Ferill 492. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 908  —  492. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um eignir úr dánarbúum án lögerfingja.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hverjar eru heildarfjárhæðir eigna sem hafa runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án lögerfingja undanfarin tíu ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum.

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið býr ekki yfir þeim upplýsingum sem þarf til að svara fyrirspurninni. Við vinnslu hennar var því leitað til sýslumanna sem fara með uppgjör dánarbúa.
    Sýslumenn gáfu þau svör að málalyktir sem yrðu með þeim hætti sem fyrirspurnin kveður á um, að arfur renni til ríkissjóðs þegar erfingjum er ekki til að dreifa, væru ekki sérstaklega skráðar í Sýslu, málaskrárkerfi sýslumanna, og því væri afar tímafrekt að greina þau gögn ef það væri á annað borð hægt með tæmandi hætti. Því leituðu sýslumenn til Fjársýslunnar. Gögnin sem hér um ræðir eru því frá Fjársýslu ríkisins og ná yfir árin 2015–2024. Fjárhæðir eru í krónum.
    Eftirfarandi tafla sýnir yfirlit yfir fjárhæðir sem hafa runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án lögerfingja, þ.e. þegar engir arftakar samkvæmt lögum finnast og eignir renna til ríkisins.

Ár Fjárhæð
2015 0
2016 0
2017 0
2018 0
2019 5.462.984
2020 21.873.446
2021 11.597.149
2022 78.952.017
2023 133.792.322
2024 937.228
Samtals 252.615.146

    Samtals hafa því 252.615.146 kr. runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án lögerfingja á þessu tíu ára tímabili. Á árunum 2015–2018 voru engar innborganir í ríkissjóð vegna dánarbúa en fyrir árið 2015 var síðasta innborgun árið 2013.
    Á umræddu tímabili er tekjufærslan í öllum tilvikum innborgun til ríkissjóðs. Lengra aftur eru dæmi um að auk peninga hafi ríkissjóður fengið jörð með húsum og hlutabréf. Tekjufærslan hverju sinni nær yfir allar þær eignir sem ganga til ríkissjóðs.