Ferill 494. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 895 — 494. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um húsnæðismál endurhæfingarstofnana.
1. Hver er staða vinnu starfshóps stjórnvalda um húsnæðismál endurhæfingarstofnana, sem var settur á fót á síðasta ári, í ljósi þess að ástand húsnæðismála þeirra hefur lengi verið alvarlegt og stór hluti húsnæðis Reykjalundar ónothæfur vegna myglu?
Hópurinn hefur lokið störfum og skilaði skýrslu til ráðherra í mars sl. og verður hún birt þegar yfirstandandi stefnumótun um endurhæfingu er lokið.
2. Hvað ætla stjórnvöld að gera til að leysa úr fyrrgreindu ástandi og tryggja að endurhæfingarstofnanir viðhaldi og byggi upp húsnæði á eðlilegan hátt þar sem ríkið hefur lengi reitt sig á að félagasamtök útvegi húsnæði fyrir þær?
Mikilvægt er að finna leið sem tekur á uppsafnaðri viðhaldsþörf endurhæfingarstofnana ásamt því að liðka fyrir nauðsynlegri uppbyggingu til framtíðar og tryggja viðhald á þeim húseignum sem eru nýttar undir starfsemina. Nauðsynleg uppbygging á úrræðum til framtíðar er m.a. háð þörfum samfélagsins fyrir endurhæfingu á komandi árum og samsetningu þjónustunnar, en mikilvægt er að veiting endurhæfingarþjónustu sé sveigjanleg til að koma til móts við ólíka hópa sem þurfa þjónustu á hverjum tíma. Þá verður einnig að horfa til samfélagslegrar þróunar, langvinnra sjúkdóma og markmiða Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar varðandi aðgengi að endurhæfingarþjónustu. Unnið er að framtíðarstefnu varðandi veitingu endurhæfingarþjónustu innan ráðuneytisins sem verður lögð til grundvallar við mat á uppbyggingarþörf fyrir endurhæfingarrými. Liður í þeirri stefnumótun verður umfjöllun um endurhæfingarþjónustu á heilbrigðisþingi sem ráðherra býður til 20. nóvember nk.