Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 911  —  476. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um LÖKE, málaskrárkerfi ríkislögreglustjóra.


     1.      Hversu margir hafa aðgang að LÖKE, málaskrárkerfi ríkislögreglustjóra?
    Málaskrárkerfi lögreglu er viðamikið kerfi með ólíkum kerfishlutum sem allir eru aðgangsstýrðir. Breytilegt er hvort aðgangur feli í sér heimild til að skrá inn gögn, skoða þau, eða breyta þeim. Þar sem öll lögregluembættin, auk ríkissaksóknara og héraðssaksóknara, nota sama kerfi þá eru líka aðgangsstýringar sem snúa að einstökum embættum, deildum eða ákveðnum tegundum gagna.
    Miðað við 17. júlí 2025 hafa 1.615 einstaklingar aðgang að einhverjum hlutum kerfisins eða ákveðnum tegundum gagna og/eða kerfinu í heild.

     2.      Hversu margar uppflettingar eru framkvæmdar að meðaltali í málaskrárkerfinu á viku?
    Í málaskrárkerfi lögreglu eru skráð öll þau verkefni sem lögregla sinnir og úrlausnir þeirra. Kerfið er því afar viðamikið og snýr ekki eingöngu að úrlausnum sakamála heldur einnig aðstoð við borgarana, svo sem vegna slysa eða veikinda.
    Allar opnanir í kerfinu, svo sem til að skoða mál, bæta við það upplýsingum, leiðrétta eða færa mál á milli starfsmanna, deilda eða embætta, eru skráðar og því hægt að skoða eftir á hverjir skoðuðu gögn, settu inn eða breyttu. Notendur geta ekki eytt gögnum úr kerfinu.
    Nokkuð breytilegt er á milli vikna hversu mörg mál eru skoðuð eða stofnuð í kerfinu og hversu oft þau eru opnuð, en að jafnaði eru um 16.000 mál opnuð á viku hverri 35.000–40.000 sinnum. Í tengslum við hverja opnun geta síðan verið margar aðgerðir, svo sem að gögn séu sett inn, mál lesið, því breytt eða það fært til.
    Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra, sem tók til einföldunar saman upplýsingar fyrir dagana 30.06.2025 til 06.07.2025 (vika 27). Í þeirri viku voru samtals 20.263 mál opnuð 57.015 sinnum í lögreglukerfinu og skráðar voru 414.039 aðgerðir í tengslum við þessar opnanir, á borð við bókanir eða skráningu nýrra gagna á málin.

     3.      Í hversu mörgum tölvum eru gögn úr málaskrárkerfinu geymd hjá embættinu?
    Málaskrárkerfi lögreglu er byggt ofan á gagnagrunn og er sá gagnagrunnur geymdur á einum stað en forritið veitir síðan aðgang að þeim gögnum sem hver og einn hefur heimild til að vinna með. Einnig er hluti gagnanna afritaður einu sinni á sólarhring til að sinna tölfræðivinnslu.