Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 902  —  486. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um umbúðareglugerð.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hefur ráðherra kynnt sér fyrirhugaðar breytingar vegna nýrrar umbúðareglugerðar ESB og hver hefur vinnsla ráðuneytisins verið?
     2.      Hver er afstaða ráðherra til reglugerðarinnar?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir samningum um breytingar á upptöku reglugerðarinnar í ljósi sérstöðu Íslands þegar kemur að endurvinnslu umbúða drykkjarvara?


    Gert er ráð fyrir að fyrirspurnin snúi að reglugerð (ESB) 2025/40 um umbúðir og umbúðaúrgang sem birt var í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins 22. janúar sl. Um er að ræða stofngerð Evrópusambandsins er varðar löggjöf um umbúðir og umbúðaúrgang og kemur hún í stað gildandi stofngerðar um málefnið, en það er tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 94/62/EB um umbúðir og umbúðaúrgang. Reglugerðin tekur gildi í aðildarríkjum Evrópusambandsins 12. ágúst 2026. Hluti ákvæða áðurnefndrar tilskipunar munu þó gilda eftir það en falla úr gildi í nokkrum skrefum til ársloka 2029 samkvæmt því sem mælt er fyrir um í reglugerðinni.
    Frá því að reglugerð (ESB) 2025/40 var birt hefur staðið yfir greining á efni hennar innan stjórnsýslunnar vegna upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Jafnframt því var fylgst náið með vinnslu reglugerðarinnar á vettvangi Evrópusambandsins og gerðin meðal annars greind er hún var á tillögustigi árið 2023. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið ber ábyrgð á vinnunni. Samkvæmt venju fól ráðuneytið stofnun sinni, Umhverfis- og orkustofnun, að vinna hefðbundna greiningu á gerðinni. Stofnunin lauk greiningu sinni í júní sl. og eru niðurstöður hennar aðgengilegar í EES-gagnagrunni Stjórnarráðs Íslands. Ráðuneytið vinnur nú úr greiningunni og öðrum upplýsingum sem aflað hefur verið vegna málsins áður en endanlegar niðurstöður íslenskra stjórnvalda verða sendar skrifstofu Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA).
    Eins og áður segir er greiningu á reglugerðinni ekki lokið og endanleg afstaða til einstakra ákvæða hennar liggur ekki fyrir. Að svo stöddu er þó ekkert sem komið hefur fram sem bendir til annars en að gerðin sé almennt tæk til upptöku í EES-samninginn. Gerðin fellur auk þess vel að stefnu íslenskra stjórnvalda í umhverfis- og loftslagsmálum en meginmarkmið hennar eru að stuðla að umbreytingu yfir í hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi, auk þess að koma í veg fyrir eða draga úr skaðlegum áhrifum umbúða og umbúðaúrgangs á umhverfið og heilsu fólks. Í því skyni setur reglugerðin meðal annars kröfur hvað varðar umhverfislega sjálfbærni umbúða og mælir fyrir um forvarnir gegn myndun umbúðaúrgangs, svo sem með minnkun einnota eða óþarfa umbúða og endurnotkun umbúða eða áfyllingu þeirra. Með upptöku í EES-samninginn og innleiðingu í íslenskan rétt ætti því reglugerðin almennt að geta leitt til framfara á íslenskum markaði með umbúðir og vörur, rétt eins og tilskipun 94/62/EB hefur gert en hún var innleidd hér á landi árið 1996.
    Við greiningu á reglugerð (ESB) 2025/40 huga stjórnvöld sérstaklega að samráði við atvinnulífið en komið hafa fram upplýsingar um að tiltekin ákvæði hennar falli mögulega illa að aðstæðum á íslenskum markaði. Má þar nefna skyldu til að endurnota drykkjarvöruumbúðir, takmarkanir á notkun söluumbúða utan um grænmeti og ávexti og ákvæði um áfyllingarstöðvar í stórum verslunum til sölu á umbúðalausum vörum. Hvað varðar fyrstnefnda ákvæðið hefur verið við lýði hér á landi rótgróið skilagjaldskerfi með einnota drykkjarvöruumbúðir. Kerfið var framsýnt þegar því var komið á fyrir hálfum fjórða áratug síðan og það hefur skilað afar góðum árangri við að halda uppi háu endurvinnsluhlutfalli drykkjarvöruumbúða sem notaðar eru hér á landi og komið að mestu í veg fyrir að notaðar drykkjarvöruumbúðir verði að rusli úti í íslenskri náttúru. Á móti kemur að kerfið byggist einvörðungu á notkun einnota drykkjarvöruumbúða og umbúðanotkunin í kerfinu er mikil en að meðaltali notar hver landsmaður yfir 600 einnota drykkjarvöruumbúðir á ári. Þróun í eftirspurn neytenda síðastliðin ár hefur verið frá stærri umbúðum, svo sem tveggja lítra umbúðum, yfir í smærri umbúðir sem rúma drykkjarmagn fyrir einn. Of mikil ásókn í takmarkaðar auðlindir jarðar krefst þess af samfélaginu að við spyrjum okkur hvort núverandi kerfi sé fullnægjandi eða hvort hægt sé að gera enn betur. Í gildi er jafnframt forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs þar sem úrgangsforvarnir og undirbúningur fyrir endurnotkun eru hærra sett en endurvinnsla, sbr. 7. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Afstaða íslenskra stjórnvalda til ákvæðis reglugerðar (ESB) 2025/40 um endurnotkun drykkjarvöruumbúða og annarra ákvæða hennar sem atvinnulífið hefur vakið athygli á liggur ekki fyrir en nauðsynlegt er að afstaða og hugsanlegar fyrirætlanir um að leita samninga um aðlögun fyrir Ísland við upptöku í EES-samninginn séu vel ígrundaðar og byggist á áreiðanlegum upplýsingum um áhrif viðkomandi ákvæða hér á landi. Varðandi drykkjarvöruumbúðir má nefna að Norðmenn eru í svipaðri stöðu og Íslendingar, þ.e. með árangursríkt skilagjaldskerfi sem byggir þó á endurvinnslu einnota umbúða en ekki endurnotkun fjölnota umbúða. Ráðuneytið fylgist með því hvernig norsk stjórnvöld nálgast málið.