Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 897  —  380. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um heilbrigðisþjónustu við hælisleitendur.


     1.      Hver var kostnaður ríkissjóðs við heilbrigðisþjónustu við hælisleitendur og flóttamenn ár hvert árin 2020–2024?
         Á árunum 2020–2021 var kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd greiddur af Útlendingastofnun sem heyrir undir málefnasvið dómsmálaráðuneytis. Þar að leiðandi hefur heilbrigðisráðuneytið ekki upplýsingar um kostnað vegna þeirra ára. Frá árinu 2022 hefur kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd verið greiddur af Vinnumálastofnun sem heyrir undir málefnasvið félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Því hefur ráðuneytið ekki heldur upplýsingar um kostnað vegna þjónustunnar frá þeim tíma. Sá kostnaður sem heyrir undir heilbrigðisráðuneytið er einungis vegna heilbrigðisskoðunar í móttökumiðstöð flóttamanna sem rekin er af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en fjárveiting upp á 400 millj. kr. var flutt til þeirra varanlega í fjárlögum fyrir árið 2024 vegna þjónustunnar en áður var sá kostnaður greiddur af Vinnumálastofnun. Annar heilbrigðiskostnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd er greiddur af Vinnumálastofnun.

     2.      Hver var kostnaður ríkissjóðs við túlkaþjónustu í heilbrigðiskerfinu ár hvert á sama árabili?
    Heildarkostnað ríkissjóðs við túlkaþjónustu á árabilinu 2020–2024 má sjá í eftirfarandi töflu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Þess má geta að í flestum tilfellum eru ekki til upplýsingar um áætlað vinnuframlag þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem sinna túlkaþjónustu samhliða öðrum störfum og fá þeir ekki heldur greitt sérstaklega fyrir það.
    Meðtalið í þessum tölum er kostnaður vegna einstaklinga sem ekki eru sjúkratryggðir þar sem túlkaþjónusta er veitt öllum óháð sjúkratryggingastöðu. Kostnaður við táknmálstúlkun er einnig hluti af heildarkostnaði við túlkaþjónustu þar sem táknmálstúlkun er nauðsynleg fyrir samskipti við heyrnarlausa eða heyrnarskerta einstaklinga.