Ferill 471. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 899  —  471. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um fylgdarlaus börn á flótta.


     1.      Hversu mörg fylgdarlaus börn á flótta komu til landsins ár hvert frá 2015–2024?

Umsóknarár Fjöldi umsækjenda sem sögðust vera fylgdarlaus börn Fjöldi umsækjenda sem voru metnir fylgdarlaus börn
2015 13 5
2016 22 15
2017 27 9
2018 19 4
2019 16 8
2020 12 2
2021 17 12
2022 64 37
2023 59 32
2024 32 22
1.1.–20.6.2025 14 7

     2.      Hversu mörg þessara barna hafa hlotið dvalarleyfi hér á landi, m.a. tímabundið dvalarleyfi eða varanlegt dvalarleyfi? Svar óskast sundurliðað eftir ári þegar dvalarleyfi var veitt.

Ákvörðunarár

Fjöldi umsækjenda um vernd sem voru metnir fylgdarlaus börn og var veitt dvalarleyfi á grundvelli verndar eða mannúðar

2015
0
2016 10
2017 7
2018 4
2019 3
2020 8
2021 2
2022 28
2023 24
2024 28
1.1.–20.6.2025 6
Samtals 119

    Þau fylgdarlausu börn sem sóttu um vernd hér á landi og var veitt dvalarleyfi á tímabilinu 2016–2025 fengu öll tímabundið dvalarleyfi í tengslum við umsókn sína um vernd, ýmist á grundvelli alþjóðlegrar verndar, viðbótarverndar eða mannúðar.

     3.      Hversu mörg þessara barna hafa hlotið íslenskan ríkisborgararétt? Veitti Alþingi ríkisborgararétt eða var hann veittur með öðrum hætti? Svar óskast sundurliðað eftir ári þegar ríkisborgararéttur var veittur.
    Af 119 fylgdarlausum börnum sem fengu dvalarleyfi á Íslandi í tengslum við umsókn sína um vernd hafa 11 fengið íslenskan ríkisborgararétt. Þau fengu öll útgefið dvalarleyfi á árunum 2016–2018.

Veiting íslensks ríkisborgararéttar Útlendingastofnun Alþingi
2017 1
2021 3
2022 4
2023 1
2024 2

     4.      Hvernig hafa stjórnvöld tryggt velferð þessara barna?
    Velferð þessara barna er tryggð með lögum og framkvæmd á grundvelli hennar. Í ákvæði 31. gr. laga um útlendinga er fjallað um hagsmunagæslu barns samhliða meðferð umsóknar þess um alþjóðlega vernd. Samkvæmt þeirri grein skal Barna- og fjölskyldustofa tryggja hagsmunagæslu barnsins og veita þá aðstoð sem nauðsynleg er á grundvelli barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
    Samkvæmt sömu lögum skal sá sem fer með mál fylgdarlauss barns hjá Útlendingastofnun búa yfir viðeigandi sérþekkingu og reynslu, sbr. 25. gr. laganna. Umsóknir fylgdarlausra barna skulu jafnframt sæta forgangsmeðferð skv. a-lið 1. mgr. 29. gr. Fylgdarlaust barn sem kemur til Íslands er almennt sett í umsjá barnaverndar á meðan umsókn þess um vernd er til meðferðar, enda sé forsjáraðili barnsins ekki staddur hér á landi. Barna- og fjölskyldustofa ber ábyrgð á hagsmunagæslu barnsins og samhæfingu við barnaverndarþjónustu þess sveitarfélags þar sem barnið dvelur. Barnaverndarþjónustu er jafnframt skylt að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja velferð barnsins, sbr. 5. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga.
    Barna- og fjölskyldustofa metur, með hagsmuni barns að leiðarljósi, hvar barnið skuli dvelja á meðan umsókn þess er til meðferðar. Hagsmunagæslan felur m.a. í sér að finna viðeigandi fósturheimili eða annað úrræði, tryggja að barnaverndarnefnd uppfylli þarfir barnsins með fullnægjandi hætti, t.d. í tengslum við búsetu, heilbrigðisþjónustu og aðgang að menntun. Starfsmaður barnaverndar skal einnig vera viðstaddur skýrslutökur og önnur viðtöl við fulltrúa stjórnvalda, veita barninu upplýsingar um stöðu málsins og vera í samskiptum við skipaðan talsmann þess.
    Ef barni, sem er fylgdarlaust og sækir um alþjóðlega vernd, er veitt heimild til dvalar á Íslandi, fær barnaverndarþjónustan sem annast umsjá þess forsjá barnsins í samræmi við 6. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga. Samhliða því lýkur formlegri hagsmunagæslu Barna- og fjölskyldustofu skv. 31. gr. laga um útlendinga.
    Til að tryggja samræmda og skilvirka málsmeðferð er til staðar sameiginlegt verklag milli Barna- og fjölskyldustofu, barnaverndarnefnda og Útlendingastofnunar. Barna- og fjölskyldustofa hefur einnig sett fram leiðbeinandi verklag fyrir starfsfólk barnaverndarþjónustu við meðferð mála fylgdarlausra barna. Þessi skjöl eru öllum aðgengileg á vef stofnunarinnar (BOFS).

     5.      Hversu mörg fylgdarlaus börn á flótta bíða úrlausnar máls síns nú?
    Hinn 3. júlí 2025 voru hjá Útlendingastofnun sex umsóknir um vernd í vinnslu frá umsækjendum sem kváðust við umsókn vera fylgdarlaus börn.