Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 894 — 336. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um túlkaþjónustu í heilbrigðisþjónustu.
1. Hver hefur verið heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu í heilbrigðisþjónustu undanfarin fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum og málefnasviðum.
Heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess á árunum 2020 til 2024 var um 1,6 milljarðar kr. og má sjá sundurliðun í meðfylgjandi töflu. Tekið skal fram að ráðuneytið hefur ekki upplýsingar frá einkarekinni þjónustu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Sjúkratryggingar greiða eingöngu fyrir túlkaþjónustu sem fer fram hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðisveitendum og ráðuneytið hefur ekki nýtt sér túlkaþjónustu á þessum árum.
2. Hvaða reglur gilda um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess?
Reglugerð nr. 1145/2015 um túlkun á upplýsingum um heilsufar og meðferð fyrir sjúklinga, 5. gr.
3. Er til sundurliðun á aðkeyptri þjónustu og því vinnuframlagi sem þjónustan krefst þegar hún er unnin af fastráðnum starfsmönnum?
Flestar stofnanir eru ekki með sundurliðun á vinnuframlagi starfsmanna sem túlka sjálfir samhliða sínu aðalstarfi.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hóf skráningu á fjölda túlkana starfsfólks á árinu 2023 og þá eingöngu fyrir heimsóknir skjólstæðinga á heilsugæslu þar sem annar starfsmaður en hefði átt að sinna þjónustunni var viðstaddur og þjónaði sem túlkur. Á árinu 2023 var fjöldinn 89 skipti en 96 skipti árið 2024.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur ráðið túlka í sérverkefni og voru um 2–3 stöðugildi á tímabilinu frá því í mars 2022 til ágúst 2022, eitt stöðugildi frá september 2023 til 2025 og 0,5–0,8 stöðugildi frá maí 2023 til 2025.