Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 912  —  156. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um skil á ársreikningum.


     1.      Hvaða ráðuneyti og stofnanir sem undir þau heyra höfðu ekki skilað árituðum ársreikningum fyrir árið 2022 í nóvember 2024?
    Ársreikningar eru birtir á vefsíðu í umsjón Fjársýslu ríkisins 1 en þar hefur verið merkt „vantað“ þegar ekki hefur tekist að fá ábyrgðaraðila til þess að árita ársreikninga.
    Ekki hefur sérstaklega verið haldið utan um hvort stofnanir undirriti fyrir tiltekna dagsetningu en hægt er að sjá undirritunardag í rafrænum áritunum.
    Í eftirgreindri töflu má sjá fjölda fjárlagaliða þar sem vantar áritun eftir ráðuneytum vegna ársins 2022:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.














     2.      Hvaða ástæður eru fyrir þessari töf í hverju tilviki fyrir sig?
    Ástæður fyrir töfinni eru aðallega að forstöðumenn uppfylla ekki skyldur sínar samkvæmt lögum um opinber fjármál. Einnig er eftirlit fagráðuneyta ekki nógu gott með að stofnanir sem undir þau heyra áriti reikninga.

     3.      Hvaða áform eru um umbætur í þessu efni af hálfu ráðherra?
    Samkvæmt 54. og 55. gr. laga um opinber fjármál skulu ríkisaðilar í A1- og A2-hluta skila ársreikningi og eignaskrá til Fjársýslu ríkisins, hlutaðeigandi ráðherra og Ríkisendurskoðunar eigi síðar en 28. febrúar ár hvert. Ársreikningar ríkisaðila í A1- og A2-hluta skulu áritaðir af viðkomandi forstöðumanni þar sem m.a. komi fram að hann sé gerður í samræmi við lög og reglur sem gilda um reikningsskil ríkisins og aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til glöggvunar á rekstrarafkomu og stöðu ríkisaðilans.
    Ráðherra fylgir eftir og leggur áherslu á að hvert fagráðuneyti hafi eftirlit með þeim ríkisaðilum sem undir þau heyra og að farið sé eftir lögum um opinber fjármál þegar kemur að skilum ársreikninga til Fjársýslu ríkisins.
1     arsreikningar.rikisreikningur.is/Stofnun