Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 898  —  428. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um viðhald og notkun á húsnæði í eigu ríkisins.


     1.      Hve mikið húsnæði, í fermetrum talið, sem ríkið á eða hefur á leigu stendur tómt af einhverjum ástæðum? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum og landshlutum.

Mennta- og barnamála-ráðuneyti Dómsmála-ráðuneyti Heilbrigðis-ráðuneyti Fjármála- og efnahags-ráðuneyti Menningar-, nýsköpunar- og háskóla-ráðuneyti Ómerkt Alls
Austurland 422 290 544 1.256
Höfuðborgarsvæðið 1.235 1.364 777 15.511 5.784 19.278 43.949
Norðurland eystra 218 2.108 1 45 2.371
Norðurland vestra 372 424 796
Suðurland 1.536 347 68 1.180 3.130
Suðurnes 259 2.111 187 2.556
Vestfirðir 1 563 564
Vesturland 2.869 72 328 1.747 5.016
Alls 6.062 2.550 6.869 15.512 5.785 22.860 59.638

    Stærstu einstöku eignir sem standa tómar, að hluta eða í heild, eru Tollhúsið við Tryggvagötu, Borgartún 5–7 og Grensásvegur 9 sem áformað er að þróa nánar eða selja á almennum markaði.

     2.      Hversu hátt hlutfall þessa húsnæðis, í fermetrum talið, stendur autt vegna gruns um eða staðfests raka og myglu? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum og landshlutum.
    Húsnæði sem stendur autt vegna raka eða myglu sem hlutfall af heildarrými sem stendur autt:

Mennta- og barnamálaráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneyti Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti Ómerkt Alls
Höfuðborgarsvæðið 1,50% 12,18% 3,02% 7,68% 24,37%
Vesturland 1,66% 1,66%
Alls 1,50% 12,18% 3,02% 9,33% 26,03%

     3.      Hvert er áætlað verðmæti ofangreinds húsnæðis sem stendur tómt?
    Við mat á heildarverðmæti húsnæðis sem stendur tómt er miðað við bókfært virði húsnæðis í eignasafni Ríkiseigna í ársuppgjöri 2024.
    Heildarverðmæti þess húsnæðis sem stendur tómt var metið á um 10,7 milljarða kr.
    Heildarverðmæti þess húsnæðis sem stendur tómt vegna raka eða myglu er áætlað um 3,4 milljarðar kr.

     4.      Hver hefur kostnaðurinn verið við að útvega, leigja eða kaupa annað húsnæði í stað þess húsnæðis sem þarfnast viðhalds?
    Þegar mat á viðhaldsþörf einstakra eigna liggur fyrir er lagt mat á hvort hagfelldara sé fyrir ríkissjóð að ráðast í endurbætur eða leggja þær af og selja og afla húsnæðis, með leigu eða byggingu, sem stenst áherslur og viðmið ráðuneytisins í húsnæðismálum. Þegar fyrir liggur að tiltekið húsnæði verður ekki nýtt til framtíðar undir starfsemi ríkisins er viðhaldi yfirleitt haldið í lágmarki á meðan unnið er að þarfagreiningum og öflun framtíðarhúsnæðis fyrir þá ríkisaðila sem eru í slíku húsnæði. Ekki er haldið utan um kostnað sem rekja má til viðhaldsþarfar með miðlægum hætti.

     5.      Hve mörg ráðuneyti hafa þurft að gera breytingar á sínum húsnæðismálum vegna viðhalds, raka og myglu? Liggur fyrir heildarkostnaður vegna þessa?
    Þær breytingar sem gerðar hafa verið á ráðuneytaskipan og verkaskiptingu ráðuneyta undanfarin ár hafa leitt í ljós að húsnæðiskostur Stjórnarráðsins er háður miklum annmörkum. Húsnæði ráðuneytanna hefur almennt verið sundurleitt, á mörgum stöðum og í mörgum tilfellum úrelt. Þá hefur skort mjög á allan sveigjanleika þannig að hægt sé að aðlaga rýmisnýtingu að breyttu skipulagi starfseminnar hverju sinni. Af þeim sökum hefur verið unnið að því um nokkurt skeið að tryggja ráðuneytunum betri starfsaðstöðu sem stuðlað getur að skilvirkum og nútímalegum starfsháttum. Í því felst að gerðar hafa verið gagngerar endurbætur á Arnarhvoli, ráðist var í kaup á húsnæði við Austurbakka og unnið er að lokafrágangi á endurbótum á Skúlagötu 4. Í kjölfar þess hefur 7 af 11 ráðuneytum verið útvegað húsnæði á Stjórnarráðsreitnum eða í námunda við hann. Sú vegferð að uppfæra aðstöðu ráðuneyta er hluti af almennri stefnumörkun ríkisins í fasteignamálumþ að tryggja að nútímalegt og sveigjanlegt húsnæði sé til staðar undir starfsemi ríkisins og tengist ekki með beinum hætti þeim vandkvæðum sem komið hafa upp vegna rakaskemmda í einstökum fasteignum á vegum ríkisins.
    Þau ráðuneyti sem þurft hafa flytja vegna viðhalds- og rakavandamála eru heilbrigðisráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti. Ekki hefur verið tekinn saman heildarkostnaður vegna flutninga þeirra ráðuneyta.

     6.      Hversu háar fjárhæðir hafa farið í viðhaldsverkefni og sérstakt viðhald vegna raka og myglu sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum og landshlutum.
    Í viðhaldsskrám er ekki gerð sérstaklega grein fyrir þeim verkþáttum sem snúa að viðgerðum á myglu- eða rakavandamálum.

     7.      Hefur farið fram heildstæð úttekt á þörf fyrir viðhald og meiri háttar viðhald á húsnæði ríkisins í heild eða í einstökum málaflokkum?
    Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir, sem fer með umráð meginþorra fasteigna ríkisins, heldur skrá yfir viðhaldsþörf eigna sem eru í umsjón stofnunarinnar. Viðhaldsþörfin er reiknuð stærð út frá brunabótamati eigna en unnið er að heildstæðu mati til að byggja áætlanagerð um raunþörf fyrir fjárfestingar og viðhald í einstaka eignum. Ekki liggur fyrir greining eftir einstaka málaflokkum.
    Þegar mat á viðhaldsþörf einstakra eigna liggur fyrir er lagt mat á hvort hagfelldara sé fyrir ríkissjóð að ráðast í endurbætur eða leggja þær af og selja og afla húsnæðis, með leigu eða byggingu, sem stenst áherslur og viðmið ráðuneytisins í húsnæðismálum.