Ferill 23. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 900 — 23. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Rögnu Sigurðardóttur um innanlandsflug.
1. Hvert var efni samkomulags ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group um innanlandsflug frá 25. október 2013?
Samkomulagið er um að fullkanna aðra kosti til reksturs innanlandsflugs en framtíðarflugvöll í Vatnsmýri. Afrit af samkomulaginu er að finna í fylgiskjali I.
2. Hver er áætlaður kostnaður við gerð æfinga- og kennsluflugvallar auk nauðsynlegrar aðstöðu utan Reykjavíkurflugvallar?
Kostnaðurinn er mjög háður aðstæðum á staðnum og hvaða aðstaða er byggð upp. Í skýrslu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins frá því í nóvember 2019, Flugvallakostir á suðvesturhorni landsins, er ekki beint fjallað um uppbyggingu æfinga- og kennsluflugvallar en þar er bent á að fyrsti áfangi að alhliða innanlands- og varaflugvelli í Hvassahrauni gæti nýst sem kennslu-, æfinga- og einkaflugvöllur. Kostnaður var þá áætlaður allt að 8 milljarðar kr. eða 11 milljarðar kr. með stofnkostnaði notenda. Á tímabilinu maí 2019 til maí 2025 hefur byggingarvísitalan hækkað um rúm 37%.
3. Hverjar eru fjárveitingar til ofangreindra verkefna samkvæmt síðustu drögum að samgönguáætlun?
Hvorki stjórnartillaga að samgönguáætlun, sem lögð var fram á Alþingi haustið 2023, né drög sem unnin hafa verið síðan gera ráð fyrir fjárveitingum í framangreint.
4. Hvað líður undirbúningi fyrir þessi verkefni samkvæmt ofangreindu samkomulagi, flugstefnu fyrir Ísland og fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024?
Samkvæmt samkomulaginu skyldi stýrihópur undir formennsku Rögnu Árnadóttur annast verkefnið. Stýrihópurinn kynnti skýrslu sína í júní 2015 og lagði hann til að flugvallarskilyrði í Hvassahrauni yrðu fullkönnuð. Í nóvember 2019 gerðu ríki og Reykjavíkurborg síðan með sér samkomulag um rannsóknir á möguleikum á byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni, sjá fylgiskjal II. Samkvæmt því var verkefninu skipt í tvo áfanga. Skipaður yrði starfshópur sem bæri ábyrgð á nánari útfærslu og framkvæmd fyrri hluta verkefnisins. Að fengnum niðurstöðum starfshópsins yrði tekin ákvörðun um áframhald verkefnisins. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni Rannsóknir á byggingu flugvallar í Hvassahrauni í september 2024. Næst liggur því fyrir að taka ákvörðun um framhald verkefnisins.
5. Hvernig hyggst ráðherra uppfylla ákvæði ofangreinds samkomulags og ákvæði flugstefnu fyrir Ísland í tillögu að nýrri samgönguáætlun?
Nú er unnið að gerð tillögu að nýrri samgönguáætlun. Viðræður við Reykjavíkurborg um framhaldið standa fyrir dyrum og áætlað er að tillaga að nýrri samgönguáætlun verði kynnt í haust.
Fylgiskjal I.
Samkomulag um innanlandsflug.
www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0900-f_I.pdf
Fylgiskjal II.
Samkomulag um rannsóknir á möguleikum á byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni.
www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0900-f_II.pdf