Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 901  —  433. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ragnhildi Jónsdóttur um aðgerðaáætlun vegna hækkandi sjávarstöðu.


     1.      Liggur fyrir aðgerðaáætlun hjá Vegagerðinni og fjárveiting til þess neyðarverkefnis sem viðgerð og efling sjóvarna er í ljósi hækkandi sjávarstöðu og vonskuveðra sem hafa haft miklar skemmdir í för með sér?
    Vegagerðin og forverar hennar á sviði sjóvarna hafa haft umsjón með sjóvörnum í um fjóra áratugi. Framkvæmdir Vegagerðarinnar vegna sjóvarna eru unnar samkvæmt samþykktri samgönguáætlun og er sjóvarnaáætlun hluti hennar. Ferlið byggist á því að sveitarfélög sækja um sjóvarnarverkefni til að verjast bæði landbroti og ágangi sjávar þegar endurskoðun samgönguáætlunar fer fram.
    Það er á ábyrgð sveitarfélaga að þekkja þá áhættu sem stafar af sjávarágangi innan marka eigin skipulagssvæða og vinna í samstarfi við Vegagerðina að mótun og forgangsröðun sjóvarna. Jafnframt ber sveitarfélögum að tryggja að umsóknir berist nógu tímanlega svo hægt sé að bregðast við áður en tjón hlýst af.
    Markmið sjóvarnaáætlunar er fyrst og fremst að verja strandlínu þar sem fyrir eru mannvirki, menningarminjar eða önnur verðmæti. Kostnaður við sjóvarnir skiptist þannig að ríkissjóður greiðir að hámarki 7/ 8 hluta af heildarkostnaði en landeigandi eða sveitarfélag að lágmarki 1/ 8 hluta. Sveitarfélög eru eigendur sjóvarna sem reistar eru í þeirra umdæmi og bera ábyrgð á viðhaldi þeirra til framtíðar.
    Vegagerðin er umsagnaraðili um skipulag lágsvæða og hefur veitt sveitarfélögum leiðbeiningar um lágmarkslandhæð sem þarf að vera vegna mannvirkja. Leiðbeiningarnar byggjast á 100 ára spám um sjávarhæð, en auk þess er reiknað með viðbótarvarúðarhæð til að draga úr flóðahættu. Þessi ráðgjöf hefur víðast skilað góðum árangri en þó eru tilvik þar sem sveitarfélög hafa vikið frá ráðleggingum. Í sumum þessara tilvika hafa flóð leitt til tjóns.
    Í neyðartilfellum hefur Vegagerðin heimild til að grípa til neyðarráðstafana þegar veruleg hætta er til staðar. Slíkar aðgerðir byggja á mati á umfangi hættunnar, verðmætum í húfi og tiltæku fjármagni. Slík tilfelli heyra til undantekninga því almenn stefna er að umsóknir berist með góðum fyrirvara til að hægt sé að bregðast við hættu sem er til staðar.
    Ekki er að mati ráðuneytisins talin þörf á sérstakri aðgerðaáætlun til viðbótar við sjóvarnaáætlun samgönguáætlunar eða að leggja þurfi upp með neyðarverkefni vegna hækkandi sjávarstöðu að svo stöddu. Sjávarflóðin sem urðu veturinn 2024–2025 hafa samkvæmt mælingum líklega 50–100 ára endurkomutíma. Þrátt fyrir að þau hafi valdið tjóni eru þau ekki talin umfram hönnunarviðmið þeirra varnarmannvirkja sem reist hafa verið. Hækki viðmið um endurkomutíma við hönnun sjóvarna eykst kostnaður við mannvirkin verulega.

     2.      Hvenær er von á að slík áætlun verði kynnt og hvaða fjármagn er áætlað til verkefnisins?
    Á vormánuðum 2025 var óskað eftir umsóknum frá sveitarfélögum vegna endurskoðunar á samgönguáætlun 2026–2030. Umsóknum sveitarfélaga verður forgangsraðað eftir eftirfarandi þáttum:
     *      Sjávarógn.
     *      Nálægð mannvirkja við sjávarkamb.
     *      Verðmæti mannvirkja sem á að verja.
    Samhliða þessari vinnu verður staðan hjá hverju sveitarfélagi greind og langtímaáætlun um sjóvarnir til næstu tíu ára mótuð. Stefnt er að því að þeirri vinnu verði að mestu lokið sumarið 2026.
    Það fjármagn sem Alþingi veitir árlega til sjóvarna dugar nú til framkvæmda á um 1,2–1,8 km af varnarmannvirkjum árlega. Frá árinu 2018 hefur orðið röð veðuratburða sem valdið hafa tjóni. Veruleg aukning hefur orðið á umsóknum frá þeim tíma og metur stofnunin það svo að árleg framkvæmdaþörf sé nú um 2,5–3,5 km. Landgrunnur Íslands er ýmist að lækka eða hækka. Þau svæði þar sem landið er að lækka eru í meiri hættu vegna ágangs sjávar til framtíðar og ljóst að sums staðar getur það orðið mjög umfangsmikið verkefni að verja alla strandlínuna.

     3.      Verður komið til móts við sveitarfélög þar sem sjóvarnir Vegagerðarinnar hafa ekki komið í veg fyrir skemmdir og tjón orðið á innviðum sem falla ekki undir bótaskyldu Náttúruhamfaratryggingar Íslands?
    Vegagerðin hefur ekki lagalega heimild til að bæta tjón sem fellur utan bótaskyldu Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Sveitarfélög hafa skipulagsvald á sínu svæði og er mjög mikilvægt að þau þekki vel þá hættu sem er til staðar þegar skipulagt er á lágsvæðum.
    Ábyrgð á skipulagi og áhættustýring hvílir hjá sveitarfélögum samkvæmt skipulagslögum. Mikilvægt er að ákvarðanir sem sveitarfélög taka um byggð á strandsvæðum séu í samræmi við faglega ráðgjöf um mat á hækkandi sjávarstöðu og ölduálagi.