast dvalarleyfi og málsmeðferðarkostnaði hjá Útlendingastofnun.
    Útgjöld hafa verið sveiflukennd en vaxandi á tímabilinu 2015–2024. Árið 2015 námu þau 756,6 millj. kr. og voru komin í 3 milljarða kr. árið 2024. Þróunin endurspeglar fjölgun umsækjenda og aukið umfang þjónustu sem flestar stofnanir innan málaflokksins koma að.

Tafla 3: Umsækjendur um alþjóðlega vernd, útgjöld vegna þjónustu 2015–2024 í þús. kr.

2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
756.675 1.862.405 3.093.476 3.221.788 3.284.658 3.386.757 3.246.022 1.334.175 2.442.160 3.023.880