Ferill 423. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 896  —  423. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ragnhildi Jónsdóttur um mat á áhrifum lagasetningar á samkeppni.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig er mat á áhrifum lagasetningar á samkeppni framkvæmt?
     2.      Er til leiðarvísir eða greiningarrammi sem stjórnsýslan styðst við þegar slíkt mat er gert? Ef svo er, hvar má nálgast slíkan leiðarvísi eða greiningarramma? Eru þessi tæki nýtt með kerfisbundnum hætti?
     3.      Er stefnt að því að útbúa slíkan leiðarvísi eða greiningarramma ef hann er ekki þegar til?


    Samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna, frá 24. febrúar 2023, skal framkvæma og kynna frummat á áhrifum lagasetningar áður en smíði frumvarps hefst. Endanlegt áhrifamat skal liggja fyrir áður en frumvarp er lagt fram á fundi ríkisstjórnar og á Alþingi, sbr. 66. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
    Gera skal grein fyrir mati á áhrifum lagasetningar á þar til gerðu eyðublaði sem er gefið út af dómsmálaráðuneytinu. Á meðal þeirra áhrifaþátta sem ber að meta eru efnahagsáhrif á atvinnulíf, vinnumarkað og samkeppni. Eyðublaðið inniheldur fjögurra spurninga gátlista og grófar leiðbeiningar um hvernig meta skuli áhrif lagasetningar á samkeppnisskilyrði. Sérstaklega skal meta líkur á að fjöldi fyrirtækja á markaði takmarkist vegna reglusetningarinnar, með beinum eða óbeinum hætti, líkur á að reglusetning takmarki möguleika fyrirtækja til að mæta samkeppni og líkur á að reglusetning takmarki frumkvæði fyrirtækja til að stunda virka samkeppni. Hverjum þessara þátta fylgir upptalning í dæmaskyni á aðstæðum þar sem líklegt er að viðkomandi áhrifaþáttur eigi við.
    Við undirbúning, samningu og framlagningu stjórnarfrumvarps er undir hverju ráðuneyti fyrir sig komið að fylgja viðeigandi ferlum, þ.m.t. við mat á áhrifum lagasetningar á samkeppni. Ræðst af aðstæðum hverju sinni og með tilliti til eðli þeirrar lagasetningar sem í bígerð er hvernig matið er framkvæmt. Ekki hefur farið fram heildstæð rannsókn á því hvernig mat á áhrifum lagasetningar á samkeppni er framkvæmt í Stjórnarráðinu og það fer ekki fram með kerfislega samræmdum hætti.
    Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hefur lagt áherslu á að stjórnvöld kanni áhrif gildandi regluverks, og nýrrar reglusetningar, á samkeppni og stuðli að því að löggjöf skapi ekki óþarfar samkeppnishindranir. Í þessu skyni hefur OECD útbúið greiningarramma um samkeppnismat (e. Competition Assessment Toolkit) og gátlista (e. Competition Assessment Checklist) til að meta hvenær þörf er nánari greiningar. Kaflinn um áhrif á samkeppnisskilyrði í framangreindu eyðublaði um mat á áhrifum lagasetningar byggist að nokkru á gátlistanum, en stjórnvöldum ber ekki sérstök skylda til að framkvæma nánari greiningu á samkeppnisáhrifum. Almennt er undir stjórnvöldum í hverju ríki komið að beita greiningarrammanum við mótun regluverks, en jafnframt hefur OECD tekið að sér að framkvæma samkeppnismat á afmarkaða þætti atvinnulífs ákveðinna ríkja, svo sem gert var á sviði ferðaþjónustu og byggingariðnaðar hér á landi árið 2020.
    Samkeppniseftirlitið hefur m.a. það hlutverk að fylgjast með því að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til að gera samkeppni virkari. Jafnframt skal Samkeppniseftirlitið vekja athygli viðkomandi ráðherra, telji það að ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla stríði gegn markmiði samkeppnislaga. Stofnunin hefur m.a. sinnt þessu hlutverki með fjölda umsagna um lagafrumvörp og áætlanir stjórnvalda í gegnum tíðina. Þá hefur hún beitt sér fyrir því að stjórnvöld meti í ríkari mæli áhrif setningar laga og stjórnvaldsfyrirmæla á samkeppni. Sjá t.d. álit Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2009 frá 15. desember 2009.
    Ráðuneytið hefur til skoðunar hvernig unnt sé að bæta enn frekar umgjörð og auka samræmi við mat á áhrifum laga- og reglusetningar á samkeppni hér á landi, m.a. með hliðsjón af framangreindum leiðbeiningum OECD og ábendingum Samkeppniseftirlitsins.